Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 28
8 £8 *ÍB. MORGÚ>ÍBLAÐIÐ, SII>ÍNUDAGUR í. SEíhÍEMBÉR 1985 Myndir úr Mönster Tidcnde frá árinu 1924 Snið úr Mönster Tidende frá árinu 1924 en þau blöð voru mikið notuð til að fá snið á kvenfatnað. Flíkurnar voru sýndar bæði að framan og aftan. Saumakonur í Reykjavík 1900—1940 Þótti góður undir- búningur fyrir húsmóður star fíð Sagt frá ritgerð Ragnhildar Vigfúsdóttur til BA-prófs í sagnfræði við Háskóla íslands Saga hvers tíma er ofin úr mörgum þráðum, en við söguskráningu hlýtur alltaf að ráða mat þess er ritar. Mannkynssagan er að stórum hluta saga styrjalda, landvinninga og stjórnmála, og oftar en ekki saga rituð af karlmönnum um aðra karlmenn. Hlutverki konunnar hefur lengstum verið lítill gaumur gef- inn við söguritun, reynsla konunn- ar, starfssvið og framlag hennar til samfélagsins á hverjum tíma ekki þótt það markvert að þar þyrfti að hafa um mörg orð. Nú er komin betri tíð Síðustu áratugi hafa þó víða orðið, samhliða jafnréttisbaráttu kvenna, umskipti i þá átt, að endurmeta söguna, sjónum hefur verið beint að þætti kvenna, hinu gleymda kyni. Sú hefur einnig orðið raunin á hér á landi, safnað hefur verið, og skráð, heimildum um kjör kvenna fyrr á tíð, störf þeirra, menntun og þátttöku í félagsmálum, svo eitthvað sé nefnt. I vor er leið bættist við þann fróðleik framlag Ragnhildar Vigfúsdóttur, sem lagði fram til BA-prófs í sagn- fræði við Háskóla íslands ritgerð um „Saumakonur í Reykjavík 1900—1940“. Eintök af ritgerðinni eru nú komin í Kvennasögusafn, Árbæjarsafn, Háskólabókasafn, Þjóðminjasafn og auk þess eitt í vörslu Kjólameistarasambands- ins. Ritgerðin er því orðin að opinberri og aðgengilegri heimild. í inngangi segir höfundur svo: „Ég hef reynt að fá sem gleggsta mynd af kjörum þeirra kvenna sem unnu fyrir sér með sauma- skap fram að heimsstyrjöldinni síðari. í stríðinu breyttist svo margt, þ.ám. fatavenjur lands- manna. í stað þess að þurfa að sauma allt sjálfur eða láta sauma á sig var hægt að kaupa tilbúin föt í ríkari mæli og stétt sauma- kvenna beið mikið afhroð og hefur varla jafnað sig enn. Ritgerðin byggist á viðtölum við 31 saumakonu og eina konu, sem rak saumastofu. Allar eru þær fæddar á árunum 1891—1923 og búa i Reykjavík eða nágrenni. Ég hef notið góðs af spurningalista Þjóðháttadeildar Þjóðminjasafns- ins um saumaskap, hannyrðir og tísku. Einnig leitaði ég fanga í rit- uðum heimildum, ævisögum, minningargreinum, blaðagreinum, ritgerðum og bæjarskrám." Hvað varð til að vekja áhugann? Löngun blaðamanns til að vita, hvað hafi orðið til að vekja áhuga nútíma stúlku, sem alin er upp á tímum tískuverslana og fjölda- framleidds fatnaðar, á störfum þeirra kvenna sem höfðu atvinnu af því að sauma föt á meðborgara sína fyrr á árum, varð til þess að haft var upp á Ragnhildi, lögð fyrir hana ofanskráð spurning og hún beðin um að segja frá: „Það var nánast tilviljun, sem réð efni ritgerðar minnar,“ svarar Ragnhildur, „það kom eiginlega upp í hendurnar á mér frá þeim á Þjóðháttadeild. En þó upphafið væri