Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 15
B 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
fyrr en 1959, þótt ævintýramenn
reyndu það stöku sinnum og
þótt þingið á Jamaica sam-
þykkti lög um björgun fjársjóðs-
ins. Árangur náðist ekki fyrr en
Robert Marx stjórnaði velskipu-
lögðum uppgrefti 1964.
Þetta var ekki auðvelt verk.
Annar jarðskjálfti 1907 hafði
valdið meira hruni í sokknum
rústunum og þykkt botnfail
þakti staðinn. Marx notaði sog-
dælu til þess að hreinsa svæðið,
sem hann og félagar hans ein-
beittu sér að, og til þess að moka
upp litlum munum.
Árangurinn lét ekki á sér
standa. Marx fann hruninn vegg
og dró þá ályktun að það sem
undir honum væri hefði farið
fram hjá fyrstu björgunar-
mönnunum. Sandinum var dælt
varlega í burtu og holan könnuð.
Marx fann spón úr pjátri og síð-
an annan sams konar spón.
Því næst fannst stór skál og
þá stafli af diskum. Fleiri hlutir
úr pjátri fundust á öðrum stöð-
um: drykkjarkrúsir, súpuskálar,
matarílát, kertastjakar, vín-
trektir og staup. Þetta var
mtsta safn af pjáturvöru frá
sjávarfangi, sem dró að sér
stóra hitabeltisfiska.
Kafararnir höfðu verið varað-
ir við hákörlum, en það sem
vakti mesta athygli þeirra voru
nokkrar múrenur, sem eru af
einni ætt álaættbálks, og litlar
barrakúdur.
Þegar Hamilton og stúdentar
hans, sem voru 22 að tölu, höfðu
unnið að uppgreftrinum í 11 vik-
ur í fyrrasumar hættu þeir að
safna gripum úr byggingunni að
sinni. I vetur hafa þeir unnið að
því að undirbúa ritsmíðar um
það sem þeir fundu.
Hamilton sagði í viðtalinu við
NY Times að í byggingunni virt-
ust hafa verið þrjár verzlanir á
jarðhæð, en íbúð á hæðinni fyrir
ofan. Hann sagði að ur.dir
hrundu þakinu hefðu fundizt
„brotin borð og brotnir stólar,
brotin bjórkrús, þröskuldar,
sem voru á sínum stað, dyra-
stafir og alls konar gripir, sem
Port Royal var endurreist eftir jarðskjálftann
1692 og heimamenn köfuðu oft niður
í hina sokknu borg í leit að verðmætum.
síðari hluta 17. aldar, sem fund-
izt hafði.
Ýmislegt fleira fannst: rúm-
lega 5,000 brot af leirpípum,
vasaúr, leirmunir og postulíns-
gripir, silfurskjöldur, tæki og
búnaður skipa úr látúni. Síðast
en ekki sízt fannst kista, sem
molnaði og þá blasti innihaldið
við: hundruð glóandi, ónotaðra
silfurpeninga. Sannkallaður sjó-
ræningjafjársjóður.
ÓHREYFT
Einna merkilegast við upp-
gröft Marx og þann uppgröft,
sem nú stendur yfir í Port Royal
undir stjórn Hamiltons, er að
þeir hlutir, sem finnast, eru hér
um bil á sama stað og þegar
borgin sökk — þar sem hún leið
undir lok af völdum mikilla
rjáttúruhamfara.
Hamilton sagði í viðtali við
New York Times að yfirleitt
græfu fornleifafræðingar á
stöðum, sem hefðu verið yfir-
gefnir eða tekið breytingum í
tímans rás. Hann sagði að oftast
fyndust hlutir ekki þar sem þeir
hefðu verið notaðir heldur á
ruslahaugum. Þannig verði
fornleifafræðingar að geta sér
til um hvar og hvernig þeir hafi
verið notaðir og hverjir hafi
notað þá.
Hamilton sagði að hann og
aðrir vonuðust til að geta dregið
upp miklu nákvæmari mynd af
lífinu í Port Royal á 17.öld en
reynzt hefði unnt til dæmis í
Williamsburg, Virginíu, í
Bandaríkjunum, þar sem margir
gripir hefðu horfið.
Unnið verður úr því sem forn-
leifafræðingarnir finna á Eng-
landi. Hamilton og samstarfs-
menn hans vona að árangurinn
verði sá að unnt verði að setja
saman svo lifandi frásögn um
lífið á þessum tíma að hún verði
eins og söguleg skáldsaga, þar
sem allt verði sett í samhengi.
Uppgröfturinn fer fram á veg-
um Texas A & M-háskólans,
stofnunar sem er tengd honum
og fæst við sjávarfornleifafræði
(Institute of Nautical Archeao-
logy) og Jamaicastjórnar, sem
fór þess á leit við háskólann að
hann tæki að sér þetta verkefni
fyrir sex til sjö árum. Verkið gat
ekki hafizt fyrr en 1981 vegna
ótryggs stjórnmálaástands á
Jamaica.
