Morgunblaðið - 08.09.1985, Qupperneq 1
120 SÍÐUR
B/C
STOFNAÐ 1913
201. tbl. 72. árg.
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaósinfi
Samtök hlutlausra ríkja:
Grænland:
Stefnir í átök á
vinnumarkaðnum?
Kaupmannaböfn, 7. sepL Fri Nik Jörgen Bruun, frétUriUrn Morpinblaösins.
NC ER útlit fyrir stórfelld átök á
grænlenskum vinnumarkaði, og við-
ræður virðast fjarri því að bera
árangur.
Fjögur dönsk verkalýðsfélög,
sem semja fyrir félagsmenn sína
á Grænlandi, hafa hætt samninga-
umleitunum við ríkið, heima-
stjórnina og sveitarfélögin um
nýja kjarasamninga fyrir tfmabil-
ið 1985-87.
Er þar um að ræða félög vél-
stjóra, lögfræðinga og viðskipta-
fræðinga, hjúkrunarfólks og versl-
unar- og skrifstofufólks. Um 450
félagsmenn síðastnefnda félagsins
vinna hjá rfkinu, heimastjórninni
og sveitarfélögum á Grænlandi.
Vinnuveitendurnir vilja engar
kauphækkanir f krónutölu á þessu
ári og mest sem svarar um 1.200
kr. hækkun á mánuði á árinu 1986.
Þá vilja þeir, að visitölutrygging
launa verði lögð niður í Grænlandi.
Það hefur ekkert félaganna viljað
fallast á.
Bandaríkin:
Reynt að koma
lífi í sauð-
fjárræktina
Waxhiarton. 7. scptembcr. AP.
TIL Bandaríkjanna hefur nú verið
flutt ræktað fjárkyn frá Danmörku
og Finnlandi og eru bundnar vonir
við, að það geti hleypt nýju lífi f
sauðfjárræktina vestra. Segir frá
þessu í tilkynningu frá bandaríska
landbúnaðarráðuneytinu.
Sauðfjárræktin í Bandaríkjun-
um hefur verið að dragast saman i
langan tíma enda kemur það fram
f tilkynningu landbúnaðarráðu-
neytisins, að almenningur tekur
flest annað kjöt fram yfir lamba-
kjötið. Til að reyna að snúa þess-
ari þróun við hefur verið flutt inn
frá Danmörku og Finnlandi 31
lamb af fjárkyni, sem hefur verið
ræktað f þessum löndum og kall-
ast „texel“. Hefur þetta fjárkyn
það sér til ágætis fyrst og fremst,
að kjötið af þvf er mjög fitusnautt.
Verða lömbin i sóttkvi næstu
fimm árin.
Ljóflm Mbl Ol.K.M
Suður-Afrika:
Mikill viðbúnaður
vegna fjöldaútfarar
ii fylgi þeim tíl grmfar. Hefur
jMUUKttVvOfJ, 7. KpitttMf. AP.
TVÖ svört ungmenni félhi í dag f
Suður-Afríku þegar tíl óeirða kom
víða í landinu. f dag fer fram útför 10
manna, sem fallið hafa á síðustu dög-
um, og er búist við, að mikið fjöL
lögreglan uppr mikmn viðbúnað af
þeim sökum.
1 Ciskei, einu heimalanda
svartra manna, kom til mikilla
mótmæla og beitti fólkið grjóti og
bensínsprengjum gegn lögreglunni,
sem svaraði fyrir sig með skothríð.
Féll þá 14 ára gömul stúlka og ann-
að ungmenni þegar svartur lög-
reglumaður skaut að kynbræðrum
sínum, sem reyndu að brenna hann
inni í húsi sínu. f dag á að bera til
grafar tíu menn, sem f&llið hafa að
undanförnu, og viðbúið að margt
manna fylgi þeim. Er fjölmennt
lögreglulið til taks enda hefur oft
komið til mikilla óeirða að slíkum
athöfnum loknum.
Frá 23. ágúst sl. hefur 31 maður
fallið í Suður-Afriku i óeirðum,
sem sprottnar eru af aðskilnað-
arstefnunni. Flest eru fórnarlömb-
in svört en einnig kynblendingar og
fólk af indverskum uppruna, sem
svertingjar gruna um græsku og
saka um að styðja hvita minnihlut-
ann i landinu. Fréttir eru um, að
Nelson Mandela sé sjúkur og hefur
hann verið til skoðunar hjá sér-
fræðingi i þvagfærasjúkdómum.
Mandela hefur verið i fangelsi i
rúma tvo áratugi og er jafnan litið
á hann sem tákn fyrir andstöðu
svartra manna við aðskilnaðar-
stefnuna.
Mugabe
verður
næsti
forseti
Luanda, Angóla, 7. sepL AP.
I GÆR ákváðu utanríkisráðherr-
ar hlutlausu ríkjanna, að næsti
fundur þeirra skyldi haldinn í
Harare í Zimbabwe. Það hefur í
för með sér, að Robert Mugabe,
forsætisráðherra Zimbabwe,
verður forseti Samtaka hlutlausu
ríkjanna (NAN) næstu þrjú árin.
Tæplega 100 ráðherrar voru
viðstaddir, er ákvörðun þessi
var tekin á aðalfundi samtak-
anna i Luanda, og var kosið á
milli Zimbabwe og Júgóslavíu,
sem var einn af stofnaðilum
NAN1961.
Mugabe verður forseti 'sam-
takanna frá og með Harare—
fundinum, sem haldinn verður
1986, fram að næsta aðalfundi,
sem haldinn verður 1989.
Robert Mugabe
Norðmenn að kjörborðinu á mánudag:
Kosningabaráttunni lokið
með deilum um velferðina
Örii, 7. Kfúmber. AP.
ÞRJÁR milljónir Norðmanna munu ganga að kjörborðinu á mánudag en
kosningabaráttunni lauk formlega (gærkvöldi með sjónvarpsþætti þar sem
allir leiðtogar stjórnmálaflokkanna 10 komu fram.
I sjónvarpsþættinum stóð styr- Willoch sagði, að efnahagslffið
inn fyrst og fremst á milli þeirra
Káre Willochs, forsætisráðherra
og leiðtoga Hægriflokksins, og
Gro Harlem Brundtlands, for-
manns Verkamannaflokksins.
stæði nú með miklum blóma, at-
vinna hefði aukist, framleiðslan
einnig og fjárfestingar og
rannsóknastarfsemi, en hins veg-
ar hefði verðbólgan minnkað,
skattarnir, erlendar skuldir og
reglugerðafargan rikisvaldsins.
Brundtland réðst harkalega á
stefnu stjórnarinnar og sagði, að
borgaraflokkarnir vildu vel-
ferðarrikið feigt. Kvað hún
Verkamannaflokkinn mundu þre-
falda framlög til heilbrigðiskerf-
isins og annarra velferðarmála ef
hann kæmist til valda en Willoch
svaraði og sagði, að hér væri um
að ræða óábyrgt yfirboð, sem
hefði aðeins i för með sér aukna
verðbólgu. Samkvæmt siðustu
skoðanakönnun virðist Verka-
mannaflokkurinn standa heldur
betur að vigi en stjórnarflokkarn-
ir en mjótt er á mununum.