Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 TARKOWSKYHÁTÍÐ Listamaðurinn á ekki að þurfa að svara fyrir list sína Nýlega var stofnuð í Keykjavík svokölluð Tarkowskynefnd í höfuAið á sovéska kvikmyndaleikstjór- anum Andrei Tarkowsky en hún var sett á laggirnar í því skyni að fá leikstjórann hingað til lands málstað hans til stuðnings. í nefndinni eru: Thor Vilhjálmsson rithöfundur, Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndagerðarmaður, Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndagerðarmaður, Ágúst Guðmundsson kvik- myndagerðarmaður, Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður, Friðbert Fálsson forstjóri Háskólabíós og Guðrún Gísladóttir leikkona, sem leika mun eitt hlutverk í nýjustu mynd Tarkowskys, sem hann er að vinna að úti í Svíþjóð. Einnig hefur Jón Óttar Kagnarsson matvælafræðingur tekið þátt í störfum nefndarinnar. Fyrir þremur árum fór Tarkowsky til Ítaiíu að vinna við gerð kvikmyndarinnar Nostalgia og hann hefur ekki snúið til Sovétrfkjanna síðan. En hann hefur átt í baráttu við stjórnvöld í heimalandi sínu vegna þess að börnin hans þrjú (hið yngsta 13 ára) hafa ekki enn fengið að yfirgefa landið. Úr nýjustu mynd Tarkowskys, Nostalgia, sem hann gerði á ftalíu. Hátíðin „Það virtist gleðja hann mikið og ég býst viö að þetta hafi komið honum á óvart," sagði Thor Vil- hjálmsson rithöfundur aðspurður útí viðbrögð Tarkowskys þegar hann heyrði af fyrirhugaðri hátíð honum til heiðurs og stuðnings uppi á íslandi. „Hann lét í ljós mikla ánægju," sagði Thor enn- fremur, „og þakklæti en hann átti í raun erfitt með að koma því við að skreppa hingað og mér skilst að hann hafi neitað i flestum öðrum svipuðum tilfellum." A Tarkowskyhátíðinni, sem stendur frá 9,—15. mars, eru sýnd- ar allar myndir leikstjórans, sjö að tölu: Æska ívans (1962), Andr- ei Rubljow (1966—1969), Solaris (1972), Spegillinn (1974), Stalker (1979), Nostalgia (frá 1979) og að auki lokaprófsmynd hans við Kvikmyndastofnunina í Moskvu. Myndirnar eru sýndar á sérstök- um kvöldsýningum í Háskólabiói og sömu vikuna verða þær einnig sýndar i Regnboganum, bæði síð- degis og á kvöldin. Á þessari hátíð gefst kjörið tækifæri fyrir kvik- myndaáhugamenn að kynnast verkum þessa velþekkta en um- deilda leikstjóra, sem flúið hefur hið öfluga kerfi ritskoðunar í Sov- étríkjunum. „Sovésk yfirvöld gerðu honum erfitt fyrir svo honum fannst hann ekki geta búið lengur í land- inu við þær aðstæður sem honum voru búnar sem listamanni. Það er á ýmsan hátt undravert að hann skyldi hafa fengið að gera svona myndir í Sovétríkjunum. Hann kemur að vísu fram á heppilegum tíma þegar talað var um þíðu og ný kynslóð kom fram sem fékk að gera meira en um sinn hafði verið leyfilegt, upp að vissu marki,“ sagði Thor. Peningaspursmálið En hvernig skyldi Tarkowsky líka það að vinna hérna megin járntjalds? Hann var spurður að því þegar hann var að vinna við Nostalgia á Ítalíu og hann sagði: „Það er ekki nóg með að þetta sé í fyrsta skipti sem ég geri kvik- mynd utan Sovétríkjanna, heldur er þetta líka í fyrsta skipti sem ég vinn við útlenskar aðstæður. Það er vissulega erfitt að gera kvik- myndir í ólíkum heimshlutum en erfiðleikarnir eru ólíkir. Hér hefur stærsta hindrunin verið stöðugur skortur á tíma og peningum. Pen- ingaskorturinn setur hömlur á sköpunargleðina og peningaskort- urinn veldur tímaskorti; því leng- ur sem ég filma, því dýrara er það. Þrjár myndir úr SPEGLINUIVI Hér á Vesturlöndum gegna pen- ingar hlutverki alræðisins. í Sov- étríkjunum þurfti ég aldrei að hafa áhyggjur af kostnaðarhlið- inni ... En ég vil ekki bera saman okkar aðferðir og ykkar. Það er flókið og erfitt að gera kvikmynd hvar sem er. Það, sem mér finnst vera helsti annmarkinn hér, er hið sífellda peningaspursmál, sem getur lagt framtíð kvikmyndar- innar sem listgreinar í hættu." Tormeltar myndir Myndir Tarkowskys þykja tor- meltar í meira lagi. Hann „krefst heilmikils af áhorfendum sínum, en ef hann neitar að breyta um stíl og innihald mynda sinna til að gera þær auðskiljanlegri áhorf- endum, er það vegna þess að hann virðir áhorfendur og trúir þeim til að taka þátt í myndum sínum og sýna þeim skilning." Þannig kemst Marcel Martin kvikmynda- gagnrýnandi að orði í Internation- al Film Guide 1983, en það ár kaus IFG Tarkowsky einn af leikstjór- un ársins. Martin segir að Tark- owsky sé dulur og lítt tilleiðanleg- ur að segja frá meiningu mynda sinna, auk þess sem mjög vítt og flókið efnissvið þeirra hefur ekki hjálpað til að gera þær skiljan- legri. Útkoman er sú að litið hefur verið framhjá honum jafnt af áhorfendum sem vel upplýstum gagnrýnendum. „Myndir hans eru ákaflega margslungnar," segir Thor Vil- hjálmsson, sem verið hefur mikill aðdáandi Tarkowskys um langt skeið. „Þær eru magnaðar og þær er hægt að skilja á ýmsa vegu. Tarkowsky er þannig listamaður að hann vill að áhorfandinn fái að vera skáld líka og lætur hann hafa Tarkowsky við gerð Spegilsins árið 1975. Andrei Tarkowsky er sennilegast frægastur núlif- andi kvikmynda- leikstjóri frá Sov- étríkjunum. Hann flúði land fyrir þremur árum og býr á Ítalíu. Hann er vœntanlegur hingað til lands 15. mars nk. í tengslum við kvikmyndahátíð sem nú stendur yfir í Reykjavík honum til heiðurs og stuðnings. nóg að hugsa um. Þetta eru ekki myndir til að fælast; þær eru heillandi fyrir augað og hugann og í þeim er eftir miklu að slægjast, þær getur hver maður túlkað með sínum hætti.“ En hvað segir Tarkowsky? Hann vék að þessu í viðtali, sem tekið var við hann árið 1982: „Ég held að það sé ekki til það form kvikmyndalistar sem allir geta skilið. í því felst að það er nánast ógerlegt að gera kvikmynd, sem gengur vel í alla sem sjá hana, og hvað sem öðru líður, þá væri það í öllu falli ekki listaverk. Listaverk er aldrei meðtekið mótbárulaust. Leikstjóri eins og Spielberg nær til gríðarlega stórs hóps áhorf- enda og þénar miklar peninga- summur og allir eru ánægðir með það. En hann er enginn listamað-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.