Morgunblaðið - 01.09.1985, Qupperneq 36
a
36 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
Námstefna norrænna fóstra:
Auka þarf rannsóknir
á uppeldi ungra barna
DAGANA 11.—16. júní sl. var hald-
in samnorræn fóstrunámstefna í
Savolinna/Nyslott í Finnlandi. Ním-
stefnuna sóttu þrjár íslenskar fóstr-
ur, og á henni var samþykkt ályktun
þar sem lögó er ábersla á að á fyrstu
árum barnsins sé lagóur grunnur aó
málþroska þess.
Með markvissu starfi sé unnt að
örva málþroska barnsins bæði
innan heimilisins og á dagvistun-
arheimilum en til að ná því
markmiði þurfi vel menntað
starfsfólk, hæfilegan fjölda barna
á deildum og viðeigandi húsnæði.
Þvi sé samvinna við foreldra
nauðsynleg til að barnið fái nægi-
lega tilsögn í móðurmálinu.
Þar segir ennfremur: „Hefð-
bundið hlutverk dagvistarheimila
er að þroska alhliða málkennd
barnanna.
Með leikjum, viðtölum, kveð-
skap og þulum, bókmenntum og
leiklist er hugmyndaflug og móð-
urmál barnsins örvað og á þeim
grunni getur skólinn síðar byggt.
Auka þarf og bæta samvinnu
milli fóstra og kennara til að sam-
ræma þá kennslu og það uppeldi
sem á sér stað á dagvistarheimil-
um annars vegar og í skólanum
hins vegar. Menntun fóstra og
kennara þarf að samræma og gera
jafn réttháa.
Grunnmenntun fóstra á Norð-
urlöndum, svo og framhalds-
menntun þarf að aðlaga síauknum
kröfum nútímans. Gera þarf
fóstrum kleift að fylgjast með
þróun samfélagsins og aðlaga upp-
eldisstarfið öðrum þjóðfélags-
breytingum.
Rannsóknir á Norðurlöndum á
uppeldi ungra barna eru skammt
á veg komnar, en þessar rann-
sóknir þarf að auka og samræma
milli landanna. Fóstrumenntunin
þarf síðan að styðjast við niður-
stöður þeirra.
Vinna fóstra á dagvistarheimil-
um er þýðingarmikil, ekki einung-
is fyrir börnin og foreldra þeirra,
heldur einnig fyrir þróun samfé-
lagsins.
Mörgum börnum býðst ekki dvöl
á dagvistarheimilum.
Nauðsynlegt er að stjórnmála-
menn tryggi að nægilega mörg
dagvistarheimili verði byggð svo
unnt sé að tryggja öllum börnum
er þess óska dvöl á dagvistarheim-
ili.“
ÓDÝRAR LOFTPRESSUR
NÝJUNGFRÁ
INGERSOLL-RAND
INGERSOLL RAND verksmidjumar eru heimsþekktar íyrir
INGERSOLL RAND
þjöppurnar eru
meðíœrllegar íyrir einn
mann og audveldar í
drœtti íyrir litla íólksbíla.
iramleidslu vandadra loítþjappa og loítverkíœra.
INGERSOLL RAND býður nú
nýja gerð aí léttbyggðum,
ílytjanlegum loítþjöppum
ótrúlega mikil aíköst.
INGERSOLL RAND
em snigilþjöppur, knúnar aí
loítkœldum dieselhreyíli.
<
5
I
Leitidnánari upplýsinga hjá
umbodsadila ingersoll-rand
áíslandi.
Skonsur og aftur skonsur...
Nú eru eflaust margar húsmæður búnar að sulta, bæði úr rifs-
berjum, krækiberjum og rabarbara, svo eitthvað sé nefnt. Þess
vegna datt mér i hug að gefa ykkur uppskrift af skonsum. Nýbak-
aðar skonsur og góð heimalöguð sulta er boðlegt hvenær sem er.
Skonsurnar er fljótlegt að baka ef óvænta gesti ber að garði, og
gaman er að koma heimilisfólkinu á óvart einhvern laugardags-
eða sunnudagsmorgunn með volgum skonsum, nýlöguðu sultunni
og jafnvel ísköldum þeyttum rjóma.
Þetta er grunndeig fyrir eftirfarandi sjö tilbrigði af skonsum.
Byrjum á morgunverðarskonsunum:
Bökunartími: litlar 7—10 mínútur.
Bökunartími: stórar 10—15 mínútur.
240 gr hveiti, 2 tsk. lyftiduft, 125 gr mjólk, 50 gr smjörlíki, 30
gr sykur, Ví tsk. salt, 1 hrært egg.
Sigtið saman hveiti, lyftiduft og salt og bætið sykrinum út í.
Myljið smjörlíkið út í og bleytið í með mjólkinni og hnoðið létt.
Fletjið út á hveitistráðu borði, látið hveiti á hendur og formið
„bollu". Skerið hana i tvennt og fletjið lauslega út í um 2 sm
þykkt. Takið undan litlu glasi. Látið á smurða og hveitistráða
bökunarplötu, og penslið hverja skonsu með hrærðu egginu. Bakið
við 220° hita í 7—10 mínútur og berið fram volgar.
Brúnar skonsur
Búnar til á sama hátt og morgunverðarskonsur, en notið til
til helminga heilhveiti og hvítt hveiti.
Ostaskonsur
Grunnuppskrift, en sleppið sykrinum og notið i staðinn 120 gr
rifinn ost (tegund eftir smekk). Bornar fram með jarðarberjum
og rjóma.
Engiferskonsur
Grunnuppskrift, en sleppið lyfti-
dufti. Notið í staðinn ¥t tsk. sóda,
Vi tsk. engifer og 1—2 matsk.
síróp.
Haframjölsskonsur
Grunnuppskrift, en notið 120 gr
hveiti og 120 gr haframjöl.
Sódaskonsur
Grunnuppskrift, en sleppið lyfti-
dufti, og notið 1 tsk. pottöskju
(cream og tartar) og '/2 tsk.
matarsóda.
Súrmjólkurskonsur
Grunnuppskrift, en sleppið lyftidufti og mjólk. Notið í staðinn lA
tsk. sóda, 'A tsk. pottösku og 125 gr súrmjólk.
Ég þarf varla að taka það fram að skonsur eru einnig afbragðs-
góðar með smjöri og osti.