Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 26
26 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
fclk í
fréttum
„Ákveðinn í að hafa einn íslenskan
leikara í næstu kvikmynd“
Kvikmyndagerðarmaðurinn
Lárus Ýmir óskarsson er
þekktur fyrir mynd sína „Andra
dansen“, sem fengið hefur fjöl-
rgar viðurkenningar og verð-
laun. Hann var inntur eftir því
hvað væri helst á verkefnaskrá
hjá honum þessa dagana.
„Stærsta verkefnið er leikin
kvikmynd, sem ég mun gera úti í
Svíþjóð næsta haust. Myndatak-
an hefst í október eða nóvember.
Ekkert endanlegt nafn er komið
á myndina en vinnunafnið er
„Þrír dagar í október". Handrit-
ið er eftir sama höfund og fyrri
kvikmyndir minnar, „Andra
dansen", Svíann Lars Lundholm.
Fjallað er um tvo bræður og föð-
ur þeirra í þrjá daga úr lífi
þeirra."
„Hefur verið ráðið í hlutverk
myndarinnar?"
„Nei, það er ekki búið að því,
en ég er ákveðinn í því að einn
íslenskur leikari verði með í
myndinni, en hvaða hlutverk
hann fær, það veit ég ekki.
Sennilega eitthvert aukahlut-
verk.“
„Hvað líður kvikmyndinni um
Louísu Matthíasdóttur, mynd-
listakonu?"
„Kvikmyndin hefur verið unn-
in í áföngum frá því í fyrra og er
— segir Lárus Ýmir Oskarsson
verið að leggja síðustu hönd á
verkið þessa dagana. Myndin er
45 mínútna löng og er um líf
hennar og list, bæði hér heima
og í New York. Myndatakan fór
fram á báðum þessum stöðum."
„Eru einhver önnur verkefni á
döfinni?"
„Eg hef verið að ganga íra
páskaleikriti sjónvarpsins að
undanförnu, en það er „Stalín er
ekki hér“ eftir Véstein Lúðvíks-
son. Leikritið var tekið upp í
sjónvarpssal síðastliðið vor en
vegna verkfalls opinberra
starfsmanna síðastliðið haust
tafðist að ganga frá því til sýn-
inga.“
„Eru sömu leikarar og í svið-
setningu Þjóðleikhússins um ár-
ið?“
„Nei, en þetta eru allt gamal-
reyndir og þekktir leikarar. Að
vísu er í hópnum einn leiklist-
arnemi, Þröstur Gunnarsson,
sem leikur Kalla, yngsta bróður-
inn. Aðrir leikendur eru Helgi
Skúlason, fer með hlutverk
Þórðar, Margrét Helga Jó-
hannsdóttir sem Munda, Guðrún
S. Gíslasdóttir sem Hulda, Egill
ólafsson sem Stjáni og Vilborg
Halldórsdóttir sem Svandís."
Lánis Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður.
„Hvað næst?"
spyrja menn
Dynasty-veldið
Lengi má blóðmjólka sömu kúna, dettur mörgum í hug er þeir fregna
um það nýjasta sem framleiðendum Dynasty-þáttanna datt í hug til
að raka saman fé. Það byrjaði auðvitað á sjálfum þættinum og þrátt
fyrir það sem síðar átti eftir að koma í dagsljósið, þá er þáttaröðin enn
miðdepillinn. Síðan var farið að framleiða sérstakt „Krystle“-ilmvatn,
því næst Dynasty-þvottasnúru og nú er komin út ævisaga persónanna í
Dynasty, rituð af alvöru rithöfundi í samvinnu við handritahöfund.
Bókin heitir auðvitað ekkert annað en „Dynasty" og er reiknað með að
hún seljist með afbrigðum vel í Bandaríkjunum og eÚaust víðar er fram
líða stundir. Á myndinni sjást þau John Forsyth og Linda Evans (Blake
og Krystle Carrington) rýna í ævisögur „sinar".
Urgur í
Dallas-
leikurum
Komið er að árlegu stórmáli
hjá framleiðendum Dallas-
þáttanna: Viðræðum leikara og
framleiðenda um kaup og kröfur
og það ku láta hátt í ýmsum fasta-
gestum á borð við Victoriu Prin-
cipal, Lindu Gray og Ken Kerche-
val, ^em vilja fá sama kaup og
Larry Hagman. Hagman fær and-
virði 100.000 punda fyrir hvern
þátt sem hann leikur í og það er
helmingi meira en næst hæst
launuðu leikarar Dallas fá. Steve
Kanaly, sem leikur Ray lýsir and-
rúmsloftinu: „Þó Larry sé Dallas
mikilvægur, þá yrði erfitt fyrir
framleiðendur að halda utan um
þættina ef við stæðum öll hörð á
kröfum okkar.“
Larry Hagman
COSPER
► ert ekKi lengur i verkfalU; fyr'irt/zX'Á Ci torit) cl
housinn !•'
Barnakarlinn
Þau Rod Stewart og Alana,
fyrrum eiginkona hans, eru sem
óðast að jafna sig á skilnaðinum
og bæði sjást í fylgd nýrra fylgi-
hnatta og þegar er talað um ný
hjónabönd á næstu grösum.
En börn þeirra
tvö, Kimberly fimm
ára og Jean fjög-
urra ára, eiga hugi
þeirra beggja.
Hlustið á Rod: „Við
Alana áttum ekki
saman fremur en
lóa og spói og þó að
það gleymdist er á
mestu gekk hjá
okkur, sé ég nú, að
ég virði Alönu
mjög. Mér þykir
vænt um börnin og
sakna þeirra hverja
þá mínútu sem ég
er ekki í félagsskap
þeirra. Þegar ég er
heima í Kaliforníu
heimsæki ég þau
alltaf 1 4—6 tíma á
dag. Það er því
miður bara allt of
sjaldan, það gera
hljómleikaferða-
lögin," segir Rod
mæðulega.