Morgunblaðið - 10.03.1985, Qupperneq 67
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
67
Edward Wolf, höfundur kaflans
um fjölbreytni í lífríkinu, bendir á
að víðtæk eyðing plöntu- og dýra-
tegunda hafi verið ákaflega sjald-
gæf þar til á þessari öld.
„Æxlun nýrra tegunda hefur
aukið á fjölbreytileika lífsins á
jörðinni á okkar tímum. En eftir
að álag mannvistar á lífkerfið fór
að vaxa svona hefur útrýming
plantna og dýra farið í ríkara
niæli en nokkru sinni fram úr til-
Álagið á lífkerfi jarðar og
hringrás nátlúrunnar er þegar
orðið of mikið vegna hratt vax-
andi mannfjölda. Jörðin hefur
ekki ur.dan. Jarðvegur hverfur,
skógar eyðast og með minnk-
andi yfirborðsgróðri rennur allt
vatn án viðstöðu í sjóinn og
minna magn gufar upp til að
hlaða skýin sem koma inn yfir
landið — því dregur líka úr úr-
komu.
sem taki mið af því að auðlindum
verði stjórnað á þann háttað að
þær nái að endurnýjast.
„Grunnur slíkrar endursköpun-
ar hlýtur að vera sá að gera sér
grein fyrir því að ósætti milli
þjóða er minni ógnun við öryggi
okkar og framtíðarvelferð en
hrörnun umgengniskerfis okkar
sjálfra, sem bráðum erum orðin
fimm milljarðar talsins, og nátt-
úrunnar eða þeirra auðlinda sem
sem „einhverju efnahagslega og
umhverfislega dýrasta auðlinda-
tapi genginna kynslóða sem vitað
er um“.
„í Suður-Kóreu, þar sem orðið
hefur eitthvert árangursríkasta
skógræktarátakið fram að þessu,
þar hefur tekist að festa varanleg-
an jarðveg í áður berum fjallshlíð-
um. Stórhuga skógræktarhreyfing
í Kína hefur að markmiði að auka
skóglendið um 12—20% af yfir-
borði landsins fyrir árið 2000. Af
iðnaðarlöndunum hefur Ítalía
þegar plantað trjám á 2 milljónir
hektara af örfoka ræktunarlandi."
Lester R. Brown tekur þó fram
að miklu stærra átak þyrfti til. í
Afríkulöndum tapast 29 tré á móti
hverju einu sem plantað er. í
Suður-Ameríku er hlutfallið 10 á
móti einu og í Asíu 5 á móti einu.
„Ekki er aðeins nauðsynlegt að
brúa þetta bil, heldur verður ný-
plöntunin smám saman að fara
fram úr eyðingunni á skógunum,
ef takast á að ná aftur veðurfars-
legu jafnvægi."
Endurnýjanleg
orkunotkun
Endurnýjun orkulinda er annar
þáttur þar sem framfara er þörf,
segir í margnefndri skýrslu. Sam-
kvæmt athugun Christophers
Flavins, sem unnið hefur að þætt-
inum um orkunýtingu, eru nokkur
lönd í þriðja heiminum svo sem
Filippseyjar og Brasilía nú þegar
á góðri leið til endurnýjanlegrar
orkunotkunar. Flavin segir að Fil-
ippseyjar komi orðið næst á eftir
Bandaríkjunum hvað snertir nýt-
ingu á jarðvarma. Brasilía nýtir
vatnsafl, viðarorku og alkohól-
bensín og er á góðri leið með að ná
stáli en hæfustu framleiðendurn-
ir, svo sem Ítalía og Japan.“
Að dómi Williams Chandlers,
sem er höfundur kaflans um
orkunýtni, kemst bílafloti Japana
tvcfalt fleiri kílómetra á hverjum
bensínlítra en bandaríski bílaflot-
inn. „Ákvörðun Bandaríkjanna
um að auka eldsneytisnýtinguna
upp í 40 mílur á hvert gallon eða
ef Sovétmenn tækju upp japanska
tækni í stálframleiðslu gæti spar-
að orkumagn á borð við heildar-
notkun Brasilíu."
Þótt orkuverð verði að hækka
upp í rétt markaðsverð til að ná
sem bestri nýtingu, telur Chandler
að aðgerðir stjórnvalda séu engu
síður bráðnauðsynlegar meðan
verið er að brúa bilið til orku- og
efnahagslegrar hagkvæmni. „Ef
sett yrði hæfnismark á notkun
raftækja í Bandaríkjunum yrði
auðveldlega hægt að komast hjá
þeirri 60.000 megawatta orku-
þörf sem spáð er þar í landi fram
til ársins 2000, en það jafngildir 60
stórum kola- eða atómorkuverum.
Framfarirnar eru býsna mis-
miklar ef litið er til heildarátaks
til að skapa viðvarandi samfélag á
þessum hnetti. Lester R. Brown
segir að Afríka verði fyrsta til-
raunasvæðið þar sem reyni á
hæfileika hins alþjóðlega samfé-
lags til að bregðast við nýjum ef-
nahagsógnunum. Ef úrkoman fer
smáminnkandi í Afríku vegna
breyttrar landnotkunar af völdum
mannfjölgunar, þá er aðeins á
einn veg hægt að snúa við sí-
minnkandi matarskammti á mann
á meginlandinu öllu, að dómi
Browns, það er með takmörkun
barneigna, skógrækt, uppgræðslu
örfoka lands og vatnsöflun i stór-
um stíl.
