Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 32

Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 32
— Frásögn af ferð kórs Langholtskirkju til þriggja Evrópulanda Karlskirkjan í Vin var skreytt blómum þegar kór Langholtekirkjn béh þar tónleika 2. júní síðastliðinn. Uorgunblaðið/G.G. Helmut Neumann. Sönglist frá íslandi í erlendum sölum Um hádegið þann 1. júni sl. var saman kominn í flughöfninni í Keflavík 90 manna hópur sem var á förum til Vínarborgar, hinnar rómuðu háborgar tónlistarinnar. Þar bjuggu og störfuðu þeir Schu- bert, Mozart, Beethoven og Haydn svo einhverjir séu nefnir og þar urðu til margar fegurstu perlur tónbókmenntanna. Hópurinn sem beið eftir útkall- inu í Keflavík umræddan dag var eftirvæntingarfullur en tók þó klukkutíma töf með jafnaðargeði. Þá gafst svigrúm til að líta yfir hópinn og átta sig á óþekktum andlitum. Flestir voru þó góð- kunningjar eða nánir vinir, því þarna var á ferðinni kór Lang- holtskirkju og fylgifiskar, sem ætluðu að lifa saman súrt og sætt næstu 3 vikur. Meginmarkmið ferðarinnar var að flytja tónlist og sameiginlegt ferðanesti kórfé- laganna var fjölbreytt og um- fangsmikið tónlistarprógram. Að baki var vetrarlangt undirbún- ingsstarf, æfingar, tónleikahald og fjáröflun, sem ekki var auð- veldasti þátturinn. En nú var hinn langþráði dagur runninn upp og ekki aftur snúið, enda var enginn á þeim buxunum. Hinsvegar hafa líklega fáir gert sér fyllilega grein fyrir því hvað næstu dagar báru í skauti sér, en það voru hástemmd- ar gleðistundir, frábærar móttök- ur góðs fólks í útlöndum, löng og lýjandi ferðalög, þéttsetin tónleikahús og reyndar einnig smáskerfur af vonbrigðum. Meginþunginn af skipulagi ferð- arinnar hafði hvílt á herðum Jóns Stefánssonar, kórstjóra, og Gunnlaugs Snævarr, sem er for- maður kórsins. Auk þeirra höfðu allflestir kórfélaganna unnið baki brotnu allan síðastliðinn vetur til að gera ferð þessa mögulega. Til fararstjórnar var fenginn Hjalti Kristgeirsson, en honum til að- stoðar voru þrír kórfélagar. W ienerfestwochen Wienerfestwochen er árleg listahátíð sem haldin er í Vín. Upphaflega stóð hátíð þessi í eina viku á hverju vori, og þá hófu margir færustu listamenn heims- ins að sækja heim Vínarborg og flytja þar list sína. Smám saman tók listamönnum að fjölga svo að ein vika dugði ekki til og nú eru vikurnar orðnar sex. Þrátt fyrir hátt miðaverð komast færri að en vilja á ýmsa merka listaviðburði á Wienerfestwochen. Vínarbúar eru iðnir við að sækja tónleika og óperusýningar í borginni auk þess sem fjöldamargir útlendingar leggja leið sína til Vínar þegar þessi virta listahátíð stendur yfir. Fyrstu tónleikar kórs Lang- holtskirkju í Austurríki voru liður í Wienerfestwochen. Þeir voru haldnir í Karlskirkju, sem er ákaflega fögur barokkbygging, reist snemma á 18. öld. Þar er hljómburður fádæma góður og að- staða til tónleikahalds ágæt. Kirkjan var fagurlega skreytt marglitum blómum þetta sunnu- dagskvöld, þegar kórinn frá Is- landi hóf upp raust sína. Og um það bil er fyrstu tónar gamla sálmalagsins „Gefðu að móður- málið mitt“ ómuðu um hvelfingar Karlskirjunnar var hvert sæti skipað í þessu stóra guðshúsi. Á dagskrá þessa kvölds var eingöngu kirkjutónlist. Fyrst voru íslenskir fimmundarsöngvar og önnur göm- ul kirkjutónlist. Seinustu tvö verkin fyrir hlé voru fyrir tvo kóra, en þá er kórnum skipt upp í tvo hópa, annan minni, hinn stærri, sem síðan syngjast á. Eftir hlé var flutt yngri tónlist, s.s. Requiem eftir Jón Leifs, sem margir álíta eitt fegursta tónverk sem samið hefur verið af íslend- ingi. Sérstæður hljómagangur þess naut sín afar vel í Karls- kirkjunni og margir tónleikagestir hrifust sérstaklega af þessu verki. En lengsta verkið sem flutt var á þessum tónleikum var „Marien- ode“ eftir Islandsvininn Helmut Neumann. Hann starfaði um ára- bil sem sellóleikari í Sinfóníu- hljómsveit íslands. Þarna var verkið reyndar frumflutt í Aust- urríki með aðstoð þarlends organ- ista, sellóleikara og fiðluleikara. „Marienode" er strembið og óvenjulegt verk, fullt einlægni og hlýju eins og maðurinn sem samdi það. Hann var reyndar einn af gestgjöfum kórsins og fylgdi hon- um næstu daga. Kórinn flutti ann- að austurrískt nútímaverk, en það er þýsk messa í F-dúr eftir Micha- el Radulescu, sem er fyrrverandi lærimeistari Jóns Stefánssonar í orgelleik. Lokaverk þessara tón- leika var „Hósianna" eftir Þorkel Sigurbjörnsson. Signý Sæmunds- dóttir