Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.05.1985, Blaðsíða 31
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 26. MAl 1985 tók undir það en bætti við að dagskrá útvarpsins hefði á móti skánað. Við spuröum hvað þeim líkaði bezt í ríkisfjölmiðlunum og hvernig þau vildu breyta dag- skránni. Jóhanna varð fyrir svör- um: „Ég vil fá meira af Ómari Ragnarssyni þar sem hann ferðast og talar við fólk. Þeir þættir eru mjög góðir.“ Sverrir tók undir þetta. Sandurinn eirir engum gróðri Hvernig er að vera bóndi í dag á nyrzta annesi landsins? Sverrir sagði landið ekki gott til ræktun- ar, sandurinn eirði engum gróðri. Hann nefndi sem dæmi, að hann ætti í sífelldri baráttu við Vega- gerð ríkisins, síðan þjóðvegurinn var lagður svo til við húsvegginn hjá þeim. Það myndi bæta til muna, ef þeir hjá Vegagerðinni fengjust til að sá grasfræi með- fram veginum og binda með því sandfokið. Heyskapur gengur vegna þessa ekki nógu vel, fjöru- beitin bjargar þó miklu. Fjórar kýr voru í búinu hjá þeim, þegar flest var af kúm, en sauðfé var og er aðalbúgreinin. Sverrir hafði ennfremur á orði að sér fyndist sem litið væri niður á bændur, fólki fyndist að bændur væru upp á samfélagið komnir. Þau systkini voru í framhaldi af því spurð álits á stjórnmálunum en þau vildu litið gefa upp um skoðanir sínar. Jóhanna var því spurð, hvernig henni litist á Kvennalistann og sérframboð kvenna. „Er þeirra listi nokkuð betri en hinir?" spurði hún á rfioti. Sverrir glotti, er blaðamaður reyndi að fá hann til að gefa uppi áiit á stjórnmálastefnum. Hann þagði um stund en sagði síðan eft- irfarandi sögu: „Kaupfélagið hérna fór á hausinn árið 1%7. Við vorum beðin að gefa eftir það sem við áttum inni, svo það myndi hanga áfram. Við gerðum það, misstum allt sem við áttum, en kaupfélagið dó nú samt alveg.“ Það kenndi ekki beiskju í röddu Sverris, en það mátti greina að lífsreynsla þessi hefði haft áhrif á skoðanir hans. Á hvern hátt lét hann okkur eftir að íhuga. „Húskýrin kemur“ Sjaldan hefur viðrað betur en á liðnum vetri á Melrakkasléttu, en oftar hefur veturinn verið langur og erfiður. Hafísinn hefur gert sig heimakominn og sagði Sverrir að bangsi hefði stundum gengið á land, en þó aldrei gert þeim óskunda. Myrkum vetrum fylgdu oft kynjaverur og í þjóðsögum seg- ir frá ýmsum kunnum draugum. Jóhanna sagðist hafa verið mjög myrkfælin í æsku, en aldrei hefði hún sjálf orðið vör við neitt yfir- náttúrulegt. Aftur á móti sagði hún að Þorgeirsboli fylgdi As- mundarstaðarfólkinu og kunni hún frá að segja: „Það var eitt sinn, að elzti sonur hans Jóns, móðurbróður míns, í Bænum (austara býlið gengur undir því nafni) var úti við að leik. Hann kom allt í einu hlaupandi heim, háorgandi og kallaði: „Hús-kýrin kemur, hún kemur“, en húsið okkar gengur undir nafninu Hús- ið. Hann var talinn hafa séð Þor- geirsbola, enda engin kýr utan- dyra, því skömmu síðar kom Hilmar Norðfjörð, frændi okkar í hlað, en boli er talinn fylgja hon- um sem okkur hinum." Þá kunnu þau systkini sögur af Hálsskora- Fúsa, sem gekk aftur. Fúsi sá var frændi þeirra sem tók líf sitt með því að skera sig á háls. Eftir nokkrar hressilegar draugasögur og ótalda kaffibolla með dágóðum kökusneiðum kvöddum við þau systkini en þau vísuðu okkur frá túnfætinum rétt- an veg að haug Þorgeirs Hávars- sonar á Hraunhafnartanga, skammt frá vitanum. Sú trú fylgir haugnum, að þeir sem bæta í hann steini geti borið fram ósk sem rætast muni. Viðtal: Fríöa Proppé Ljósmyndir: Bjarni Eiriksson SUMARNÁMSKEIÐ í fimleikum 1. námskeið 3. - 30. júní. Fjórir tímar á dag: kl. 13, 15, 17 og 19. Þáttökugjald er kr. 800 - 1 700 eftir tímafjölda. Innritun fer fram dagana 28 og 29 maí kl. 17 — 19 í ÁRMANMSHEIMILING að Sigtúni 20. Pinotex VERNDAR VtÐINN OG GÓÐA SKAPIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.