Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 25

Morgunblaðið - 01.09.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 B 25 lur. Frá vinstri: Páll Jensson prófess- tor, Viglundur Þorsteinsson formaður lugsson forstöðumaöur áætlanadeild- Morgunbladid/Bjariii hversu breið þessi þekking er. En til að þessir menn og þeir sem enn eru í námi geti nýtt sína menntun hérlendis þarf að finna þeim starfsgrundvöll svo þeir snúi aftur heim en ílendist ekki erlendis þar sem bjóðast störf við þeirra hæfi. Hingað til hafa kennarar þurft að sinna rannsóknarverkefnum i hjáverkum og lokið þeim á 5—10 árum. Þetta þýðir að oft á tíðum er hugmyndin úrelt loks þegar hægt er að hrinda henni í fram- kvæmd. Nú gefst þeim kostur á að fá frí frá kennslu um lengri eða skemmri tíma til að ljúka verkefn- um sem þeir vinna að. Slíkt er til góðs fyrir vísindamennina, nem- endur HÍ og atvinnulífið þar sem góðar hugmyndir eru kannaðar og nýttar fljótt og vel.“ Fyrirtækið þegar komið með verkefni Á fundinum kom fram að í fyrstu verður unnið við rannsókn- ir sem lengra eru komnar og þegar er unnið að innan HÍ. Hér er um að ræða hugbúnað til hægræð- ingar í fiskiðnaði, stýrikerfi til frystiiðnaðar svo og stýrikerfi fyrir aðra aðila. í stjórn félagsins sitja Guð- mundur Magnússon háskólarekt- or, Þorgeir Pálsson dósent, Hörð- ur Sigurgestsson forstjóri, Þorkell Sigurlaugsson forstöðumaður áætlanadeildar Eimskips, Davíð Sch. Thorsteinsson forstjóri og Víglundur Þorsteinsson formaður félags íslenskra iðnrekenda. Endurskoðendur eru Ólafur Nils- son, Endurskoðun hf. og Bragi Hannesson bankastjóri. Kór Öldutúnsskóla ásamt stjórnanda sinum Agli FríðleifasynL Kór Öldutúnsskóla til Spánar MÁNUDAGINN 2. september heldur Kór Öldutúnsskóla áleiðis til Spánar til að taka þátt í alþjóð- legu kóramóti, sem fram fer í borg- inni Vitoria í Alava, sem er í Baska- héruöum Spánar. Á mótinu, sem tengist „Tónlistarári Evrópu" verða 24 kórar víða að úr heiminum. Kórinn mun halda sjö tónleika, syngja inn á hljómplötu, og auk þess koma fram í útvarps- og sjónvarpsþætti, sem sýndur verð- ur víða um lönd. Á efnisskrá kórs- ins eru lög allt frá 13. öld til okkar daga, en sérstök áhersla er lögð á kynningu íslenskra þjóðlaga og flutning kórverka íslenskra tón- skálda, sem mörg hver hafa samið verk fyrir kórinn. Á loka- tónleikunum þann 13. sept. munu allir kórarnir sameinast og syngja kantötu nr. 147 eftir J.S. Bach. Þetta er 10 utanferð Kórs Öldutúnsskóla, sem komið hefur fram í fjölda landa í 4 heimsálf- um. Stjórnandi kórsins er Egill Friðleifsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.