Morgunblaðið - 10.05.1985, Side 41
MQRGVNBLAfftÐ, jpSTjUQAQUR.10. MAÍ1985.
Fangar maí-
mánaðar 1985
Mannrcttindasamtökin Amn-
esty International vilja vekja at-
hygli almennings á máli eftirtal-
inna samviskufanga í maí. Jafn-
framt vonast samtökin til að fólk
sjái sér fært að skrifa bréf til hjálp-
ar þessum föngum og sýna þannig
í verki andstöðu við að slík mann-
réttindabrot séu framin.
NÍGERÍA. Dr. Tai Solarin er 63
ára gamall kennari, gagnrýn-
andi og blaðamaður. Hann var
handtekinn á heimili sínu af
lögreglunni í Nígeríu 12. mars
1984. Engin opinber skýring var
gefin á handtökunni en hún er
álitin vera í tengslum við grein-
ar sem Dr. Solarin hefur skrifað
og birtust í blöðunum Sunday
Tribune (26. feb. 1984) og Nigeri-
an Tribune (12. maí 1984). í
greinunum kom fram gagnrýni á
stefnu stjórnarinnar. Eiginkona
Dr. Solarins sendi „habeas corp-
us“ beiðni til yfirvalda og var
handtaka hans úrskurðuð
ólögmæt af Hæstarétti í Lagos
og hann þar af leiðandi látinn
laus. Hann var handtekinn sam-
dægurs (24. apríl 1984) og hefur
verið í haldi síðan án dóms eða
laga. Yfirvöld segja að hann sé í
haldi af öryggisástæðum.
Amnesty-samtökin álíta Dr. Sol-
arin vera í haldi vegna skoðana
sinna.
JÓRDANÍA. Hashim Gharaibeh
er 37 ára gamall háskólanemi og
ríkisstarfsmaður. Hann afplán-
ar 10 ára fangelsisdóm fyrir
þátttöku í kommúnistaflokk
Jórdaníu. Samkvæmt lögum
Jórdaníu er kommúnistaflokkur-
inn bannaður sem og öll starf-
semi og rit sem að honum lúta.
Hægt er að dæma menn í allt að
10 ára þrælkunarvinnu við brot
á þessum lögum. Hashim
Gharaibeh var handtekinn í
mars 1978 og dæmdur af herrétti
i Amman. Hann hefur ekki rétt
til að áfrýja dómnum. Amn-
esty-samtökin álíta Hashim
Gharaibeh vera í haidi vegna
stjórnmálaskoðana sinna.
KÚBA. Dr. Ricardo Bofill Pagé, er
félagsfræðingur og fyrrverandi
prófessor. Hann var handtekinn
24. september 1983 í Havana og
fréttir herma að hann hafi feng-
ið 12 ára dóm. Handtakan virðist
vera í tengslum við fund sem Dr.
Ricardo Bofill Pagés átti við tvo
franska blaðamenn 21. septem-
ber 1983 en þeir voru einnig
handteknir og yfirheyrðir. Yfir-
völd segja ástæðuna fyrir hand-
tökunni vera „andbyltingarlegt
athæfi" Dr. Ricardo Bofill Pagés.
Hann hefur verið handtekinn
áður, 1967 fyrir stjórnmálaskoð-
anir sínar en þá sat hann inni í 5
ár og 1980 fyrir að eiga erlendan
gjaldeyri en þá sat hann inni i 2
ár. Honum hefur mörgum sinn-
um verið neitað um leyfi til að
yfirgefa landið og flytja til eigi-
konu sinnar sem býr erlendis.
Amnesty-samtökin álíta ástæðu
fyrir handtöku Dr. Ricardo Bof-
ill Pagés vera andstöðu hans við
kúbönsku stjórnina.
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um leið
mannréttindabaráttu almennt,
eru vinsamlegast beðnir um að
hafa samband við skrifstofu ís-
landsdeildar Amnesty, Hafnar-
stræti 15, Reykjavík, sími 16940.
Þar fást nánari upplýsingar sem
og heimilisföng þeirra aðila sem
skrifa skal til. Einnig er veitt
aðstoð við bréfaskriftir ef óskað
er.
1. maí í Stykkishólmi
Stykkishólmi, 2. maí.
Verkalýðsfélag Stykkishólms
hélt 1. maí hátíðlegan í tvennum
tilgangi i gær. í fyrsta lagi til að
minnast þess að 70 ár eru liðin frá
stofnun félagsins og hinsvegar að
minnast starfsins undanfarið,
staldra við og horfa til baka að
unnum sigrum og tapi. Á þessum
hátíðafundi mættu yfir 200 manns
og var hann mjög athyglisverður.
