Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 35

Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985 B 35 1 upp til að ganga inn i kirkjuna. Þegar þangað var komið blasti við óvænt og gleðileg staðreynd. Fjöldi manns var kominn inn til að hlýða á tónleikana, kirkjudyrn- ar stóðu opnar og fólk streymdi látlaust inn. Kórinn hóf tónleik- ana á íslenska þjóðsöngnum, sem hljómaði stórkostlega um þessar víðáttumiklu hvelfingar. Á meðan á tónleikunum stóð voru kirkju- dyrnar hafðar opnar og söngurinn laðaði fólk að. Margrét Gunnars- dóttir, kórfélagi, kynnti dag- skrána á ítölsku og ensku, sem kom sér vel því prógrömmin gengu til þurrðar. Tónleikagestirnir þetta kvöld voru vel á annað þús- und og móttökurnar voru frábær- ar allt frá byrjun. Þarna sannaðist enn einu sinni mikilvægi góðra áheyrenda og kór og stjórnandi tvíefldust. Þarna var allt að vinna og sérhver lagði allt sitt að mörk- um. Þetta átak skilaði sér og þess- ir tónleikar urðu einir þeirra eftir- minnilegustu í allri ferðinni. Síð- asta aukalag þessara tónleika var perla íslenskra þjóðlaga „Sofðu unga ástin mín“ í útsetningu Jóns Ásgeirssonar. Lokaátakið Að loknu kvöldinu í San Lor- enzo var tónleikaferð kórs Lang- holtskirkju formlega lokið. Nokkr- ir kórfélagar lögðu af stað áleiðis heim til íslands strax þá nótt og kveðjustundin reyndist erfið. Lík- lega er ekkert til sem skapar jafn ríka samkennd innan hóps sem ferð af þessu tagi og þótt hún reyndi á þolrifin er ekki auðvelt að standa frammi fyrir því að ljúka henni. En einu verkefni var þó ólokið, en það var messusöngur í dómkirkjunni í Flórens morgun- inn eftir. Úr því kraftar reyndust duga til að halda lokatónleikana með sóma hlaut líka að vera hægt að skila af sér einni messu þótt í útlöndum væri. Sú varð líka raun- in. Messan í Flórens var afar ólík þeirri sem sagt var frá í Feneyj- um. Dómkirkjan í Flórens er ein þriggja stærstu kirkna í heimi og jafnframt ein sú fegursta að margra áliti. Að utan er hún skreytt marmaramósaiki en að innan er hún björt og hlýleg þrátt fyrir stærðina. Luigi Sessa, organ- isti kirkjunnar, leiddi kórinn inn í litla hliðarkapellu en þar fór guðs- þjónustan fram. Þessi lágvaxni ít- ali bauð kórinn velkominn og lét í ljósi ánægju yfir heimsókninni. Þegar messan hófst var kapellan fullsetin af borgarbúum og ferða- mönnum af ýmsu þjóðerni. Kórinn söng að mestu leyti það sama og f Markúsarkirkjunni daginn áður, en auk þess söng hann lika fasta messuliði sem prestarnir í Mark- úsarkirkjunni höfðu kirjað. Prest- urinn hélt síðan prédikun og svo mikið skildi ég að hann hvatti fólk til að stunda fagurt líferni, styrkja fjölskyldubönd og forðast óhóf í áfengisneyslu. Að lokum gat hann þess að kórinn sem væri að syngja við þessa messu væri kom- inn alla leið frá íslandi, og sér væri heiður að bjóða hann og stjórnanda hans velkominn. Áður en kirkjugestir yfirgáfu kirkjuna stóðu þeir upp og klöppuðu vel og lengi fyrir kórnum. Bravóhróp heyrðust líka, það meira að segja frá sjálfum dómkirkjuprestinum. Slíkt hafði kórinn aldrei upplifað fyrr, því þótt sr. Sigurður Haukur Guðjónsson sé einn dyggasti að- dáandi kórsins lætur hann þakk- læti sitt í ljós á annan hátt. Hér lýkur frásögninni af tón- leikaferð kórs Langholtskirkju til þriggja Evrópulanda. Hún var stórátak sem kostaði mikið fé og fyrirhöfn. Þessi samstillti hópur hlaut mikið lof og viðurkenningu á erlendri grund, og vakti jafnframt athygli á auðugri söngmenningu á íslandi. Það er vert að meta þá jákvæðu landkynningu að verð- leikum og hvetja íslendinga sjálfa til að fylgjast vel með þessum hópi, og því sem hann tekur sér fyrir hendur í náinni framtíð. (;u«lau( CuAmundadóUir Líkamsrækt SUÐURVERI Haustnámskeiö hefst 2. sept. Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. Morgun-, dag- og kvöldtímar. Lausir tímar. Sérstak- ur megrunarflokkur kl. 18.30. Rólegur tími þri.—fim. kl. 14.30. Allir finna flokk við sitt hæfi í Suð- urveri, sími 83730. Vetrarnámskeiö hefst 30. sept. Framhald — byrjendur Félag íslenskra danskennara FÍD Bolholti Haustnámskeiö hefst 2. sept. Morgun-, dag- og kvöldtímar. 50 mín. tímar. Kerfi JSB. Sturtur, sauna. Vetrarnámskeiö hefst 30. sept. Lokaöir og framhaldsflokkar. Staðfestið pantanir fyrir veturinn. Sími 36645. Ljósastofa JSB Kynniö ykkur nýju sontegra per- urnar, 25. mín. Toppþjónusta — toppgæöi. Sími Jazzballettskóli Báru ...... ivnwi iii viui i u i v • sept. Haustönn 16. sept. — 29. nóv. Byrjendaflokkar — framhaldsflokkar. Tímar 2x—3x í viku. Blandaðir flokkar, strakar og stelpur. Gjald 4.200. Nýtt Nýtt Gestakennari frá Pineapple London. Innritun hefst 9. sept. Sími 83730. Akranes Jazznámskeiö í Rein 1. okt. — 30. nóv. 1x í viku, á laugardög- um. Byrjendur 7—12 ára, 13—15 ára, 16 ára og eldri, fram- haldsflokkur. Innritun í Rein frá 9. sept. á þriðjudögum og fimmtudög- um, sími 1630. Líkams rækt Akranes Vetrarnámskeið hefst 9. sept. Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. 6 vikna námskeið 2x í viku. 9. sept. — 17. okt. og 22. okt. - 28. nóv. Staðfestið pantanir í Rein mánudaginn 2. sept. kl. 12-17, sími 1630. Athugið: Höfum dansvörur frá Pineapple tilsölu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.