Morgunblaðið - 10.05.1985, Blaðsíða 36
36
Stuttar
þingfréttir:
MORGUNBLAÐiD, NÖHTUUAGUH ltf. MAÍ 1986
Atkvæði um
útvarpslög
á mánudag?
Búízt var vid því að fnimvarp til
rýmri útvarpslaga, sem vóru á
dagskrá neóri deildar í g«r, kæmu
þar til atkvæða eftir aðra umr«ðu í
þessari fyrri þingdeild málsins, en
hennar er beðið með nokkurri eftir-
vcntingu vegna óvissu um afstöðu
nokkurra þingmanna, m.a. til breyt-
mgartillögu um jafnstöðu útvarps-
stöðva til auglýsinga. Þingdeildarfor-
seti tók máiið hinsvegar ekki til af-
greiðslu. Líkur benda til að þessi at-
kvKðagreiðsla verði ekki fyrr en nk.
mánudag, en þingfundir eru í dag.
Þingstörf í gær
Fundir vóru bæði í þingdeildum
og sameinuðu þingi í gær. Samein-
að þing afgreiddi fimm þigsálykt-
anir, sjá frétt hér á þingsíðu.
Efri deild samþykkti tvenn lög.
Annarsvegar um sláturafurðir.
Hinsvegar um sölu jarðarinnar
Hamars í Glæsibæjarhreppi. Þá af-
greiddi þingdeildin þrjú laga-
frumvörp til neðri deildar: 1) um
Verðlagsráð sjávarútvegsins, 2) um
meðferð opinberra mála, 3) um
kerfisbundna skráningu á upplýs-
ingum. í neðri deild.
I neðri deild flutti Alexander
Stefánsson, félagsmálaráðherra,
framsögu fyrir frumvarpi um
greiðslujöfnun fasteignaveðlána;
Ragnhildur Helgadóttir, mennta-
málaráðherra, framsögu fyrir
frumvarpi um Þjóðskjalasafn (sem
þegar hefur fengið afgreiðslu í efri
deild), og Halldór Ásgrímsson,
sjávanitvegsráðherra, framsögu
fyrir frumvarpi um fiskveiðasjóð
(sem einnig hefur fengið afgreiðslu
í efri deild). Þá var einnig rætt um
frumvarp að barnalögum og frum-
varp um meðalsterkt öl.
VaraþingmaÖur
KRISTÍN TRYGGVADÓTTIR,
fræðslufulltrúi, hefur tekið sæti á
Alþingi í fjarveru Kjartans Jó-
hannssonar (A).
J’riðarfræðsla
Frá því var greint á þingsíðu
Mbl. í gær að Guðrún Agnarsdóttir
(Kvl.) o.fl. þingmenn hefðu flutt
tillögu til þingsályktunar um frið-
arfræðslu á dagvistarheimilum, í
runnskólum og framhaldsskólum.
prentun þingskjalsins féll niður
nafn eins flutningsmanns, Kristín-
ar S. Kvaran (BJ).
Málefni myndlistarmanna
SVAVAR GESTSSON o.fl. þing-
menn Alþýðubandalags hafa lagt
fram tillögu til þingsályktunar um
málefni myndlistarmanna. Tillag-
an felur það í sér, ef samþykkt
verður, að ríkisstjórnin skuli skipa
í samvinnu við Samband íslenzkra
myndlistarmanna nefnd er vinni að
tillögum um úrbætur í hagsmuna-
málum myndlistarmanna. I tillögu-
greininni er m.a. fjallað um launa-
sjóð fyrir myndlistarmenn, samn-
ingu frumvarps um höfundarrétt
myndlistarmanna o.fl.
Þingmaður í umræðu um bjórfrumvarpið:
Ráða umboðshagsmun-
ir þingmanna ferðinni?
— það hvarflar að manni að opinberir fréttamenn þiggi mútur
Olafur Þ. Þórðarson (F) lét að því liggja í ræðu á Alþingi í g«r að
Ríkisútvarp, hljóðvarp og sjónvarp, birtu aðeins aðra hlið bjórmálsins,
„káta menn og glaða að drekka úr bjórkollum", en hinsvegar ekki
„menn illa á sig komna á leiðinni heim til sín ..., menn, sem þurfa að
fara í afvötnun ..., slys sem orðið hafa í umferðinni vegna þess að menn
hafa neytt áfengis“.
