Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 14
14 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 19g5 GRÉGORY franska morðmálið sem engin lausn finnst á Grégory Willemin, fjörugur, fjögurra ára drengur, fannst látinn í ánni Vologne í Austur- Frakklandi í október í fyrra. Hann var bundinn á höndum og fótum og ullarhúfa var dregin niður fyrir andlitið á honum og bundin um hálsinn. Engin merki um átök sáust á litla líkaman- um. Grégory þekkti líklega morðingja sinn og hélt að um leik væri að ræða. orðinginn er enn ekki fund- inn. Fjöl- skylda Grégorys er stór og býr oll í Vologne-dalnum. Afbrýðisemi og illindi eru innan hennar. Nafnlaus hótunarbréf leiddu lögreglan á spor Bernhards Laroche 29 ára, frænda Grégorys, og hann var handtekinn í nóvember. Hann var Iátinn laus í febrúar þegar ung mágkona hans dró vitnisburð sinn gegn honum til baka. Jean-Marie Villemin 27 ára faðir Grégorys, skaut hann með haglabyssu fyrir framan ófriska eiginkonu hans og hreyfihindraðan son í lok mars. Hann situr nú á bak við lás og slá. Christine Villemin 25 ára móðir Grégorys, var handtekin í byrjun júlí og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Rithandarsérfræðingar höfðu komist að þeirri niðurstöðu að hún hefði skrifað hótunarbréf- in. Hún var komin sex mánuði á leið og fór í hungurverkfall f skamman tíma. Henni var sleppt úr fangelsinu eftir 10 daga en er þó enn ákærð fyrir morð. Hún er flutt úr dalnum til ömmu sinnar og einbýlishús þeirra hjóna er til sölu. Franska þjóðin fylgist í ofvæm , með framvindu í þessu máli. Skoð- ¥ anakönnun leiddi i ljós að aðeins 16% þjóðarinnar segja að málið komi sér ekki við. Rannsókn í mál- inu hefur farið fram fyrir opnum tjöldum frá upphafi og það hefur ekki þótt fagmannlega að henni staðið. Vafi ieikur á að nokkurn tíma verði hægt að komast til botns í því en öll spjót beinast enn að móðurinni sjálfri. Öfund og afbrýðisemi Lépanges, þar sem Villemin- fjölskyldan býr, er hvorki sveit né þorp. Bændur ræktuðu áður landið en megnið af íbúum svæðisins fór að vinna í vefnaðarverksmiðjum þegar þær voru reistar við ána. Vefnaðariðnaðurinn hefur gengið illa að undanförnu og það hefur skapað atvinnuleysi á staðnum. Ný fyrirtæki eru þó byrjuð að tín- ast að til að nýta starfskraftinn sem fyrir er. Christine og Jean-Marie Villem- in og Marie-Ange og Bernard Lar- oche höfðu það nokkuð gott í sam- anburði við annað fólk á þeirra aldri í dalnum. Jean-Marie var orðinn verkstjóri i bílaáklæða- verksmiðjunni, þar sem hann vann og Christine vann í fatagerð- arverksmiðju. Laroche-hjónin unnu líka bæði úti. Bernard var einnig verkstjóri og harður verka- lýðsfélagsmaður. Bæði hjónin áttu tvo bíla og höfðu byggt sér lítil ('hristine og Jean-Marie við jarðarför Grégorys :ÍUTHMR 3)U XHEF' 33 £TR fD/V XfDERER COhnE l/(v/ ijrX OVNSTJ LE f Hvec XtDiv ngfyr. P VUU 5 33 & E H*P15\K - Lr\ VIE- *DU Lít m td „Þið getið valið: Lífið eða dauðann," sagði í einu bréfanna frá „Hrafninum". Líki Grégorys lyft upp úr ánni Vologne. hús upp í hæð með útsýni yfir ána. Þau áttu syni á svipuðu reki, Grégory var hraustur og skemmti- legur krakki en Laroche-sonurinn var ávallt heldur lasburða. Christine var aðkomukona á staðnum. Hún ólst upp í Petit- mont, sem er í 80 km fjarlægð frá Lépanges, og fjölskyida Jean- Maries, sem hreyfir sig sem minnst úr dalnum, leit alltaf á hana sem hálfgerðan útlending. Þau kynntust í skóla og byrjuðu að vera saman þegar hún var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.