Skýrsla Worldwatch trá
1978 sýndi að Eþíópía var
að tapa einum milljarði
tonna af yfirborðsjarðvegi á
hverju ári. Ört vaxandi
jarðvegseyðing var fyrir-
boði hungursneyðarinnar
nú og frumorsökin, þótt
óvenjulangir þurrkar hafí
svo hleypt henni af stað.
komu nýrra tegunda," að sögn
Wolfs.
Hann varar við hættunni af því
að erfðagrunnurinn er að dragast
saman einmitt nú þegar þörfin
fyrir fjölbreytni er mest. „Líf-
tæknin veitir vonir um dýrmætar
framfarir í ræktun og uppbætur
fyrir þær auðlindir sem ekki
endurnýjast. En þetta nýja og
vaxandi svið hvílir á fjölbreytni á
sviði erfðavísanna," segir Wolf.
Einbirniskerfi
eða fæðuskortur
Lester R. Brown segir að eftir
því sem álagið af völdum manns-
ins á náttúruna verði augljósara
hljóti ríkisstjórnir að neyðast til
mjög erfiðrar ákvarðanatöku.
„Vestur-Þýskaland mun brátt
þurfa að velja á milli þess að
draga úr bílanotkun eða fórna
skógum landsins. í mörgum lönd-
um þriðja heimsins stendur valið
á milli þess að draga hratt úr fæð-
ingum eða að væntanlegur fæðu-
skortur fjölgi dauðsföllum.
Erfitt verður að endurvinna þá
aðstöðu til betri lífsskilyrða á
breiðum grundvelli sem áður
þekktist, en það er ekki ómögu-
legt, að því er Lester R. Brown
telur. Það krefjist þó algerrar
stefnubreytingar á sviði ræktun-
ar, orkuvinnslu og mannfjölgunar,
Helstu matvælaframleiðsluhéruðin sem nú sjá fram á ónóg vatn eru m.a. háslétturnar í Banda-
ríkjunum, Miðasíulýðveldi Sovétríkjanna og Norðurkínasléttan.
við lifum á,“ segir Brown.
„Til allrar hamingju er næstum
allt frumkvæði einstaklinganna til
að koma á endurbótum á lífsskil-
yrðum okkar í víðu samhengi á
valdi þeirra sjálfra. Til dæmis
bindur trjárækt jarðveg og vatn,
dregur úr kolsýringsmyndun í
andrúmsloftinu og er í sjálfu sér
ný orkuuppspretta. Betri nýting
orku dregur úr uppbyggingu C02,
verndar skógana vegna minna
magns af súru regni og sparar
dýrmætt fjármagn."
Lester Brown spáir því að þjóðir
þriðja heimsins, þar sem álagið á
staðbundið lífkerfi hefur í för með
sér skógareyðingu, jarðvegseyð-
ingu og minnkandi vatnsmagn,
neyðist brátt til að velja — á sama
hátt og Kína hefur orðið að gera
— milli einbirniskerfisins eða
verri lífskilyrða.
Þegar einhver þjóð tekur þá
ákvörðun að vernda og endurvinna
náttúruauðlindir sínar, er árang-
urinn stundum mjög áhrifamikill,
segir Brown. Hann nefnir sem
dæmi skóga sem skýrslan lýsir
efnahagslegu jafnvægi á þessu
sviði, er byggist á endurnýjanlegu
eldsneyti.
Christofer Flavin lýsir þessum
öra vexti endurnýjanlegra orku-
linda í heiminum með orðunum
„stórkostlega hraðar framfarir",
þótt iðulega sé ekki úr háum söðli
að detta. „Til dæmis hefur jarð-
varmanýting til raforku vaxið i
heiminum öllum um 15% á ári á
undanförnum fimm árum, notkun
alkohólbensíns um 30%, sólarorku
um 20% og vindorku til raforku-
framleiðslu um 75%. Á sama tlma
hefur olíunotkun minnkað um 3%
á ári og kolanotkun um 1% á ári.“
Þrátt fyrir þetta væri hægt að
gera miklu meira til að tryggja
langtíma nýtingu orkulindanna,
segir í skýrslunni. Möguleikana til
að fá betri orkunýtingu, sem bæði
dregur á súra regninu og auknum
koltvísýringi í andrúmsloftinu, má
marka í stáliðnaðinum, þar sem
löndin sem sýna minnsta hæfni
eins og Sovétríkin, Indland og
Kína nota tvisVar sinnum meiri
orku til að framleiða eitt tonn af
„Til að snúa af braut hrörnandi
umhverfis og efnahags, sem nú er
komið á fullt skrið I svo stórum
hlutum Afríku krefst vísast al-
þjóðasamvinnu I stærri stíl en
þekkst hefur síðan Bandamenn
tóku saman höndum um hervæð-
ingu I heimsstyrjöldinni síðari,
segir Lester R. Brown.
Bókin State of the World 1985
eða Ástand heimsins er um 300
síður að lengd og full af fróðlegum
línuritum og töflum til skýringar
á læsilegum textum, sem vísinda-
menn Worldwatch Institute hafa
unnið upp úr miklu magni heim-
ilda. Þar er m.a. langur kafli um
fiskistofna heimsins og viðhald
þeirra, sem varðar íslendinga sér-
staklega, auk annarra mikilvægra
þátta til viðhalds lífinu á jörðinni
og velferð mannkyns. Útgefandi er
W.W. Norton í New York og Lond-
on.
TEXTI: ELÍN PÁLMADÓTTIR