Morgunblaðið - 01.09.1985, Síða 39
ntn HaaManag x flUOAatjnvíijg aiaAjaviuoflOM
MOPGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. SEPTEMBER lfl85
a 88
B 39
Gersemar úr grjóti
Það hefur löngum verið ðllum
kunnugt, sem áhuga hafa á
steinum og söfnun þeirra, að gott
væri að leita fanga í þeim efnum
á Borgarfirði eystri. Líklega skipt-
ir það tonnum, sem þaðan hefur
borist í brottu í vösum ferða-
manna, koppum þeirra og kirnum.
Heimamenn hafa vísast einnig
kunnað að meta þessi dýrmæti sin
og á síðustu árum hafa þeir farið
að gera sér nokkurn mat úr grjót-
inu, ef svo mætti segja. Fyrirtækið
Álfasteinn hf. á Borgarfirði eystra
var stofnað 1. mars árið 1982.
Hluthafar munu flestir heima-
menn, en framkvæmdastjóri er
Helgi Arngrímsson og starfsmenn
fjórir til fimm. Er blaðamaður
Morgunblaðsins átti leið um eystra
fyrir skömmu og leit við í fyrirtæk-
inu til að sjá og heyra þá sýndi
Helgi Ásgrímsson framleiðsluna.
Þar getur að líta fjölbreytilegustu
hluti, svo sem bréfapressur og
fánastengur, afmælisskildi og
bókastoðir, svo eitthvað sé nefnt.
Flest er þetta unnið úr íslenskum
steinum, en einnig nokkuð úr er-
lendum. Þá er unnt að gera hjá
þeim allskyns sérpantanir.
Steinarnir eru tíðast gljápússað-
ir á aðra hlið og síðan sandblásnir
og þá er litað og myndskreytt.
Einnig er unnt að kaupa hjá þeim
steina, smáa sem stóra, sem eru
listaverk í sjálfu sér, án þess að
mannshöndin meitli eða móti. En
þar sem sjón er sögu ríkari, má
geta þess að Álfasteinn hf. er með
sýningarbás á Heimilissýning-
unni.
Fjölbreytilegustu
hlutir úr grjóti
eru framleiddir í
BorgarFirði
eystra.
Helgi Arngrímsson.
Árin líða
og menn-
irnðr eldast
Þrátt fyrir að hann sé sprækur
og fari í tennis sér til heilsu-
bótar af og til er ekki þar með sagt
að við sjáum beinlínis 007 James
Bond fyrir okkur, þegar við horf-
um á þessa mynd.
Tíminn líður og nú er Roger
Moore kominn langt á sextugsald-
ur. Þrátt fyrir það leynir aldurinn
sér býsna vel í Bond-myndinni
sem nú er verið að sýna í einu af
bíóhúsum borgarinnar. Kannski
förðunarmeistarar eigi einhvern
þátt þar að máli?
Adidas-New York
gallinn
á útsölu í
Laugavegi 116 viö Hlemm.
Símar 26690 — 14390.
Morgunblaðið/Þorkell
Kristbjörn Þórarinsson.
„Já og fram til ársins 1978 vann
ég einungis við köfun. Ég á að baki
um 12.000 tíma í sjó og held að
Einar sonur minn eigi næstmesta
kafaratíma á landinu. Þegar ég
byrjaði f þessu starfi 1955 vorum
við 12 til 15 manns sem unnum við
þetta en f dag er varla til mann-
eskja sem hefur þetta að aðal-
starfi. Þetta er aftur á móti orðin
aukabúgrein hjá mörgum, og nú
hafa um 80 manns atvinnuréttindi
á þessu sviði. Ég rek ásamt öðrum
Köfunarstöðina og hef gert nokk-
uð lengi."
— Verðurðu einhverntíma
hræddur niðri í vatninu?
„Ég er alltaf hræddur og líka f
jandi, en Þetta eru bara viðbrögð-
in við þvf að vera varkár. Ég er
alltaf viðbúinn en hef þó aldrei
lent í hættu."
Vildi ekki sitja kyrr í vagninum
Þegar Madeleine fékk að lokum litla apavininn sinn Jake í gönguferð,
vildi hann þegar til kom alls ekki sitja kyrr í dúkkuvagninum, ekki
einu sinni þó reynt væri að róa hann með því besta sem Madeleine veit
og þekkir þ.e.a.s. pelanum.
COSPER
COSPER
— Krtu á móti því að mamma búi hjá okkur?
ASIflestar stæröir til
Verð frá kr. 1.990.
Sportval
\r Laugavegi 116 við Hlemm.
Símar 26690 — 14390.