Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 Rætt við Kristinn Siggeirsson bónda og félaga í björgunarsveitinni Kyndli Félagar úr björgunarsveitinni Kjwdli á Kirkjnbcjarklaustri i leið um Eldgjá. Selveiðimenn vaða f óe i leið beim úr veidiför. Þeir draga skinnin i eftir aér í vatninu. Björgunarsveitamenn í Rauðabergsós að flytja dót úr fKreyskum bát sem strandaði i Kálfafellsfjöru á Skeiðarársandi. Björgunarsveitir hafa þýð- ingarmiklu hlutverki að gegna hjá þjóð sem byggir strjálbýlt land og erfítt yf- irferdar. Þó almenningur á íslandi hafí sjaldnast talið eftir sér að koma til hjálpar hvar sem þess er þörf er ómetanlegt að hafa á að skipa þrautþjálf- uðum mönnum sem eru vanir erfíðum fjallaferðum og hverskyns vosi og volki. Það er oft erfiðleik- um bundið fyrir menn að gefa sér tíma frá brauð- stritinu til að sinna björg- unaræfíngum upp í fjöll- um og vera ávallt reiðu- búnir til hjálpar sé þess þörf. í sveitunum milli sanda er oft þörf vaskra manna þegar skips- strönd verða eða önnur slys og óhöpp. Á Hörgslandi á Síðu býr Kristinn Siggeirsson sem um ára- tuga skeið hefur staðið framarlega í flokki þeirra sem lagt hafa stund á ferðir um fjöll og firnindi sem og sandauðnir í misjöfnum veðrum. Einn sautján samstarfsmanna hans í björgunarsveitinni Kyndli lýsir honum sem “hörðum jaxli“. Þegar blaðamaður Mbl. átti tal við Kristinn fyrir skömmu var hann nýlega kominn úr langri fjallaferð, hafði tekið að sér að fylgja fólki úr Reykjavík á ferð þess um hálendið þar eystra. Slík- ar ferðir eru honum daglegt brauð. Kristinn segist ungur hafa farið að stunda fjallaferðir meðan hann var enn í föðurhúsum, en hann er sonur Siggeirs Lárusson- ar bónda á Kirkjubæjarklaustri og konu hans Soffíu Kristinsdóttur. Skipströnd á söndunum „Við í björgunarsveitinni Kyndli höldum nokkrar æfingar á ári og förum vetrarferð árlega," segir Kristinn. nÞað hefur þó nokkuð oft þurft að grípa til björgunarsveitarinnar.” Kristinn segir sér minnisstætt þegar vél- báturinn Þórunn Sveinsdóttir strandaði á söndunum þar eystra árið 1980: „Þetta var að vetri til, voðalegt veður, vitlaus skafbylur. Við sáum mjög lítið eða ekkert á köflum þegar við vorum á leið austur á Skeiðarársand til að komast á slysstað, við vorum lengi að komast þangað. Við drógum sex menn á línu í land og það gekk allt mjög vel. í fyrravor strandaði hér færeyskur bátur, það var á miðj- um sauðburði, milt og gott veður. Við vorum tiltölulega fljótir á vettvang þegar við vissum hvar skipið var. Strandlínan er löng og Það er oft erfitt að fá staðar- ákvörðun á slysstað nema þaö séu stór skip úti fyrir sem geta miðað strandaða skipið út. Miðunarstöð er hér austur á Skeiðarársandi. Það skiptir miklu máli fyrir okkur Kristinn Siggeirsson bóndi f Hörgslandi á Síðu. í björgunarsveitinni að fá að vita hvort skipið sé strandað austan eða vestan við Nýós sem er einn þriggja ósa þarna, hinir eru Hvalsíki og Rauðabergsós. Ef strandið er vestan við Nýós þá verðum við að fara niður hjá Sléttabóli og niður að Hvalsíki, ef I það er austan við Nýós þá verðum 1 við að fara austur á Skeiðarársand ! og þar fram úr og síðan vestur I fjörur. Þessi tvö strönd sem ég I ræddi um áðan voru bæði austan við Nýós. öræfingar koma alltaf líka þegar slys verða á þeim slóð- : um. Það er hjálpast að eins og ! einn maður þegar út í slikar að- gerðir er komið. Skipakirkjugarður Það má segja að það sé skipa- kirkjugarður hér í Meðallandinu og austurúr. Það strandaði svo mikið af skipum hér í gamla daga og á stríðsárunum. Það strönduðu oft tveir eða þrír togarar á ári hérna i Meðallandinu. Björgun- arsveit hefur verið starfrækt hér lengi. Slysavarnafélagið gegnir lykilhlutverki þegar strand verð- ur, kallar út björgunarsveitirnar. Formaður Slysavarnarfélagsins hringir í stúlkurnar á símstöðinni á Klaustri og þær „ræsa menn út“ í hvelli. Þær hafa lista yfir menn í björgunarsveitinni og í þá er hringt hvenær sólarhringsins sem er. Þeir stökkva má segja í fötin og rífa með sér hlífðarfatnað, fara beint út í svokallaða stjórnstöð sem er á Klaustri, og þar eru mál- in krufin til mergjar eins og hægt er. Það kemur venjulega í minn hlut að reyna að finna út hvar strandið er. Ég er vel kunnugur fjörunum því ég stundaði selveið- ar þar á árunum 1965 til 1975. Ef bjart veður er geta menn um borð oft lýst kennileitum og ég þá áttað mig á lýsingu þeirra. Leit að týndum dreng Mér er minnisstæð leit að dreng sem dvaldi fyrir nokkrum árum í skamman tíma í Skaftafelli. Hann týndist og við í björgunarsveitinni vorum kallaðir út til leitar. Hann hafði farið frá hóp sem hann var með og komist inn úr Mosárdal, þar fundum við för eftir hann. Síðan hafði hann farið meðfram Skeiðará og inn í Skaftafellsfjöll og fyrir upptök Skeiðarár og var

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.