Hamilton var ákveðinn í að
halda nákvæma skrá um allt
sem fyndist. Hann einbeitti sér
að tveggja hæða múrsteinshúsi
rúmlega 80 metra frá landi, sem
eitt sinn hafði verið með múr-
húðaða veggi og bratt tígul-
steinsþak.
KAFARAR
Kafararnir, sem voru stúdent-
ar Hamiltons, unnu á þremur
þriggja tíma vöktum fimm daga
í viku. Skyggni var stundum að-
eins örfáir þumlungar og við
vinnuna rótuðu þeir upp ýmsu
lágu á víð og dreif á gólfinu".
í einu herberginu á jarðhæð-
inni, sem var greinilega krá,
voru viskíflöskur í hundruðatali,
pjáturkrúsir, matarílát og
mælikönnur. t öðru herbergi
fundu kafararnir leirpípur í
hundruðatali og vínflöskur og
þeir halda að þar hafi verið tób-
aks- og vínverzlun.
Bakherbergið var eins konar
verkstæði, því að þar fannst
heilmikið af verkfærum, öxum,
meitlum, hömrum, þjölum og
timbri, sem virðist hafa verið
notað til að smíða úr á renni-
bekk.
í sumar ætlar Hamilton að
rannsaka alla höfnina í Port
Royal, þar sem hann telur að um
5 hektarar gamla bæjarins séu
enn í kafi. Hann telur að þar séu
500—700 byggingar. Innan við
20 þeirra hafa verið grafnar upp
og þar af hefur aðeins ein þeirra
verið fullrannsökuð. „Við getum
grafið hérna næstu 200 ár,“
sagði Hamilton í viðtali.
(skv. NY Times o.fl. heimild-
um.)
Bretland:
Stjórnin
vill banna
meðgöngu-
staðgengla
Lundúnum, 8. mars. AP.
BRESKA ríkisstjórnin mun inn-
an skamms leggja fram á þing-
inu tillögu til þingsályktunar um
að banna það fyrirbæri sem fel-
ur í sér að konur gangi með
börn fyrir barnlaus hjón og
þiggi fyrir það gjald. Mál „Baby
Cotton“ var mikið í fréttum er
það kom í heiminn í upphafí
þessa árs, en þá gekk hin 28 ára
gamla Kim Cotton með barn
ónafngreindra bandarískra
hjóna eftir að sæði eiginmanns-
ins hafði verið komið fyrir í
henni. Norman Fowler heil-
brigðisráðherra sagðist búast
við því að málið yrði afgreitt
fljótlega og það yrði að lögum
fyrir sumarið.
Fowler sagði að einkum
tvennt hefði ráðið aðgerðum
stjórnarinnar, í fyrsta lagi
ótti við að of mikil kaupsýsla
myndi ráða ríkjum í viðskipt-
um af þessu tagi í framtíðinni
og í öðru lagi, að vangefið
barn fæddist „leigumóður" af
þessu tagi í Bandaríkjunum
fyrir skömmu og hjónin sem
höfðu ætlað að taka við harn-
inu höfnuðu því.
Frú Cotton, sem gekk með
„Baby Cotton“, sagði að hún
væri á móti því að banna þessi
viðskipti. „Þetta er síðasta
hálmstrá sem mörg pör sem
ekki geta eignast börn með
hefðbundnum hætti geta
haldið í. Mér þætti fróðlegt að
sjá hvað stjórnvöld ætla að
færa því fólki í staðinn úr því
að það á að banna þetta,“
sagði Kim Cotton. Aðspurð
hvaða tilfinningar hún bæri
til litla barnsins í dag, sagði
hún: „Það var nokkuð erfitt
fyrst, en það lagaðist er ég
hugsaði sem var, að barnið
væri í góðum höndum og það
ætti nú foreldra sem elskuðu
það frá dýpstu hjartans rótum
sínum. Eg hugsaði enn um
barnið öðru hvoru, en með
gleði í hjarta fremur en með
söknuði," sagði frú Cotton.
Holland:
Þrír skotn-
ir tii bana
Rínwijk, Hollandi, S. mars. AP.
ÞRIR menn voru skotnir til bana
snemma í nótt, er ráðist var inn í
aðalstöðvar surinamskrar and-
spyrnuhreyfíngar, sem hefur aðsetur
í Rijswijk, í útjaðri Haag, að sögn
hollenska útvarpsins.
Var frá því sagt, að a.m.k. tveir
vopnaðir menn hefðu ruðst inn í
skrifstofubyggingu frelsishreyf-
ingar Surinam og hafið skothríð á
hljómsveit sem var á æfingu.
Árásarmennirnir sluppu, en
þeir voru á ferð rétt eftir mið-
nættið. Kvað lögreglan ekki vitað,
hvaða ástæða hefði legið að baki
árásinni.
Fyrrnefnd andspyrnuhreyfing
er ein af mörgum, sem tóku sér
bólfestu í Haag 1982, eftir valda-
rán Desi Bouterse í Surinam í
Suður-Ameríku, er eitt sinn var
nýlenda Hollendinga. —