Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
5
Ný íslensk kvikmynd í sjónvarpinu:
„Ekki ég“
í kvöld sýnir sjónvarpiö nýja ís-
lenska kvikmynd sem fjallar um
reykingar. Myndin, sem nefnist
„Ekki ég“, var gerð árin 1983—84
af kvikmyndafélaginu Njálu að
frumkvæði þáverandi Tóbaks-
varnanefndar.
Rauði þráðurinn í myndinni er
frásögn konu af því hvernig hún
kynntist reykingum óbeint í
móðurkviði og á barnsaldri,
byrjaði sjálf að reykja ung og
stóð frammi fyrir alvarlegum
reykingasjúkdómi um fertugt
svo að hún varð að velja milli
þess að halda áfram að spilla
heilsu sinni eða hætta að reykja.
Inn í frásögnina fléttast saga
skólabróður hennar sem byrjaði
að reykja um svipað leyti og hún
en fékk svo lungnakrabba á
besta aldri.
Heilbrigðisráðuneytið kostaði
gerð myndarinnar en eftirtaldir
aðilar styrktu sýningu hennar:
Daihatsuumboðið, Flugleiðir, ís-
lenska álfélagið, íslenska járn-
blendifélagið, Morgunblaðið,
Samband íslenskra samvinnufé-
laga, Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna, Verslunarmannafélag
Reykjavíkur, Verslunarráð Is-
lands og Vinnuveitendasamband
íslands.
Úr kvikmyndinni Ekki ég, sem sýnd verður I sjónvarpinu i kvöld.
Búvöruverðið:
Urskurdur
yfirnefndar
ekki kominn til
framkvæmda
EKKI ER vitað hvenær úrskurður
yfirnefndar um ágreining fulltrúa
bænda og neytenda í sexmanna-
nefnd um verðlagningu landbúnað-
arafurða þann I. mars sl. kemur til
framkvæmda. Yfirnefnd úrskurðaði
hækkun launa og flutningsliðar sem
svarar til u.þ.b. 4% hækkunar verðs
landbúnaðarvara frá og með 1.
mars.
Fulltrúar bænda í sexmanna-
nefndinni lögðu til að verð land-
búnaðarafurða yrði hækkað strax
15. apríl þegar úrskurður yfir-
nefndar féll ásamt álagi til næstu
verðlagningar til að vinna upp
hækkunina frá 1. mars. Telja þeir
heppilegra að dreifa hækkuninni
þannig á lengri tíma en að láta
hana koma alla til framkvæmda
með næstu verðlagningu þann 1.
júní. Svokallaðir neytendafulltrú-
ar, sem skipaðir eru af félags-
málaráðherra, töldu vafa leika á
um lögmæti þess að hækka verðið
á miðj.u verðtímabili. Lögmaður
sem félagsmálaráðuneytið leitaði
til vegna þessa máls taldi óheimílt
að hækka verðið fyrr en við næstu
verðlagningu.
Nú er orðið stutt í næstu verð-
lagningu sem taka á gildi þann 1.
júní, og skv. heimildum Mbl. má
því allt eins búast við aö verð
landbúnaðarvara verði óbreytt
þangað til og að yfirnefndarúr-
skurðurinn komí þá til fram-
kvæmda.
Vinsældalisti
rásar 2
NOKKRAR breytingar hafa orð-
ió á vinsældalista rásar 2 frá því
í fyrri viku og hefur vinsælasta
lagið nú dalað niður um tvö sæti.
en það lag, sem áður var næst-
vinsælast, er nú orðið í fyrsta
sæti. Ennfremur hefur lagið sem
var í þriðja sæti flutzt upp ura
eitt. Listinn er nú svohljóðandi:
1. (2) Wide Boy/
Mík Kershaw.
2. (3) Behind the Mask/
Greg Philliganes.
3. (1) We are the World/'
USA for Africa.
4 (8) Kiss Me (wíth your
Mouthj/Stephen „Tint-
in“ Duffy.
5. (-) A View to Kill/
Duran Duran.
6. (4) Some Like it Hot/
The Power Station
7. (7) The Beast in Me/
Bonnie Poínter
8 (5) Wélcome to the Pleas-
uredome/Frankie Goes
to Hoilywood
9. (9) Look Mama/
Howard Jones.
10. (-) La det Svrnge/
Bobby Socks.
Hvern vantar ekki ódýrt, ekki að tala um þegar það er líka gott
Á Vöruloftinu Sigtúni 3, 2. hæö, hafa orðið
miklar breytingar og þar er nú mjög góður
stórútsölumarkaður
Allt á börnin
í sveitina
Úlpur frá kr. 195
Peysur frá kr. 195
Gallabuxur frá kr. 99
Strigaskór kr. 299
Gúmmístígvél kr. 299
Blússur frá kr. 450
Iþróttasokkar frá 59
Jogging-gallar barnast. kr. 380
Bolir í urvali
A herra
Herrajakkaföt, allar stæröir. frá
Stakir jakkar kr. 1.575
Herrabuxur kr. 540
Herrablússur kr. 995
Skyrtur kr 190
Herra rúskinnsjakkar kr. 2.500
Stakir jakkar kr. 995
Samfestingar hvítir kr. 650
kr. 2.500—3.500
Vinnusloppar kr. 350
Vinnublússur kr. 350
Vinnubuxur kr. 450
Rafsuðugallar kr. 990
Sokkar kr. 50
Gummístígvél kr 350
Reiöstígvél kr. 389
A dömur
Dömublussur nyjar kr. 350—450
Rykfrakkar kr. 2.500
Dömusamfestingar kr. 900—1.550
Greiöslusloppar kr. 685
Kvenskór frá kr. 295
Dömubuxur frá kr. 450
Karnabær — Belgjageróin — Vöruloftið