Morgunblaðið - 10.05.1985, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAl 1985
Uppstokkun í leyni
þjónustu Bretlands
Lundúnum, 9. maí. AP.
MARGARET Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands, greindi frá því
(;en(;i
GJALDMIÐLA
Nokkurt fall
á dollaranum
liondon, 9. maí. AP.
DOLLARINN féll allnokkuð í
verði í dag og er það rakið til
þess, að litlar fréttir voru af
þeim þáttum, sem mest áhrif
hafa á gengið hverju sinni. l>ar
er m.a. átt við fréttir af vaxta-
málum, peningaframboði og
efnahagslegum atriðum.
Féll dollarinn næstum um
þrjú sent gagnvart pundinu en
í kvöld fengust fyrir pundið
1,2388 dollarar á móti 1,2097 í
gær. Gengi annarra gjald-
miðla var þetta gagnvart doll-
ar:
3,1230 v-þýsk mörk (3,1935)
2,6285 svissneskir frankar
(2,6845) 9,5400 franskir frank-
ar (9,7275) 3, 5270 hollensk
gyllini (3,6045) 1.993,00 íUlsk-
ar lírur (2.026,50) 1,3785 kan-
adískir dollarar (1,3845).
Gullið hækkaði nokkuð í
verði og fengust í kvöld fyrir
únsuna 315 dollarar en 313 í
gær.
í breska þinginu í dag, að hún hefði
ákveðið uppstokkun í leyniþjón-
ustu landsins. Hún kvaðst hafa
tekið þessa ákvörðun eftir að hún
fékk í hendur skýrslu rannsóknar-
nefndar, þar sem fram kemur, að
fyrrum starfsmaður leyniþjónust-
unnar, Michael Bettaney, sem
dæmdur hefur verið fyrir njósnir I
þágu Rússa, hafi verið drykkju-
maður og oft látið í það skína, að
hann væri gagnnjósnari.
í skýrslunni segir, að yfir-
mönnum leyniþjónustunnar hafi
orðið á mistök. Þeir hafi látið
undir höfuð leggjast að rannsaka
háttalag Bettaneys þegar hann
var farinn að drekka heila viskí-
flösku á dag. Thatcher sagði að
um mjög alvarleg mistök væri að
ræða og breytingar þær, sem hún
hefði ákveðið, miðuðu að því að
atvik af þessu tagi endurtæki sig
ekki.
Bettaney var handtekinn í
september 1983 og í fyrra var
hann fundinn sekur um að hafa
njósnað fyrir Rússa á tíu mánaða
tímabili fyrir handtökuna. Hann
sendi m.a. leyndarskjöl í sendi-
ráð Sovétríkjanna í Lundúnum,
en Rússar bitu ekki á agnið. Þá
hugðist hann fara til Vínar og ná
þar sambandi við háttsetta
KGB-njósnara, en hann var
handtekinn daginn áður.
Páfastóll:
AP/Símamynd
Ronald Reagan Bandaríkjaforseti ásamt Marío Soares, forsætisráðherra Portúgals, sem sést hér veifa til frétta-
manna. Mynd þessi var tekin í San Bento, þar sem fundur þeirra fór fram í gær. Portúgal er síðasta landið, sem
Bandaríkjaforseti heimsækir í Evrópufor sinni nú.
Samstaða Vestur-
landa mikilvægust
— sagði Reagan forseti í ávarpi sínu til þjóðþings Portúgals
Þagnarkvöð lögð
á Leonardo Boff
Vatikaiiinu, 9. maí. AP.
PÁFASTÓLL lagði í gær þagnarkvöð á brasilíska Fransiskumunkinn séra
Leonardo Boff, sem verið hefur einn helsti málsvarí svonefndrar „frelsun-
arguðfræði", sem kennir að kirkjan eigi að hafa afskipti af stjórnmálabar-
áttu.
Guðfræði þessi nýtur mikillar
hylli meðal presta í þriðja heimin-
um, einkum í Suður-Ameríku, en
hefur sætt mikilli gagnrýni innan
rómversk-katólsku kirkjunnar á
Vesturlöndum.
Þagnarkvöðin felur í sér, að
séra Boff er um óákveðinn tíma
óheimilt að tala eða skrifa opin-
berlega. Segir Páfastóll, að boð-
skapur hans sé „hættuleg villu-
kenning".
í yfirlýsingu, sem Boff sendi frá
sér í Rio de Janeiro í dag, kveðst
hann ekki hafa fallið frá skoðun-
um sínum, en segist ætla að virða
bannið. „Eg kýs fremur að eiga
samleið með kirkjunni, en að
ganga einn með guðfræði mína,“
sagði hann.
Liwtabon, 9. maí. AP.
RONALD REAGAN Bandarfkjaforseti lagði áherzlu á samstöðu Vest-
urlanda í ávarpi, sem hann flutti á þjóðþingi Portúgals í dag. Jafn-
framt bar hann lof á portúgölsku þjóðina fyrir að hafa snúið baki við
einræði á síðasta áratug og kvaðst meta að verðleikum áframhaldandi
þátttöku Portúgala í Atlantshafsbandalaginu.
Þingmenn kommúnista yfir-
gáfu þingsalinn, áður en Reagan
flutti ávarp sitt, en almennt var
máli forsetans mjög vel tekið af
þingheimi. Reagan lýsti Sovét-
ríkjunum sem ógnun við heims-
friðinn og því yrðu vestræn ríki
að halda vöku sinni og styrk til
þess, að aldrei framar þyrfti til
þess að koma „að beita þyrfti
valdi til að tryggja frelsið í
heiminum".
