Morgunblaðið - 10.05.1985, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1985
fclk í
fréttum
heasir krakkmr heita frá vinstri: Hnlda Gunnarsdóttir, óli G. Blöndal Sveinanon, Aðalsteinn iörundsson, Guðrún Linda
Hilmarsdóttir, Pétur Þórðarson, en hann varð í 4.-7. s»ti, þi Pétur Aðalsteinsson sem varð í 3. sæti og Eiríkur
Símonaraon. Þess má geta að Pétur Þórðaraon og Pétur Aðalsteinsson fóru í gegnum góðaksturinn án þess að gera villu.
Hjólreiðaþrautir
og góðakstur
16 krakkar komust f úrslit
Umferðarráð efndi í samvinnu
við lögreglu og menntamála-
ráðuneytið til spurningakeppni
um umferðarmál meðal 12 ára
barna í skólum landsins. Það voru
um 4000 börn sem hófu keppni og
þeir nemendur sem stóðu sig best
öðluðust rétt til þátttöku í undan-
Sá sem er númer 20 er Eiður
Alfreðsson, þá Hulda Helgadótt-
ir númer 22, íris Pálsdóttir núm-
er 23.
úrslitum hjólreiðakeppninnar sem
er tvíþætt, annarsvegar góðakst-
Þarna er Þorsteinn Aðalsteinsson að leggja f hann og Snorri Bjarnason kennari
sem var stöðvarvörður f keppninni að aðstoða.
ur og hinsvegar hjólreiðaþrautir.
Undanúrslitin fóru fram 4. maf sl.
á Akureyri og í Reykjavík og voru
það 16 ungmenni sem unnu sér
rétt til þátttöku í úrslitakeppn-
inni sem verður í haust. Þar verð-
ur keppt um tvö sæti í alþjóðlegri
hjólakeppni í Finnlandi 1986.
í efstu sætunum í Reykjavík
urðu Vilmundur Geir Guðmunds-
son úr Breiðagerðisskóla, Auðunn
Ingvarsson úr Árbæjarskóla og
Pétur Aðalsteinsson úr Digran-
esskóla. Á Akureyri varð Hilmar
Ágústsson, grunnskólanum Skút-
ustaðahreppi, í efsta sæti og Jón
Andrés Sigurðsson, Lundaskóla, í
öðru sæti. Ljósm. Mbl. kom við í
Austurbæjarskólanum þar sem
keppnin fór fram á höfuðborg-
arsvæðinu og tók nokkrar mynd-
ir.
Skilnaðurinn
útkljáður
- Rod og Alana
vinir á ný
Victoria og Harry spóka sig á götu
í Hollywood nýlega. Victoria hættir
aldrei að brosa í návist Harry ...
Þau Rod og Alana Stewart hitt-
ust öllum að óvörum fyrir
skömmu, en síðan þau fóru hvort í
sína áttina eftir fimm ára hjóna-
band hafa samskipti þeirra aðal-
lega farið fram með milligöngu
lögfræðinga þeirra. Nú er skilnað-
armálið útkljáð og bæði sættust á
úrskurð dómstólsins um skiptingu
eigna Rods milli hans og fyrrum
konu hans. Það kom því dálítið á
óvart, að þau sáust saman fyrir
skömmu og var ekki annað að sjá
en að það færi afar vel á með
þeim. Álana fær um 35 milljónir
króna í sinn hlut og talsvert af
fasteignum Rods og mun því ekki
væsa um hana. Ekki telja sérfræð-
ingar að gengið hafi verið svo
nærri rokkgoðinu að það eigi ekki
fyrir salti í grautinn, eigur hans
nema að minnsta kosti öðru eins
og Alana fékk í sinn sarp ...
Barnsleg gleði Victoriu
er dagurinn eini nálgast
Eigi alls fyrir löngu birt-
um við mynd af Victoriu
Principal þar sem hún sýndi
brúðarkjóla fyrir frægan
tiskuhönnuð í Evrópu. Sjálf
er hún í giftingarhugleiðing-
um og hefur verið það um
nokkurt skeið. Tilvonandi
eiginmaður hennar, lýta-
læknirinn Harry Glassmann,
er á sama máli og nú er ekk-
ert að vanbúnaði, þar eða erf-
iðu skiinaðarmáli hans er
loks lokið. Það er mánuður til
stefnu og Victoria er loksins
ánægð með nýjustu útgáfu
fatahönnuðar síns af brúð-
arkjól. Við sjáum hana hér
hvítklædda í allri sinni dýrð.
Óumdeilanlega hinn glæsi-
legasti kjóll. Ekki hefur
spurst enn sem komið er
hvernig Harry verður klædd-
ur, trúlega verður hann þó í
einhverju glæsiiegu og rík-
mannlegu þrátt fyrir að hann
hafi fengið að halda litlu
öðru en skuldum þeirra
Glassmann-hjónanna. Vict-
oria er sögð ákaflega róman-
tísk og fær að ráða gift-
ingarstað. Það verður Pét-
urskirkjan í Hollywood og
Victoria er búin að ganga
nokkrum sinnum upp og
niður tröppur kirkjunnar og
inn og út ganginn í tilhlökk-
un sinni. Vinir hennar lýsa
henni barnslega hamingju-
samri. Til þess er leikurinn
gerður...