Morgunblaðið - 01.09.1985, Blaðsíða 38
38 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER 1985
„Starf hans talið
hreinasta þrekvirki“
ar og áræði hafi ráðið mestu um
hve giftusamlega björgunarstarfið
tókst.“
Þessi orð voru höfð um Krist-
björn Þórarinsson kafara er hann
ásamt öðrum vann það þrekvirki
árið 1965 að koma skipinu Sus-
anne Reith á flot en því var siglt á
sínum tíma upp á skerið við Rauf-
arhöfn. Skipstjórinn ætlaði fyrst
að láta draga það yfir rifið en þar
brotnaði það í tvennt.
„Þegar hugurinn hvarflar til
baka eru það náttúrulega viss at-
riði sem standa upp úr og maður
gleymir ekki,“ sagði Kristbjörn er
blaðamaður hitti hann og bað
hann að líta til baka um 25 ár og
fara yfir atburðinn.
Þetta var um hávetur að við fór-
um þarna norður og unnum að
þessu í nokkra mánuði. Það sem
ég man einna helst er að veðrið
var erfitt, ís sem lá mikið við land
og eiginlega engar samgönguleiðir
opnar nema með lítilli flugvél.
Hafísinn gerði okkur lifið leitt og
það var strengdur vír fyrir hafn-
armynnið til að varna því að ísinn
kæmist inn.
Kristinn Guðbrandsson í Björg-
un hf. sem lét bjarga skipinu var
ekki á því að láta veðrið hamla sér
og ég man að einu sinni vantaði
mig tilfinnanlega sement og það
var bara hægt að fá það á Húsa-
vík. Á þessum tíma var stórhríð og
ófært, en Kristinn skipaði bíl-
stjórunum að leggja af stað strax
og eftir tvo daga birtust þeir með
fullan farm af sementi. Það dugði
ekkert að gefast upp í þá daga.
Það var líka sögulegt þegar við
vorum að sigla skipinu suður 340
sjómílur. Þá var búið að saga skip-
ið í sundur og karlarnir voru að
stelast til að kikja á samsetning-
una þegar enginn sá til, því skipið
jagaðist auðvitað til og frá. Mið-
lestin var opin og þar syntu fisk-
arnir út og inn eins og þeim sýnd-
ist. Ekki bætti það úr skák að
hællinn var boginn og ég skar
hann hreinlega af svo stýrið hékk
bara á efri legunni. En þetta hafð-
ist allt.“
— Hvað varð svo um skipið?
„Það var sett í slipp og þar var
það soðið saman aftur. Þá var því
sigit til Englands þar sem bætt
var í það 10 metrunum áem skorn-
ir voru úr því. Það var notað sem
Grjótey um tíma við dýpkanir og
fl. Þá var það kallað Eldey og not-
að til útgerðar en svo var það selt
til útlanda og ég hef ekki fylgst
með því eftir það.
Það er nú samt dálftið skrítin
tilviljun að þegar ég fékk kranann
sem ég nota við vinnu mína frá
Englandi var það Susanne sem
náði í hann og það vissi ég bara
núna fyrir nokkrum mánuðum."
— Hefurðu unnið sem kafari
síðan þetta gerðist?
Nóg að gera hjá Jane Seymour
KRISTBJÖRN ÞÓRARINSSON KAFARI
SEM ÁTTI HVAÐ STÆRSTAN HLUT í AÐ KOMA SKIPINU
SUSANNE REITH Á FLOT AÐ NÝJU
Þessj frétt birtist í Morgunblaðinu fyrir 25 árum.
Þá fór
verr en
skyldi
Jane Saymour hefur mikið á
sinni könnu þessa dagana.
Innan skamms á hún von á öðru
barni sínu en fyrir á hún Katy sem
er þriggjaára.
Hún lætur meðgönguna þó ekki
aftra sér frá vinnunni og ferðast
nú vítt og breitt um Bandaríkin
til að fylgja myndum sfnum eftir
„Head Office“ og „Jamaica Inn“.
Auk þess bregður hún sér þegar
tími gefst til í ljósmyndastúdíó til
að láta mynda sig í því nýjasta sem
tískuhúsin hafa á boðstólum
handa vanfærum konum.
Semsagt, nóg að gera á þeim bæ.
Morgunblaðið fyrir 25 árum
verk var farsællega
™ Wta leitt _. mm
'yrk: rb.,nda
SUSANNE
rramhald »f bl* M
irm nú *r I "i(tu fyr-
rurki»n« I upphafi roktum
i stúrum dritlum aogu
bjorgunar.
- Við byrjuðum að vinna
— k
vátryygjanda Þ<’,» ín
ikomkumulags við akip
ug Uupsiiufn v»r ii«‘ð
ra. nuhum |«<n *°
fcfcipstjuri or
skiptð. Þá v»r
1 kaups o( *< röu
VarM .« árH. úr IramhluU shlpsln. w hann v.r Irhl-
bjorgun ar I vnr.
það fyrir fy
Björgunarstarfið mæddi
mest á Kristbirni enda er
starf hans í sambandi við björgun
skipsins talið hreinasta þrekvirki.
Aðstæður voru allar hinar erfið-
ustu, hafís og kaldur sjór, grútur í
sjónum svo ekki sá úr augum,
hreyfing á sjónum vegna óhag-
stæðrar veðráttu og lítið athafna-
rými... öllum sem til þekkja ber
saman um það að þrek Kristbjarn-
Ballettdansari sem vegur
meira en 125 kíló, ætli að slíkt
gæti gengið áfallalaust?
Að minnsta kosti ekki hjá
Flemming Kröll sem er revíu-
stjórnandi I Nyköbing og tók að
sér danshlutverk í einni af sýning-
unum. En þá fór verr en skyldi
eins og myndin ber glöggt með sér.
fclk í
fréttum
Spor í
ranga
átt?
David Mach lagði bæði líf og
sál í síðustu höggmynd sína
sem á að tákna jörðina séða frá
gervihnetti.
Og þó að gagnrýnendur reyndust
ekki yfir sig hrifnir má þó segja
að David hafi bæði fengið útrás
fyrir hugarflugið og not fyrir
skóna sem hann var hættur að
brúka.