Reagan bar saman þjóðfélög
með frjálsu markaðsskipulagi og
þjóðfélög kommúnista og sagði,
að það væri í löndum kommún-
ista, sem „efnahagskerfið staðn-
ar, tæknin dregst aftur úr og
fólk er kúgað og því óánægt með
líf sitt.“
Fyrr um daginn átti Reagan
Suður-Afríka:
Fjórir
drepnir
í óeirðum
Peking:
Mikil verðhækkun
á „munaðarvörum“
Stefnt ad því að markaðsöflin verði látin ráða ferðinni
Peking, 9. nuí. AP.
PEKINGBÚAR keyptu í morgun allt það kjöt og allan þann fisk, sem
fáanlegur var í verslunum borgarinnar, en á morgun verða þessar vörur og
margar aðrar miklu dýrari, hækka jafnvel sumar um allt að 300%. Stafa
verðhækkanirnar af því, að stórlega verður dregið úr niðurgreiðslum ríkisins
a kjöti, eggjum og fiski.
Ekki er búist við, að fram-
færslukostnaður hækki mjög mik-
ið vegna þessara hækkana enda
lifa flestir Kínverjar að mestu á
kornvörum og grænmeti og á kjðt
og fisk er litið sem munað. Han
Boping, aðstoðarborgarstjóri í
Peking, sagði á fréttamannafundi,
að verð á 1800 vörutegundum, sem
ekki teldust til beinna lífsnauð-
synja, myndi hækka að meðaltali
um nokkru meira en 50%. Sagði
hann, að þessar vörur hefðu verið
fáránlega ódýrar vegna gífurlegra
niðurgreiðslna, sem ríkið gæti
ekki lengur með góðu móti staðið
undir.
„Hér er um að ræða stórt skref í
umbótaátt," sagði Han, „og að því
stefnt, að markaðsöflin ráði verð-
inu til hagsbóta fyrir efnahagslíf-
ið í landinu." Greint var frá verð-
hækkununum sl. miðvikudag og
fylgdi það með, að hver borgarbúi
fengi launauppbót, sem svarar til
110 ísl. kr., tii að vega upp á móti
þeim að nokkru.
Breytingar i verðlagningarmál-
um eru viðkvæmt og erfitt mál
fyrir kínversk stjórnvöld, sem
stefna að því að skera niður mikið
og flókið kerfi niðurgreiðslna og
styrkja og láta markaðsöflin um
að ákveða hvað skuli framleitt og
hvað ekki. Við það er hins vegar
nokkur ótti, að þessar breytingar
geti kynt undir verðbólgu og þess
vegna munu 11.000 eftirlitsmenn
fara um alla Pekingborg og fylgj-
ast með því, að verslunarstjórar
fari að lögum og reyni ekki að
auðgast með því að hækka verðið á
öðrum vörum en þeim, sem verð-
hækkunin tekur til.
Sams konar umbætur í verð-
lagsmálunum hafa áður orðið í 22
borgum í Kína, þar á meðal í
Kanton, Shanghai og Wuhan, og
sagði Han Boping, að árangur
hefði ails staðar orðið sá, að fram-
leiðslan og framleiðnin hefðu auk-
ist.
Jóhunoiarborg, 9. nui. AP.
HVÍTUR hermaður og fjórir
blökkumenn, þar af ung stúlka,
biðu bana í óeirðum í Suður-Afríku
í dag. Óeirðir þessar urðu ekki á
einum stað, heldur mörgum.
Skýrðu lögregluyfirvöld frá þessu í
dag. Óeirðirnar eru taldar merki
um, að andstaðan við aðskilnað-
arstefnu stjórnarinnar fari nú mjög
harðnandi.
Herlið og lögreglumenn héldu
áfram handtökum í mörgum
borgum í austurhluta landsins.
Óeirðirnar voru þó mestar í
grennd við Jóhannesarborg,
einkum í Soweto, borgarhverfi
blökkumanna suðvestur af borg-
inni, þar sem tveir voru drepnir.
fund með Mario Soares, forsæt-
isráðherra Portúgals, og á fundi
með fréttamönnum þar á eftir
lýsti hann Portúgal sem „stað-
föstum og mikils metnum
bandamanni". Heimsókn forset-
ans til Portúgals lýkur a morg-
un, föstudag, og heldur hann þá
þaðan heim til Washington.
Veður
víða um heim
Lagit Hssst
Akureyri 9 léttsk.
Amsterdam 10 18 heióskirt
Aþena 17 29 heióskfrt
Barcelona 16 lóttsk.
Berlín 10 18 skýjaó
BrUaael S 15 skýjaó
Chícago 9 23 heióskírt
Dublín 6 12 skýjaó
Feneyjar 14 þokum
óóa
Frankturt 5 21 rigning
Genf 7 11 rigning
Heleinki 2 11 heióskirt
Hong Kong 24 29 heiðskirt
Jerúsalem 19 26 skýjaó
Kaupm.höfn 7 15 skýjaó
Lissabon 10 18 heióskirt
London 11 17 skýjað
Los Angeles 13 21 skýjaó
Luxemborg 9 alskýjaó
Mataga 21 heiðsk.
Mallorca 19 Mttsk.
Miami 21 26 skýjaó
Montreal 0 18 heióskfrt
Moskva 9 15 skýjaó
New York 12 19 heiósk.
Osló 5 18 heiósk.
Paris 10 14 •kýjaó
Peking 14 27 skýjaó
Reykjavfk 7 skýjaó
Rio de Janeiro 17 31 heiósk.
Rómaborg 8 18 skýjaó
Stokkhólmur 8 18 skýjaó
Sydney 11 21 heiósk.
Tókýó 15 23 heiósk.
Vínarborg 8 19 skýjaó
Þórshófn 8 19 alskýjaó