er ung og efnileg söngkona, sem stundar söngnám í Vín. Reyndar er hún gamall félagi úr kór Langholtskirkju og þarna gekk hún fram fyrir skjöldu og söng sólóhluta í Hósíanna. Signý hefur kraftmikla og fallega sópr- anrödd og var flutningur hennar hinn glæsilegasti. Áður en þessu verki var lokið gengu kórfélagar syngjandi út úr kirkjunni og þar með var dagskráin tæmd. En áheyrendur í Karlskirkjunni þetta kvöld sættu sig ekki við það, lófa- takinu ætlaði aldrei að linna og aukalögin urðu þrjú. Þessi kvöld- stund í Karlskirkjunni var sann- kölluð óskabyrjun fyrir kórinn á erlendri grund og segja má að stjórnandi og söngvararnir 60 hafi svifið um í sigurvímu. Þessar mót- tökur voru framar öllu vonum. En flestir voru þó sammála um að ekki væri rétt að ofmetnast, það voru átta tónleikar eftir. Dagur í Vín Næsti dagur var frídagur og gátu kórfélagar varið honum að vild. Einhverjir litu inn á kaffi- stofuna á Hótel Sacher, brögðuðu hina heimsfrægu súkkulaðiköku, sem kennd er við hótelið og drukku bolla af kaffi, sem kostaði offjár. En það er margt að sjá í Vín. Fyrir framan Hótel Sacher er Vínaróperan. Nokkrir gárungar hölluðu sér upp að óperuhúsinu og sungu við raust „Ég að öllum háska hlæ“, sögðu síðan hverjum sem heyra vildi að þeir hefðu sungið við Vínaróperuna Göngugatan Graben er skammt frá óperunni og við enda hennar gín hin íburðarmikla kirkja Step- ansdom, sem reist var á miðöld- um. Á Graben ríkir mikill heim- sborgarbragur. Hver glæsiversl- unin er þar við hlið annarrar og verðlagið þar hátt. Fólkið í mið- borg Vínar er almennt vel á sig komið og áberandi vel til fara. Austurrískir þjóðbúningar á kon- um og körlum er algeng sjón auk þess sem margir halda á hljóð- færatöskum. Það er eitt af fjöl- mörgum dæmum um það hve tón- list er ríkur þáttur í þjóðlífinu. Krems Kór Langholtskirkju hélt aðeins eina tónleika í sjálfri Vínarborg, en þriðjudaginn 4. júní var ekið norðvestur að bökkum Dónár og inn í hið fagra hérað Wachau. Það sama kvöld voru tónleikar í bæn- um Krems. Á leiðinni þangað var m.a. numið staðar í Melk. Þar er klaustur og merkileg kirkja frá seinnihluta endurreisnartímans. Undirrituð leyfir sér að fullyrða að Péturskirkjan í Róm er látlaust skreytt miðað við klausturkirkj- una í Melk, því þar er dæmi um hið gamla kaþólska veldi þegar það reis sem hæst. Freskumyndir, gylltar súlur og flúr er svo íburð- armikið að undrun sætir. I klaustrinu í Melk er einnig varð- veitt afar gamalt og merkilegt bókasafn sem kórinn og fylgifisk- arnir fengu að skoða. Þeir sem les- ið höfðu hina bráðmerku bók, „Nafn rósarinnar" eftir Umberto Eco, fengu þar opinberun. Þarna var komið bókasafnið sem lýst er í bókinni. Adso, sögumaðurinn var munkur í Melk og þar á sagan að eiga sér stað. Skammt frá Melk eða í þorpinu Emmersdort átti kórinn stefnu- mót við frú Corneliu Schubrig, sem er aðalsræðismaður Islands í Austurríki. Kórfélagar höfðu mik- ið heyrt um hana talað og allir Islendingar sem búið hafa í Aust- urríki eru á einu máli um þessa einstöku konu. Hún tók við emb- ætti aðalræðismanns af eigin- manni sínum, sem nú er látinn fyrir nokkrum árum. I Emmers- dorf bauð hún kórnum í hádegis- verð. Þar brögðuðu félagarnir í fyrsta sinn austurrískar brauð- bollur, knödel, sem er álíka mikil- vægt meðlæti með matnum eins og kartöflur á íslandi. Við komuna til Krems, heima- bæjar frú Schubrig, var ekið rak- leiðis til Dominikaner-kirkjunnar og haldin stutt æfing fyrir tón- leika kvöldsins. Þessi látlausa og fallega gotneska kirkja, sem hýsir minjasafn, á sér merkilega fortíð. Hún var byggð á 13. öld og á inn- veggjum hennar er að finna gotn- eskar freskumyndir frá árinu 1280. Þeirra vegna er kirkjan nú álitin eitt af merkustu söfnum Austurríkis. Við kirkjuna er klausturbygging sem er heldur eldri en hún sjálf. Klausturhald þar var lagt af árið 1785 en eftir það var húsnæðið nýtt undir margskonar starfsemi, s.s. skóla- hald, leikhús, verslun og í vistar- verum klaustursins bjuggu nokkr- ar fjölskyldur. Það var svo á ?. áratug þessarar aldar að tekið var til við að hreinsa og laga kiaustrið og kirkjuna, sem þá voru orðin niðurnídd. Eiginmaður frú Schubrig var einn helsti hvata- maður að þessum framkvæmdum. Hann hafði átt sér þá ósk að ís- lenskur kór syngi þar og því voru þessir tónleikar stór stund í hug- um margra sem sóttu þá. Margir gestanna voru íslendingar og Is- .*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.