Morgunblaðið - 10.05.1985, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
49
Hvað um
— eftir Normu
E. Samúelsdóttur
Hér á íslandi voru stofnuð árið
1978 samtök fólks með mígren-
sjúkdóm. — Markmið félagsins
var m.a. að leitast til þess að
lækning, aðstaða og fræðsla yrðu
bætt.
Hugleiðingar mínar, eins af
stofnfélögunum, nú, sjö árum síð-
ar, eru nokkuð blendnar. til hvers
var þetta allt saman? Höfum við
gengið til góðs ...
... Þrisvar gengið á fund heil-
brigðisráðherra; þriggja ráðherra,
vilyrði og jafnvel undirritað ráð-
herrabréf þar sem farið er fram á
að aðstaða fyrir mígrensjúklinga
yrði opnuð hið bráðasta ... dag-
sett fyrir fimm árum... En sko,
þetta með fjármagn ...
Mín skoðun er sú að það vanti
ýmislegt annað en fjármagn, til
dæmis vanti vilja.
... Fengið leyfi fyrir aðstöðu tl
að hafa börn í gæslu á vistheimili
Lúðrasv. Reykjavíkur:
Vorferð austur
fyrir Fjall
HELGINA 11.—12. maí nk. mun
Lúðrasveit Reykjavíkur fara í fyrstu
vorferð þessa starfsárs. Ferðinni er
heitið um undirlendi Suðurlands en
hápunktur ferðarinnar eru hljóm-
leikar á Hvolsvelli laugardaginn 11.
maí kl. 21.00. Efnisskráin er mjög
fjölbreytt og ættu allir að geta haft
gaman af.
Lúðrasveit Reykjavíkur verður
63 ára í júlí nk. og stendur því á
gömlum og traustum merg.
Stjómandi hennar nú er Stefán Þ.
Stephensen.
Ráðgert er að leika á nokkrum
stöðum á heimleiðinni seinni
hluta sunnudagsins og fer það
nokkuð eftir veðri hvar og hvenær.
Íbúar í þéttbýli Suðurlands geta
þvi átt von á uppákomu um næstu
helgi.
Heimdallur:
„Úrelt ákvæði um
skyldusparnadw
STJÓKN Heimdallar óskar eftir að
koma eftirfarandi á framfæri vegna
tillagna Alexanders Stefánssonar fé-
lagsmálaráðherra um að námsmenn
og ungt fólk sem stofnar heimili fái
ekki undanþágu til greiðslu skyldu-
sparnaðar af launum sínum:
Stjórn Heimdallar ítrekar and-
stöðu sína við þá forsjárhyggju
stjórnvalda að vilja ráðskast með
sparifé ungs fólks og mótmælir
hvers kyns hugmyndum um að
festa þetta kerfi í sessi. Á tímum
vaxtafrelsis, væntanlegs verð-
bréfamarkaðar og aukinnar sam-
keppni bankanna á skyldu-
sparnaður ekki lengur rétt á sér
og er nú gott tækifæri til að fella
hann niður í eitt skipti fyrir öll.
Með þvi að halda í úrelt ákvæði
um skyldusparnað er beinlinis
verið að torvelda ungu fólki að
ráðstafa sinu sjálfsaflafé á sem
hagkvæmastan hátt. Varðandi
fjármögnun Byggingarsjóðs rikis-
ins skorar Heimdallur á ríkis-
stjórnina að breyta úthlutunar-
reglum á þann veg að menn fái
einungis lán þegar þeir byggja eða
kaupa í fyrsta sinn. Þeir sem eru
að stækka við sig eða byggja í
annað eða þriðja sinn verða að
leita til hins almenna bankakerfis
eða fjármagnsmarkaðarins.
Mígrensam tökin ?
barna, meðan foreldri liggur í
kasti.
... Félögum — á þriðja hundrað
manns — boðið að taka þátt í
rannsókn á því hvort um fæðuof-
næmi sé að ræða — og svo fram-
vegis og svo framvegis.
Eg sem móðir og víxlagreiðandi
læt peninga fyrst þangað til þeirra
sem jagast og hóta mest, annað
kæmi mér illilega í koll.
Líklegast er að mígrensjúkl-
ingar hafa ekki Jagast" nóg. Ekki
bólar að minnsta kosti enn á að-
stöðu, og á að loforð, okkur gefin,
séu efnd. Deyfð af hálfu stjórn-
valda, deyfð af hálfu mígrensjúkl-
inga, afskiptaleysi lækna. Hvílík
hálfmolla. Allir tala í sínu horni,
kvarta um að ekkert sé gert, sín á
milli og lýsa undrun, en hver vill
taka af skarið?
