Morgunblaðið - 26.05.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1985
19
sami
fóru fram fyrst í Nýju-Delhi“, síð-
an var farið í skoðunarferð til
Agra sem er forn og óskaplega
fögur borg þar sem er hið fræga
grafhýsi Taj-Mahal sem einn af
stórmógúlunum reisti yfir þá konu
sína sem var honum kærust og lét
síðan grafa sig þar sjálfan. Þetta
er stórkostleg höll, öll úr marm-
ara. Við komum þarna tvisvar
fyrst í sólarljósi um hádegi og síð-
an í tunglsljósi um nóttina. Þeirri
fegurð fá engin orð lýst. Það er
erfitt að lýsa mörgu því sem þarna
bar fyrir augu, andrúmsloftið var
eitthvað svo þrungið.
Síðan var farið til Bhopal þar
sem Union Carbide-verksmiðjan
lak í vetur sem leið. Við sáum
þessa fabrikku, hún er nú svona
eins og þær gerast. Mannabústað-
ir, ef mannabústaði skyldi kalla,
voru í þvögu steinsnar frá verk-
smiðjunni og Indverjarnir voru
ekkert að liggja á því að þarna
hefðu farist og örkumlast miklu
fleiri heldur en gefið var upp í
fréttum til umheimsins. Því satt
að segja segir fátt af einum í þess-
ari mergð. Þeir höfðu engin tök á
þvi að hafa tölu á þeim mannsköð-
um sem þarna urðu. í Bhopal eru
mjög mikilvirk menningarsamtök
sem kalla sig Barat Bhawan og
menningarmiðstöð mjög glæsileg
sem þeir hafa reist á bökkum
stöðuvatns í borginni. Þarna héldu
menn áfram að lesa upp ljóð sín.
Allir sem þarna komu fram áttu í
fórum sínum þýðingar á ensku á
ljóðum sínum og allir fluttu ljóð
sín fyrst á eigin tungu og síðan á
ensku. Hartnær helmingur af
þessum höfundum voru Indverjar
víðs vegar að úr landi, þeir lásu
sín ljóð á hindi og síðan á ensku,
enskan er flestum mönnum töm
þarna. Ljóðagerð Indverja, eins og
hún kom fram á ensku þarna, er
mjög margtóna.
Þessi ferð hafði mjög mikil
áhrif á mig, ég finn það á þeim
myndum sem sífellt eru að koma
upp i hugann, ýmislegt sem
kannski orkaði ekki svo mikið á
mig á staðnum og stundinni. Það
var t.d. afar einkennilegt að mæta
beljunum á götunum og ekki síður
að sjá þær rífa í sig dagblaðahrúg-
ur á öskuhaugunum, þær hámuðu
í sig dagblöðin. Þarna i Nýju Delhí
sá maður staðinn þar sem lik
Gandís var brennt á sínum tíma
og eins Indíru Gandís þegar hún
féll frá. Ekki grunaði mig það þeg-
ar ég var litill og fregnin um
morðið á Gandí barst í sveitirnar
að maður ætti eftir að koma á
þessar slóðir. Ég man alltaf eftir
þvi hvað var mikið hugsað um
Gandi alls staðar og málefni hans
lágu öllum á hjarta i sveitinni,
menn töluðu um Gandí og baráttu
hans. Ég man að þegar fréttin um
morðið kom í útvarpi og blöðum
þá sagði faðir minn: „Þurftu þeir
nú að drepa þennan mann líka.“
Þetta hafði mikil áhrif á mig sem
krakka.“
Þegar Þorsteinn er spurður
hvort hann hafi ort mikið á Ind-
landi hristir hann höfuðið og segir
að dagskráin hafi verið ströng og
mikið að gera allan tímann. Ind-
verjar séu líka veisluglaðir menn
og hafi haldið gestum sínum mikl-
ar og glæsilegar veislur á kvöldin
en þá var helst líft fyrir hita.
Minnisstæðust er Þorsteini veisla
sem forseti Indlands, Zail Singh,
hélt ljóðskáldunum fyrsta kvöldið
þeirra í Indlandi — nei, Þorsteinn
hafði ekki ort neitt á Indlandi —
og þó. Hann verður glettnislegur
til augnanna og segir: „Ég orti jú
eina vísu sem ég sendi heim á
korti að gamni mínu, hún er
svona:
Hér er nóg af fögrum frúm
fær það á minn heila.
Margar þó með mögrum kúm
mega högum deila.
Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir
_____________________________
Góðar ELDHÚSINNRÉTTINGAR á góðu verði
r<I>1
4 GERÐIR
Þú setur þær saman sjálf(ur), enda eru þær
sérhannaðar með það fyrir augum. Og ekki
þarft þú flókin verkfæri.
Allt sem þarf er skrúfjárn, 5 mm bor, . . . já
og auðvitað tómt eldhús.
habitat
VERSLUN- PÓSTVERSLUN LAUGAVEGUR 13 SÍMl: 25808
l'ŒE
I3XI
SNKMJGUR
VARSIUJI
VHS f
□ I
fRONr loachng
CB53 * cnxix
ms 12- 12 n 1 xx i
Fullkomið SHARP videotæki á 35.890. - stgr..
Loksins kemur tækifærið sem þú hafðir vit á að bíða eftir:
Nokkur SHARP VC-481 videotæki á hlægilega lágu tilboðsverði.
Nú verðurþú að hafa hraðann á nema að þú elskir nágrannann mjög heitt.
Þú geturþá kannski heimsótt hann og nýja SHARP videotækið hans á
morgun (með spólu í vasanum).
• Framhlaðið • Kyrrmynd með lágmarks truflun « Sjálfvirkspilun spólusem
upptökulás er brotinn úr • Leitarsjálfkrafa að mynd á spólu • Myndleitun (x10)
íbáðaráttir • 7 daga upptökuminni • Stillir fyrir myndskerpu « Spólar
sjálfkrafa til baka • Stórir litaðir hnappar sem auðvelda notkun
• 8 liða þráð-fjarstýring • Verð aðeins
35,890.- stgK
Aö hika er sama og að tapa!
HUOMBÆR
HVERFISGOTU 103 SIMI 25999