Þingmaðurinn minnti sér-
staklega á kynningu ríkisfjöl-
miðla á svokölluðu „bjórsam-
lagi“ og sagði orðrétt: „Stundum
hvarflar að manni, þegar menn
sjá svona auglýsingar, hvort það
sem hefur verið nánast óþekkt í
íslenzku þjóðlífi til þessa, að
opinberir starfsmenn þægju
mútur. Stundum hvarflar það að
manni, að e.t.v. eigi það sér
stað.“
Þingmaðurinn sagði orðrétt:
„Getur verið að mönnum sé
það ekki Ijóst að alls staðar, þar
sem sala fer fram á áfengi og
tóbaki hafa söluaðilar þessara
vörutegunda reynt með ýmsu
móti að hafa áhrif á æðstu
starfsmenn í viðkomandi ríkjum
og borið á þá fé. Og borið á þá fé
til að breyta löggjöf eða koma í
veg fyrir að löggjöf verði sam-
þykkt. Þetta vita heilbrigðisyf-
irvöld Bandaríkjanna og hafa af
þeirri ástæðu alveg nuskunnar-
laust úthrópað það lið, sem þeir
kalla þar áfengisauðmagnið.“
Síðan vék þingmaðurinn að
þeim, sem flytja bjórfrumvarpið,
en þeir eru: Jón Baldvin Hanni-
balsson (A), Ellert B. Schram
(S), Guðmundur Einarsson (BJ,
Guðrún Helgadóttir (Abl) og
Friðrik Sophusson (S), og sagði:
„Það skyldi þó ekki vera að
einhver af þessum flutnings-
mönnum hefði búið sig undir það
að þiggja umboðslaun fyrir
áfengt öl, ef það verður selt hér á
landi? Það skyldi þó ekki vera að
að búið væri að ganga frá samn-
ingum um slíka hluti? Það er
ákaflega bagalegt að þeir séu
ekki hér í salnum, því það gæti
farið svo að það sæist á
mönnum, hvort aðdróttanir
væru réttar eða rangar; það
sætu ekki sterkari karakterar en
svo undir.“
Þingdeildarforseti, Ingvar
Gíslason, gerði ekki athugasemd
við ummæli þingmannsins,
hvorki um fréttafólk ríkisfjöl-
miðla né flutningsmenn frum-
varpsins.
Annarri umræðu um frum-
varp til laga um heimild til að
brugga og selja meðalsterkt öl
(4—6%) var fram haldið stutta
stund síðdegis í neðri deild í gær.
Ólafur Þ. Þórðarson (F) lauk
ræðu sinni, sem hófst á fundi
fyrr í vikunni, en hann mælti
fyrir nefndaráliti tveggja af sjö
þingnefndarmönnunum, sem um
frumvarpið fjölluðu, og legjgja til
að það verði fellt. Þegar Olafur
hafði lokið máli sínu, tók forseti
málið aftur af dagskrá, en búizt
var við að það kæmi enn á ný á
dagskrá á kvöldfundi í gær. Ekki
er þó búizt við atkvæðagreiðslu
eftir aðra umræðu fyrr en í dag,
eða á mánudag.
Fimm þingsályktanir
Sameinað þing saraþykkti fimm
þingsályktunartillögur í g«r. Þessar
viljayfírlýsingar Alþingis fara hér á
eftir, en þcr verða nú sendar ríkis-
stjórn til fyrirgreiðslu.
Skipulag almenningssam-
gangna á höfudborgarsvæðinu
„Alþingi ályktar að fela sam-
gönguráðherra ' samráði við Sam-
tök sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu að láta fara fram könnun
á hagkvæmni þess að samræma
rekstur almenningsfarartækja á
höfuðborgarsvæðinu.
Könnuð verði almenn og þjóð-
hagsleg hagkvæmni slíks sameig-
inlegs samgöngukerfis og gerð
langtímaáætlana um almenn-
ingssamgöngur á svæðinu.
Kostnaður við slíka athugun og
áætlunargerð greiðist úr ríkis-
sjóði.“
Kerfísbundin leit
að brjóstkrabbameini
„Alþingi ályktar að skora á rík-
isstjórnina að beita sér fyrir því
svo fljótt sem verða má að komið
verði á kerfisbundinni leit að
brjóstkrabbameini hjá konum
með brjóstmyndatöku (mammo-
grafi).“
Varnir gegn físksjúkdómum
í fískeldisstöðvum
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að gera ráðstafanir til
að fisksjúkdómarannsóknir og
varnir gegn fisksjúkdómum í fisk-
eldisstöðvum og veiðivötnum verði
efldar, m.a. með því að gera það
mögulegt að ráðið verði hæft
starfsfólk í þessu skyni."
Fjárfestingar erlendra
hér á landi
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta endurskoða
gildandi lagaákvæði um fjárfest-
ingar erlendra aðila í atvinnufyr-
irtækjum hér á landi.“
Endurreisn Viðeyjarstofu
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að láta gera áætlun um
endurreisn Viðeyjarstofu og lend-
ingarbætur á eynni í samráði við
borgarstjórn Reykjavíkur. Áætl-
unin verði við það miðuð að verk-
inu verði að fullu lokið fyrir 18.
ágúst 1986. Kostnaðaráætlun
verksins verði lögð fram í tæka tíð
fyrir afgreiðslu fjárlaga fyrir árið
1986.“
Hótel Stefanía við Hafnarstrcti á Akureyri I hjarta bæjarins.
Horgunblaðið/Árni Johnsen
Hótel Stefanía
opnað á Akureyri
HÓTEL STEFANÍA, nýtt 20 herbergja hótel, mun vcntanlega opna á
Akureyri 17. maí nk. við Hafnarstræti 85, næsU húsi við Hótel KEA.
Unnið er af fullum krafti við lokafrágang Stefaníu, en þar eru rúmgóð
herbergi með vönduðum innréttingum og eru flest herbergin með sér-
stöku baðherbergi, en lagt er fyrir síma og sjónvarpi á þeim öllum.
Stefán Sigurðsson fram- Allar innréttingar í hótelinu eru
kvæmdastjóri Hótels Stefaníu nýjar, setustofa og borðstofa
sagði í samtali við Mbl. fyrir verða í hótelinu, en veitingastaðir
skömmu að hann hefði mikinn eru allt um kring í miðbæ Akur-
hug á að opna 17. maí, en um leið eyrar. Mikill skortur hefur verið
vitnaði hann í samnefnt ljóð afa um árabil á gistirými á Akureyri.
síns, Stefáns frá Hvítadal:
„Þann 17. maí var sólskin
og suðræn angan í blænum.“