tilviljanakennt get ég með sanni sagt, að ég fékk brennandi áhuga á viðfangsefninu. Þegar ritgerðarefnið var orðið fastur punktur í tilverunni var ekki um annað að ræða en vinda sér í að hafa upp á saumakonum, sem höfðu verið við störf fyrir og um 1940. Amma einnar vinkonu minnar hafði starfrækt sauma- stofu á þriðja áratugnum hér í Reykjavík og fjölskyldan vissi um eina konu, sem unnið hafði hjá henni. Eftir að ég komst í sam- band við hana hlóð þetta svona utan á sig, ein vissi af annarri og svo koll af kolli. Ég hafði tal af miklum fjölda kvenna víða um land, þó ritgerðin sé byggð á við- tölum við fyrrnefndar 32 konur. Það var eftirtektarvert að fyrst þegar ég hafði samband við kon- urnar kom fram hjá þeim hin dæmigerða kvenlega hógværð, þeim fannst þær ekki hafa frá neinu að segja. Við sumar talaði ég aðeins einu sinni, aðrar oftar, og þær voru bæði fróðar og skemmtilegar. Af viðtölunum tel ég mig hafa fengið nokkuð samfellda mynd af námi, kjörum og aðbúnaði er saumastarfinu fylgdi. Það þarf vart að taka það fram, að saum- astörf, eins og önnur þau störf Ragnhildur Vigfúsdóttir sem konur unnu, voru fremur illa launuð en þó misjafnt eftir stof- um.“ Því má bæta hér inn í frásögn Ragnhildar af fatasaumi, að danskir handverksmenn komu hingað til lands á dögum Skúla Magnússonar og þar á meðal einn klæðskeri. íslenskur maður, menntaður í klæðskeraiðn í Danmörku, kom til landsins á 19. öld en hafði skamma viðdvöl, flutti aftur til útlanda þar sem hann gat ekki lifað af starfi sínu hér. En árið 1880 kom danskur klæðskeri, F.A. Löve, til Reykja- víkur, setti á stofn saumastofu og fékk útlærða klæðskerasveina til liðs við sig. Stétt saumakvenna „Saumakunnátta þótti góður undirbúningur fyrir húsmóður- starfið hér fyrr á tíð,“ bætti Ragn- hildur við, „heimasætur voru oft á nokkurra mánaða námskeiði hjá „skreðurum" og urðu við það sjálfbjarga að sauma á sig og sína. Ovíst er hve margar konur lögðu leið sína til Danmerkur fyrir alda- mótin til að læra að sauma, en þangað fóru alltaf einhverjar. Guðrún Borgfjörð fór t.d. árið 1883 til Kaupmannahafnar og var hjá skreðara um mánaðartíma og lærði að taka mál og sauma. Hún kenndi síðan þegar hún kom heim, þannig breiddist kunnáttan út. Thorvaldssenfélagið starfrækti „saumaskóla fyrir stúlkubötn frá sjötta ári til átjánda" árið 1888. Fatasaumur, einkum lérefta- saumur, var kenndur við Kvenna- skólann en þangað fóru fáar stúlk- ur. Þegar kom fram á þessa öld gátu stúlkur komist í nám hjá saumakonum í Reykjavík, árið 1905 voru 6 saumakonur starfandi hér í borg, árið 1910 voru þær yfir 200, og árið 1941 voru þær 407, sem greiddu útsvar. Það segir þó ekki alla söguna, margar konur saumuðu heima hjá sér til að drýgja tekjur heimilisins og hafa því ekki litið svo á, að um raun- veruleg saumastörf væri að ræða, sem greiða þyrfti gjöld af. Konur, sem stunduðu saumaskap, voru ekki fljótar til að ganga í stéttar- félag, sumar hirtu jafnvel aldrei um það. Af viðmælendum mínum höfðu nokkar gengið í Iðju, þegar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.