Fyrsti formaður félagsins var
Baldvin Bárðdal og var þess sér-
staklega minnst og hans starfa
hér í Hólminum að ýmsum mál-
um. Þá voru 4 fyrrum formenn fé-
lagsins heiðraðir, þeir Jóhann
Rafnsson, Kristinn B. Gíslason,
Ingvar Ragnarsson og Erlingur
Viggósson og voru þeir viðstaddir
og tóku við viðurkenningum úr
hendi formannsins, Einars Karls-
sonar, en það voru fánar félagsins
og á fót fánastengur voru rituð
nöfn þeirra og þakkir fyrir vel
unnin störf.
Það fór ekki milli mála að
þrengst hafði mjög um kjör fé-
lagsmanna undanfarið og lagði
Ásmundur Stefánsson forseti ASl,
sem var ræðumaður dagsins,
áherslu á að leiðréttingar þyrfti
við og þær þyrftu að vera veru-
legar ef miðað væri við ýmsar aðr-
ar launagreiðslur á almennum
markaði og tekjur yfirleitt. Taldi
að félagar yrðu að búa sig undir
hörð átök í þessum efnum. Ávörp
voru flutt og ýmis atriði voru svo
sem saga félagsins sögð í stórum
dráttum. Leikfélagið Grímnir
flutti atriði og Lúðrasveit Stykk-
ishólms lék undir stjórn Daða
Einarssonar. Á eftir bauð Verka-
lýðsfélagið öllum viðstöddum
kaffiveitingar af mikilli rausn og í
lokin flutti Einar Karlsson þakkir
til bæjarbúa, félaga og allra
þeirra er veitt hefðu félaginu
brautargengi, minntist látinna
forystumanna með þökk.
Árni
„Fótabót“
NÝLEGA hóf starfsemi fótaaðgerð-
arstofa á Laugavegi 15, 2. hæð, undir
nafninu „Fótabót".
Hjá „Fótabót“ er hægt að fá auk
almennrar fótsnyrtingar sérstaka
meðhöndlun við niðurgrónum
nöglum, fótvörtum og fótsvepp, og
líkþorn eru fjarlægð.
Eigendur stofunnar eru Hanna
Kristín Pétursdóttir fótasérfræð-
ingur sem lokið hefur námi frá
Fodplejeskolen í Kaupmannahöfn
og Sigurdís Sigurbergsdóttir
snyrti- og fótasérfræðingur.
Hanna Kristín Pétursdóttir fótasér-
fræðingur.
il
Innsigli rofið á bögglum Jónasar frá Hriflu
í tilefni aldarafmælis Jónasar
Jónssonar frá Hriflu voru opnaðir
tveir bögglar, sem hafa verið í vörslu
Þjóðskjalasafnsins. í þeim voru
heillaskeyti og undirskriftir til
stuðnings Jónasi og fjölskyldu hans
1931.
„Jónas hefur eflaust látið inn-
sigla undirskriftirnar af tillits-
semi við þá sem skrifuðu undir.
Þetta var stórpólitískt mál á sín-
um tíma og þarna eru undirskrift-
ir um tvöþúsund og eitthundrað
manns víðsvegar af landinu,"
sagði ólafur Ásgeirsson, þjóð-
skjalavörður, þegar hann var
spurður um hvað lægi að baki því
að þessi skjöl væru innsigluð.
Peraonitfi* ^ón«««r J<Sn»«o«»r frd
H#illBOlt«yti og urxlifskrirtir frS 1931-
|.<esai aendln« er loiruft frass til 1. »«*
H4 « J. J. lOO ára afmrli.
»|OOSK|ALA5AFN 1SLANDS
MTKIAVlK
Grásleppukarlar fá vatn
MorRunblaðiö/Bjarni
VATNSVEITA Reykjavikur hefur undanfarið verið að leggja vatn til grásleppukarlanna við Ægissíðu.
Myndin er tekin er verið var að setja búkka við skurð í malbikinu á Ægissíðu.
lceFishCo
Islenskir
sjávarútvegsráðgjafar
Stofnfundur fyrirtækis sem hefur það að markmiði að afla verkefna á erlendum vettvangi verður haldinn að Hótel Loftleiðum (fyrirlestrarsal) á morgun 11. maí kl. 14.00.
Allir áhugamenn eru hvattir til þess að koma á fundinn. Nánari upplýs- ingar eru veittar í símum: 44033 og 687311.
Undirbúningsstjórn ■