Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 20

Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 20
20 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 Sun Hui mun matreiöa fyrir ykkur öll kvöld vikunnar nema mánudagskvötd frá kl. 17.00—22.00. Einnig er alltaf til staðar hinn góöi matseöill Ning de Jesus. Veislurnar okkar eru orðnar frægar um allan bæ. Litlar, stórar og góðar veislur meö austurlenskum mat og skreytingum. Mandorín Nýbýlavegi 20 Sími 46212 Byrjendanámskeið í Karate Námskeid fyrir byrjendur í Goju=Ryu Karate=Do eru að hefjast. Karate er skemmtileg íþrótt, af bragðs líkamsþjálf- un og ein fullkomnasta sjálfsvörn sem völ er á jafnt fyrir konur sem karla á öllum aldri. Sérstakir barna- flokkar fyrir 9-12 ára. Innritun og uþþlýsingar aö Ármúla 36, III hæð (gengið inn Síðumúlamegin) og í síma 35025 vikuna' fyrir byrjendur Eldri félagar ath. að æfingar hefjast 2. september. Ingo De Jong sensei er væntanlegur í október. Karatefélag Reykjavíkur, Armúla 36,108 Reykjavík. Sími 91-35025. Markaðurinn í hættu án karfaframboðs íslendinga — segja þeir Ludwig Janssen og Wolf R. Dick, umboðsmenn íslenzkra skipa „SIGLINGAR íslenzkra skipa á fisk- markaðinn í Þýzkalandi eru honum mjög mikilvægar. Án framboðsins frá íslandi vsri hinn hefðbundni karfa- markaður í stórhsttu og þyrfti veru- legrar endurskipulagningar við, því karfinn er aðalfisktegundin á mark- aðnum." sögðu þeir Ludwig Janssen og Wolf R. Dick, umboðsmenn ís- lenzkra fiskiskipa í Bremerhaven og Cuxhaven, í samtali við Morgunblað- ið. Þeir félagar sögðu það ennfrem- ur mikilvægt fyrir verzlun og við- skipti á sviði sjávarútvegs, að ís- lenzku skipin kæmu á þessa staði. Nú ættu Þjóðverjar aðeins 7 fersk- fisktogara og það væri fjarri lagi að þeir gætu annað eftirspurn eftir ferskum fiski, einkanlega karfa. Þeir lönduðu um það bil 12.000 tonnum af karfa árlega en á síð- asta ári hefðu íslenzk fiskiskip landað um 20.000 lestum, mest karfa, í Bremerhaven og Cuxhaven. Wolf Dick og Ludwig Janssen Langmestur hluti karfans á mark- aðnum kæmi því frá Islandi, en auk þess svolítið frá Noregi og Færeyj- um. Þau skip sem legðu áherzlu á siglingar á þennan markað og færu með aflann í samræmi við það, fengju að jafnaði gott verð fyrir ‘ hann, en nokkur misbrestur gæti verið á meðferð afla þeirra skipa, sem kæmu sjaldan eða aðeins einu sinni. Þeir Janssen og Dick sögðust vænta stöðugs framboðs héðan frá og með haustdögum og fram á vor, þegar markaðurinn væri sterkast- ur. Væru gæði aflans I lagi og framboð jafnt, ætti verð að vera þokkalegt. Menn yrðu að varast offramboð og ennfremur óstöðugt framboð. „Við komum hér á hverju ári til þess að ræða við stjórnendur og starfsmenn LÍÚ og ræða við þá út- gerðarmenn, sem mesta áherzlu leggja á þýzka markaðinn. Nú heimsóttum við menn á Isafirði, í Vestmannaeyjum og Akureyri auk útgerðarmanna í Reykjavík. Okkur reyndist ekki unnt að komast aust- ur á firði og langar til að koma á framfæri kveðjum til þeirra vina okkar, sem við náðum ekki að hitta,” sögðu þeir félagar. LANCER STATION WAGON Verður kynntur í byrjun september BÍLARNIR, SEM SELJAST MEST,* ERU FRÁ MITSUBISHI. Verð frá kr. 488.000.- [hIhekia HF' * Samkv. skýrslu Hagstofu íslands L. jlaugavegi 170 172 Simi 21240

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.