Morgunblaðið - 10.05.1985, Side 47

Morgunblaðið - 10.05.1985, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAl 1985 47 Lára Þorsteins- dóttir — Minning annarri eins manngæsku og ríkir á því heimili. Þar dvelja 4 til 5 fjölfötluð börn allan veturinn og hugsa þau hjónin og starfsfólk þeirra um börnin eins og væru þau þeirra eigin. Gunnar var mjög hændur að þeim hjónum og voru þau honum eins og aðrir foreldrar. Um helgar var Gunnar heima hjá foreldrum sínum í Hafnar- firði, og hlakkaði hann alltaf til að fara heim til mömmu og pabba. Gerðu þau allt, sem í mannlegu valdi stóð til að láta honum líða sem best. Var það þeirra mesta gleði að geta gert honum lífið sem bærilegast. Ast þeirra og um- hyggja gerðu honum lífið léttbær- ara og naut hann í raun meiri gleði og ánægju í lífinu en margur, sem heilbrigður er. Jóhannes bróðir hans og Guð- rún voru honum mikils virði. Leit hann mjög upp til stóra bróður, sem gerði allt sem hann gat til að gleðja hann. Hafði hann mikla ánægju af að fylgjast með litlu bróðursonum sínum þremur, sem hann umgekkst mikið. Nú er frændi minn laus við hjólastólinn sinn. Ég trúi því, að hans bíði betra lif í fullkomnari heimi en þeim, sem við þekkjum. Hvaða tilgang hefði öll þessi bar- átta annars? Ég bið Guð að hugga og blessa systur mína og fjölskyldu hennar. Þeirra styrkur verður fögur minn- ing um góðan dreng. Hildur Hálfdanardóttir Icelandic Freezing Plante Limited: Selt fyrir tæpar 270 milljónir frá áramótum aukning í magni og verðmætum frá fyrra ári SALA Icelandic Freezing Plants Limited, verksmiðju- og sölufyrir- tækis Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, nam 267,5 milljónum króna fyrstu fjóra mánuði þessa irs og var 6% meiri en á sama tima á síðasta ári. I magni jókst salan um 2,7%. Olafur Guðmundsson, framkvsmda- stjóri fyrirtækisins, sagði i samtali við Morgunblaðið, að eftir nokkra byrjunarörðugleika væri nú að birta yfír afkomunni. Ólafur sagði, að fyrstu fjóra mánuði síðasta árs hefði verið tek- ið á móti tæpum 3.000 lestum af fiski að heiman og á sama tíma nú væri búið að taka á móti um 3.100 lestum. Sala flaka hefði á þessum tíma nú numið um 170 milljónum króna en sala verksmiðjufram- leiddrar vöru um 100 milljónum króna. Nú væri verið að koma upp nýrri verksmiðju á góðum grund- velli. Vinnsla hefði hafizt í fyrra og byrjunin hefði verið dálitið þung. Þeir erfiðleikar væru nú að baki og framtiðin orðin nokkuð bjartari. Gjaldeyrisþróunin hefði hins vegar verið fyrirtækinu geysilega andstæð. Þegar bygging verksmiðjunnar hefði verið ákveð- in, hefðu fengizt 2,40 dollarar fyrir pundið, en nú 1,20. Það gæfi því augaleið að þetta hefði valdið erfiðleikum. Fyrst og fremst framleiddu frystihús á íslandi helzt ekki fyrir Bretlandsmarkað undir svona kringumstæðum. Þvf hefði fyrirtækið fengið minna af fiski en ella. Það væri reyndar ekki bara vegna gengisþróunar heldur líka vegna þess að lftið hefði fiskazt af ýsu undanfarið ár. Nú færi hún svo fyrst og fremst á Bandaríkin. Alltaf væri talsvert af framleiðslu frystihúsanna, sem ekki gengi á Bandarikjamarkað, eins og blokkir og það væru sú vara, sem nú væri unnin hjá fyrir- tækinu og skipti sífellt meira máli. Andvirði verksmiðjufram- leiddra vara væri nú 36% af heild- arsölunni. Lára Þorsteinsdóttir andaðist í Borgarsjúkrahúsinu laugardaginn 4. maí. Hún var fædd í Reykjavik 25. júní 1908, foreldrar hennar voru Björnína Kristjánsdóttir og Þorsteinn Sæmundsson sjómaður. Mjög ung var hún sett í fóstur að írafelli í Kjós til sæmdarhjónanna Guðrúnar og Guðmundar sem þar bjuggu og virti hún þau sem sína eigin foreldra. Ung að árum giftist hún Har- aldi Jóhannssyni, stýrimanni, og átti með honum 6 börn, Guðrúnu, Björn, Guðmund, Einar, Jóhann og dóttur eina sem þau misstu kornunga. Þau slitu samvistum fyrir mörgum árum. Lét Lára sér mjög annt um börnin, enda þau vakin og sofin um velferð hennar, og fjölskyldan samhent. Lára var mjög jákvæð, hún sá ævinlega björtu hliðarnar á lífinu og gleymdi þeim verri. Um 20 ár hefur hún unnið í sælgætisgerð- inni Nóa og þar hefur hún örugg- lega verið góður starfskraftur, en ég held að ánægjulegasti tíminn í lífi hennar hafi verið er hún kynntist vini sínum og sambýl- ismanni, Sigurði Hannessyni, fyrir nokkrum árum. Þau áttu svo margt sameiginlegt, ferðuðust um landið og skemmtu sér, og nutu þess að vera til. En svo kom áfallið þegar hún fyrir rúmu ári missti hann. Hann dó í mars 1984. Eftir það fór henni að hraka mjög mikið. Nú er komið að leiðarlokum. Mágkona mín er komin yfir móðuna miklu og henni eru þakkaðar margar ánægju- stundir. Öllum afkomendum hennar votta ég samúð mína og bið góðan Guð að blessa þeim minningarnar. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ (V.Briem.) ÁJ. SJOMANNATILBOÐ jakkaföt á lokaballið Jakkaíöt með vesti Venjulegt verð ^#§07- Okkar verð 5.990,- Nú ber vel í veiði. Ath.. Enginn lcvóti á jakkafötum. Tilboðið gildir til 18. maí. SNORRABRAUT 56 SIMI 1 35 05 GLÆSIBÆ SIMI 3 43 50 AUSTURSTRÆTIÍO SÍMI 27211

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.