Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 25
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
B 25
Athafnalíf
lamað á
Neskaupstað
Neskaupstað, 8. mars.
HÉR f Neskaupstaö liggur nú allur
flotinn bundinn vegna verkfalls sjó-
raanna og er nær allt athafnalíf stað-
arins lamað.
í frystihúsi SVN lauk allri fisk-
vinnu í síðustu viku og loðnubræðslu
lýkur eftir 5 daga, hafi ekki loðna
borist á land fyrir þann tíma.
í gær var haldinn fjölmennur
fundur sjómanna meö Halldóri
Ásgrímssyni sjávarútvegsráð-
herra í Menntaskólanum á Egils-
stöðum. Lýstu sjómenn þar mikilli
óánægju með það sem kallað er
kostnaðarhlutdeild, og dregin er
af óskiptum afla. Lýstu þeir þeirri
skoðun sinni að óréttlátt væri að
þeir einir bæru uppi vanda útgerð-
arinnar, sem við öll lifum á. Eftir
fundinn var samningafundur milli
sjómanna og útgerðarmanna.
Að sögn Einars Ásgrímssonar
sem sæti á í samninganefnd fyrir
hönd sjómanna var fundurinn
árangurslaus, því útgerðarmenn
voru ekki til viðræðu um neinar
aðrar breytingar en þær sem kom-
ið hefðu fram í samningum þeim
er undirritaðir voru fyrir sunnan.
Sigurbjörg
Færeyskur
basar í dag
ÞESSAR konur á myndinni eru konur hér i Reykjavík og ná-
meðal margra sem í vetur hafa grenni sUnda að og heitir Sjó-
unnið alla þessa handavinnu og mannskvinnuhringurinn.
eru í félagsskap sem færeyskar Þessa handavinnu ætla þær
að selja í dag, sunnudag, á bas-
ar og flóamarkaði sem þær
efna til í Færeyska sjómanna-
heimilinu í Brautarholti 29 og
hefst kl. 14. Þetta er árlegur
basardagur og fer ágóðinn allur
til Færeyska sjómannaheimil-
isins, sem verið hefur í smíðum
undanfarin ár. Svo verður einn-
ig nú. Þó sjómannaheimilið sé
komið undir þak og vel það er
enn all nokkuð eftir þar ógert.
Konan fremst á myndinni er
frú Justa Mortensen sem er ein
helsta driffjöðrin í þessum fé-
lagsskap kvenna. Hún og mað-
ur hennar, Jakob Mortensen,
hafa búið hér í Reykjavík í 25
ár, en bæði eru þau Færey-
ingar. Með henni á myndinni er
dóttir hennar (í hvítu peys-
unni) María Jakobsdóttir og
Una Harðardóttir. Því má bæta
við að fyrir nokkrum kvöldum,
er konurnar voru að leggja síð-
ustu hönd á handavinnu sína,
fengu þær heimsókn nokkurra
Færeyinga sem hingað komu
vegna Norðurlandaráðsþings-
ins.
Anna Júlíana Sveinsdóttir
Syngur á hádegis-
tónleikum
Operunnar
Á hádegistónleikum tslensku
óperunnar þriðjudaginn 12. marz
flytja Anna Júlíana Sveinsdóttir
og Jónas Ingimundarson lög eftir
Tschaikovsky og Chopin. Ljóðin
verða öll sungin með frumtextan-
um, þ.e.a.s. á rússnesku og pólsku,
en lausleg þýðing á íslensku fylgir
efnisskrá.
Á næstu hádegistónleikum,
þriðjudaginn 19. marz, kemur
Halldór Vilhelmsson fram og Sig-
urður Björnsson þriðjudaginn 26.
marz.
(Frétl M Iskuka iyenmai)
r/
%
*
Framhlaðið tæki á
mjög hagstæðu verði, og
VC-481
því fylgir fjarstýring
sem gerir þér kleift að
skoða myndefnið
hratt í báðar áttir,
ogfrysta myndina („pause").
Tækið hefur 7 daga upptökuminni, er útbúiö
rakaskynjara, og sjálfvirkri endurspólun.
Þetta úrvalstæki er umfram allt, einfalt í allri
notkun.
Aðeins
39.800
Stg.
HUOMBÆR
HVERFISGÖTU 103
SÍMI 25999
HLJOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI
mk