Morgunblaðið - 01.09.1985, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
b 11
Norðmenn
í Norræna
húsinu
IWyndlist
Valtýr Pétursson
Tveir norskir myndlistar-
menn sýna verk sín þessa dag-
ana í Norræna húsinu. Þeir
eiga verk bæði í kjallarasölum
og einnig í anddyri enda er hér
um nokkuð umfangsmikla sýn-
ingu að ræða. Myndhöggvarinn
Knut Skinnarland og málarinn
Kaare Espolin Johnson eru hér
að verki og til gamans má geta
þess að Espolin Johnson er
ættaður hér af landi og eins
og nafnið bendir til — frá
Espihóli í Eyjafirði. Frænd-
semi við sagnaritarann Jón
Espolin leynir sér ekki. Hann
hefur sýnt verk sín hér áður
ef ég man rétt og er því ekki
allsókunnur þeim sem fylgjast
með sýningum hér á landi, en
ekki man ég til að Skinnarland
hafi verið hér á ferð áður.
Hvorugur þeirra félaga er
byrjandi í myndlist og ber sýn-
ing þeirra merki um kunnáttu
og reynslu á þessu sviði. Ég
hafði persónulega meiri áhuga
á verkum Skinnarlands, sem
eru ágætis höggmyndir. Hann
heldur sig við jörðina, ef svo
mætti til orða taka, og verk
hans eru hvergi tengd tilraun-
um eða framúrstefnum. Skinn-
arland er fyrrverandi nemandi
Zadkins, sem i eina tíð var
talinn fremstur myndhöggvara
í París og hafði hjá sér í læri
á sínum tíma landa okkar Gerði
Helgadóttur. Verk Skinnar-
lands eru látlaus og aðlaðandi
en hvergi átakamikil. Skinnar-
land er góður fulltrúi fyrir sína
kynslóð listamanna í Noregi.
Það var ánægjulegt að kynnast
þessum verkum hans og sama
verður sagt um félaga hans
Kaare Espolin Johnson.
Það eru eingöngu grafík og
verk unnin með blandaðri
tækni sem sýnd eru eftir Espol-
in Johnson og gefur það góða
hugmynd um sagnagáfu og frá-
sagnargleði þessa frænda okk-
ar úr Noregi. Hann hefur auð-
sjáanlega skemmtilegt skop-
skyn sem fellur vel að þeirri
myndgerð sem hann stundar.
Hann er vel sjóaður í fræðun-
um og hefur mikið yndi af
Lofoten ef dæma má eftir þeim
verkum sem á þessari sýningu
eru. Karlarnir á bátunum hans
eru í ætt við okkar sjómenn og
við ættum ekki að verða utan-
gátta þegar við skoðum þessar
myndir. Þarna eru heldur ekki
gerðar neinar tilraunir hvað
nýjungar snertir og allt í föst-
um skorðum, sem sagt hér eru
á ferð tveir listamenn sem
þegar eru fastmótaðir og
bergja af brunni reynslu og
þekkingar.
Safnaöarheimili Neskirkju:
Athvarf aldraðra
opnað að nýju
ATHVARF aldraðra verður opnað að
nýju í Safnaðarheimili Neskirkju nk.
þriðjudag, 3. september, og verður
Opið hús alla þriðjudaga og fímmtu-
daga í vetur, kl. 13 til 17.
Starfið verður með svipuðu
sniði og sl. vetur og eru allir aldr-
aðir í sókninni velkomnir. Margt
er hægt að gera sér til gamans i
Opnu húsi, hægt er að taka í spil
og sjálfsagt er að hafa með sér
handavinnu. Kaffi með eða án
meðlætis verður selt milli kl. 15 og
16.
Öryggi...
Öryggi í umferðinni byggist á mörgum
atriðum. Eitt þeirra er að hafa góöa yfirsýn
yfir veginn í myrkri og misjöfnum veðrurn.
Halogen bílaperan frá Ring gefur tvöfalt
betri lýsingu en venjuleg
bílapera og eykur því
TERHI BÁTAR
Örfáir bátar eftir úr
síöustu sendingu sumarsins
TERHI 375
SEGLBÁTAR.
Aöeins 2 stk.
eftir.
TERHI 385
Lengd: 3,80 m.
Breidd: 1,50 m2
Þyngd: 90 kg.
Aöeins 3 bátar
eftir.
TERHI 405
Lengd: 4,00 m.
Breidd: 1,75 m.
Þyngd: 140 kg.
Aöeins 4 bátar
eftir.
Við bjóðum góð kjör á þessum bátum:
50% útborgun. Eftirstöóvar á 5 mán.
Vélar & Tæki hf.
Tryggvagötu 10,
símar 21286 — 21460, Reykjavík
Hversdagsleikinn á íslandi er
kvaddur á fimmtudags-
morgni. Flogið er til Luxem-
borgar og streitunni leyft að
líða úr skrokknum. Á flug-
vellinum bíður bílaleigubíll
sé þess óskað; með sölu-
skatti, tryggingum og óbeisl-
uðum kílómetramæli, kost-
ar sá ódýrasti 1.650.- kr. í
þrjá daga, fyrir fjóra í bíl.
Til Daun er tveggja tíma
akstur og þar er upplagt að
eyða síðdeginu; slappa af,
fara í sund eða tennis,
spila minigolf eða billjard
- allt eftir þörfum hvers
gera reyfarakaup á
úrvalsvarningi.
Á laugardeginum er rétt að
setja stefnuna á Köln - þar
er ekki síður hagstætt að
versla og urmulT síungra
menningarverðmæta gleðja
augað. Ekki er úr vegi að
smakka á vínframleiðslu
bændanna í héraðinu og
gleyma stund og stað í
Fantasíulandi þar sem jafn-
vel ímyndunaraflið verður
_____________ _______ _ orðlaust.
I^R 1Q _ Á sunnudegi er öllu pakkað
=___ __=VÁYg_____lt»»áÉÖU>_ niður nema góða skapinu og
besta hluta ferðalagsins
LONG HELGI
I DAUN EIFEL
og eins. Um kvöldið bjóða veitingahúsin og bjór-
stofurnar ykkur velkomin, og
nóttin er ávallt ljúf í rúmgóðum
og glæsilegum sumar-
húsunum. Á föstudegi er
tilvalið að skreppa í
verslunartúr til borgar-
innar Trier í Móseldal.
Þar er fallegt og þar má
(heimferðin - heimkoman - tollurinn) notið til
hins ýtrasta.
Þetta tilboð gildir frá 1. sept. - 7. okt. og aftur
13. - 30. okt.
Dæmi um verð(flug og gisting án flugvallarskatts):
6 í 3ja herbergja húsi,kr. 13.288.- pr. mann
4 í 2ja herbergja húsi.kr. 13.634.- pr. mann
2 í stúdíóíbúð kr. 13.942.- pr. mann
FERMSKRIFSTOMN URVAL
Ferdaskrifstofan Úrval v/Austuvöll. Sími 26900.
((Jr frétUlilkynningu)