Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 4

Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 4
4* MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 Bílabú6 Benna Vagnhöföa 23 110 Reykjavík Sími 685825 Aukahlutir Varahlutir Sérpantanir VAGNHJ@LIÐ Vatnskassar og vélahlutir i ameríska bila á lager. Vélaupptekningar Mjög hagstætt verö. Bachelor Party „Bachelor Party“ er mynd sem slær hressilega i gegn. Mynd fyrir alla. íslenskur texti. Sýnd sunnudag kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Sýnd mánudag kl. 5, 7, 9 og 11.15 Nú fer sýningum að fækka. Blaóburðarfólk óskast! Austurbær Lindargata frá 40—63 Sóleyjargata Bergstaöastræti 1—57 1 Pfffl Það er ósköp erfitt ad skilja við pabba þegar maður er að byrja í skólanum. Marta litla heldur sér voteyg i pabba sinn, Philip Ricart, en nær sér fljótt á strik þegar hann er farinn. Stalla hennar, Sophie, sem er fimm ára, er alveg óbangin. í frönskum skóla á íslandi Iskólamálum er mikið haft á orði að hvert barn skuli fá kennslu við sitt hæfi. Þykir sjálfsagt. Erfiðleikar verða þó gjarnan þeg- ar börn flytja milli landa með foreldrum sínum, kannski oft á skólagöngunni, og þurfa að skipta um tungumál í viðbót við allt annað. í Reykjavík eru nokkur frönsku- mælandi böm og börn sem foreldrar vilja að haldi við frönskunni þótt þau líka séu í íslenskum skól- um. Meðal foreldra franskra barna eru starfsmenn í franska sendiráðinu, sem gengust fyrir því að koma upp skóla fyrir þá kennslu sem börnin þurfa. Var fræðsluráði skrifað og tók formaður fræðslu- ráðs og skólastjóri Álftamýrarskóla, Ragnar Júlíusson að sér að veita slikum sérskóla húsrými í Álftamýrarskóla. Við litum inn í kennslustund í Álftamýrarskól- anum, þar sem kennt er í franska skólanum kl. 1—5 daglega í stofu, sem ekki er notuð eftir hádeg- ið. Þrjár litlar telpur voru þar að vinnu með kenn- ara sínum, en eldri bðrnin voru ókomin eða ekki væntanleg, enda voru þau komin í haust í íslenska JT' Kennarinn Anita Creff skrifar frönsk orð á töfluna. skóla. Kennarinn er Anita Creff frá héraði frönsku íslandssjómannanna, Bretagne í Frakklandi. Hún er starfsmaður franska sendiráðsins, vinnur þar á morgnana en kennir í skólanum síðdegis. En hún hefur kennt hjá Alliance Francaise. Telpurnar þrjár voru að koma í skólann, sú yngsta, Marta, hélt fast í pabba sinn með vota hvarma, enda er hún að byrja skólagöngu og til viðbótar komnir blaðamenn. En þegar skilnaðar- stundin var afstaðin náði hún sér á strik. Faðirinn Philippe Ricart, vinnur á íslandi og móðirin er íslensk. Sessunautur hennar, Sophie, sem er 5 ára gömul, talar frönsku, dönsku og þýsku, þar sem móðir hennar er þýsk og faðirinn franskur, en það er allmikið viðfangsefni fyrir litla stúlku, þótt ekki bætist við íslenskur skóli. Þær voru í byrjenda- verkefnum, voru að læra franska söngva og teikna. Þriðji nemandinn er Valerie, 8 ára gömul. Hún hefur ærin verkefni, þvi hún fylgir kennsluefni franskra skóla. Fyrir hana fást send kennslugögn frá Frakklandi og hennar verkefni send utan. Hún er að læra stærðfræði, frönsku, málfræði o.fl. Fað- Valerie, sem er 8 ára gömul, grúflr sig yfir verkefnin sem hún fær send frá Frakklandi. Morgunblaðið /Júlfus. ir hennar starfar í sendiráði lands síns og fasta- punkt þarf hún að hafa í samfelldu skólanámi. Hún sagðist vera dugleg áð „travailler", eða vinna, en það orð nota frönsk börn um að læra í Frakk- landi. Það hlýtur þó að vera erfitt með stöllurnar í léttara leiknámi í kring í stofunni. Von var á Ellen, sem er 11 ára, klukkan þrjú, þegar hún væri búin í sínum íslenska skóla. En hún bætir þá við sig frönsku efni þarna. Sama höfðu þeir ætlað að gera strákarnir tveir sem eru 9 og 12 ára og eru líka í íslenskum skólum. Sagði kennarinn að þau börn hefðu verið búin að skipu- leggja vinnu sína í haust, en franski skólinn byrj- aði ekki fyrr en eftir áramótin, svo að það varð nokkuð laust (reipunum hjá þeim. Hún kvaðst ekki vita hvað yrði næsta haust, það færi eftir því hvernig þetta reyndist í vetur og hver áhuginn yrði. Ekki væri hægt að hafa of mörg börn og unglinga á svo misjöfnum aldri, sem öll þyrftu þá sérverkefni. En 7—8 börn væri viðráðanlegt. Anita Creff sagði að allt starfsfólk skólans væri ákaflega hjálplegt. Henni væri leyft að nýta ýmis gögn og einnig væri börnunum frá henni leyft að koma inn í einstakar kennslustundir, svo sem tón- listartíma í skólanum. Væri hún ákaflega þakklát fyrir viðtökurnar. Af venjulegri íslenskri forvitni var Valerie auð- vitað spurð hvernig hana hefði borið á Islands strendur. Það væri einfalt, sagði hún, kærastinn sinn væri íslenskur læknanemi, sem hún kynntist á írlandi. Hann fór svo með hana til í slands, þar sem hún fór að læra íslensku. Hefur lokið islenskunámi fyrir útlendinga í háskólanum og er nú bæði í námi og kennslu. - E.Pá. ./ ./

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.