„Líklegast er að mí-
grensjúklingar hafi ekki
„jagast“ nóg. Ekki ból-
ar að minnsta kosti enn
á aðstöðu, og á að loforð
okkur gefin séu efnd.“
Mígren er ekki þannig mál að
verði ekki að taka á því sem festu.
Mígren er mjög alvarlegur sjúk-
leiki og ber að gera stóreflis átak
til að stuðla að bættri líðan við-
komandi, efla öryggiskennd og all-
an aðbúnað.
Nú er svo komið að félagsskap-
urinn í núverandi mynd er að líða
undir lok. Ekki hefur verið unnt
Norma E. Samúelsdóttir
að halda skrifstofu i nokkur ár,
starfsemin er tvist og bast, og
skapar það óþarfa vafstur. Drift-
arleysi og almennt áhugaleysi hef-
ur tafið framgöngu mála. Uppgjöf
blasir við.
Að fenginni reynslu er það mín
skoðun að til að ná árangri þarf að
huga meira að hinu persónulega
sambandi milli félaga. öll fræðsla
er nauðsynleg, en einangrun er al-
geng meðal sjúklinga og hana
væri hægt að uppræta, til dæmis
með því að hittast í fimm til tíu
manna hópum viku- til hálfsmán-
aðarlega eftir hverfum, tjá sig
og/eða hlusta á aðra.
Þörf fyrir mígrensamtök er
brýn, því er enginn vafi. Það
hljóta allir að sjá sem kynna sér
málið. Margt frábært starfsfólk
hefur unnið endurgjaldslaust, ár
eftir ár, en þetta félag þarf á
styrktarfélagi að halda: Allri þjóó-
inni.
Höíundur er rithöíundur og félagi í
Mígrensamtökunum.
GULLVÆGT
TÆKIFÆRI
FYRIR UNGA
LISTAMENN
Samkeppni um gerð veggspjalda
Makmiðið er: Hreint loft og heilbrigði
árið 2000.
í tilefni af „Ári æskunnar“ efnir Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunin (WHO) til Evrópu-samkeppni um gerð
veggpjalda gegn reykingum.
Veggspjöldin eiga að fjalla um hversu eðlilegt og sjálfsagt
sé að reykja ekki. Með öðrum orðum: Ekki er ætlast
til að lögð sé áhersla á skaðleg áhrif reykinga á heilsu
þeirra sem reykja, heldur hið jákvæða við það að
reykja ekki svo sem:
• að stefna nútímamannsins sé að reykja ekki
• tillitssemina gagnvart þeim sem ekki reykja þ.e. vinum,
fjölskyldu, börnum og vinnufélögum
• ábyrga og sjálfsagða hegðun gagnvart ófæddum
börnum í móðurkviði
• hreinlætis- og fegurðarsjónarmið
• betri möguleika til að njóta lífsins
Þátttökuskilyrði
1. ' Þátttakendur skulu vera á aldrinum 16-35 ára.
2. Tillögur skulu vera í stærðinni 40,6 cm x 57,4 cm og
tilbúnar til eftirtöku
3. Tillögur skal senda til Tóbaksvarnanefndar,
Skógarhlíð 8, 105 Reykjavík, merktar dulnefni, en
rétt nafn og heimilsfang skal fylgja í lokuðu umslagi
merktu sama dulnefni.
4. Skilafrestur er til 5. júní, 1985.
Dómnefnd skipa fulltrúar frá:
Félagi íslenskra teiknara, F.Í.T. (tveir).
Félagi íslenskra myndlistarmanna, F.I.M.
Landlæknisembættinu.
Tóbaksvarnanefnd.
Þrenn verðlaun verða veitt:
1. verðlaun kr. 50.000,-
2. verðlaun kr. 30.000,-
3. verðlaun kr. 10.000,-
Birting verðlaunatillagna
Verðlaunatillögur hvers lands verða siðan sendar
Evrópudeild WHO til umfjöllunar og sýndar í Dyflini á
12. alþjóðlegu ráðstefnunni um heilbrigðismál, í
september 1985.
WHO mun einnig sjá til þess að sem flestar verðlauna-
tillagnanna verði birtar í fjölmiðlum, m.a. í tímaritinu
„World Health“.
Þrenn verðlaun verða veitt af alþjóðlegri
dómnefnd:
1. verðlaun 500 Bandaríkjadalir
2. verðlaun 250 Bandaríkjadalir
3. verðlaun 125 Bandaríkjadalir
Þeir sem hlutskarpastir verða í alþjóðlegu
keppninni munu auk þess vinna til
einnar viku dvalar í Dyflini, Osló
eða Dresden
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 621414.
T óbaksvarnanefnd