Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 5

Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 5 Listasafn íslands: 19 íslensk- ar konur og einn Banda- ríkjamaður I GÆR voru opnaðar tvaer sýn- ingar í Listasafni íslands. Ann- arsvegar yfirlitssýning á verkum íslenskra listakvenna sem fæddar eru fyrir 1930 og hinsvegar sýning á steinprentum og mónótýpum eft- ir Bandaríkjamanninn John Franklin Koenig. Yfirlitssýning þessi er haldin í tilefni ioka kvennaáratugarins og eru á henni verk eftir 19 konur. Þeirra elst er Kristín Jónsdóttir, en hún fæddist árið 1888. Á sýning- unni eru átta myndir eftir hana, sú elsta frá 1912. Yngsta listakonan er Valgerður Árnadóttir Hafstað en hún er fædd 1930. Að sögn Beru Nordal er þessi sýning mjög fjölbreytileg og sýnir hvað íslenskar listakonur hafa far- ið misjafnar leiðir í listsköpuninni. „Sumar kvennanna hafa verið lítt áberandi og jafnvel vanmetnar en það breytir ekki því að ferill þeirra margra er afar merkur. Einnig bjuggu margar þeirra lengi í út- löndum og má segja að verkin beri það með sér.“ Rúmlega þrjátíu myndir eftir John Franklin Koenig eru til sýnis í fremri salnum og í anddyrinu áð- ur en gengið er inn á kvennasýn- inguna. Þær eru frá álíka mörgum árum, sú elsta frá 1954 en sú yngsta frá þvi í sumar. Koenig hefur sýnt víða, bæði í vestur- og austurheimi. Sem fyrr segir eru myndirnar á sýningunni steinprent og mónótýpur, en sumar eru í bland klippmyndir og mónó- týpur. Margar myndanna eru til- brigði við sama stef ef svo má segja, enda segist Koenig oft verða hugfanginn af sama forminu og prófa það þá í nýjum og nýjum út- færslum. John Franklin Koenig mun halda fyrirlestur um myndlist í Banda- ríkjunum frá 1905 til 1975 í Menn- ingarstofnun Bandaríkjanna á mánudaginn klukkan 20.30 og eru allir velkomnir. Jónas E. Svafár sextugur: Helgafell gefur út bók í tilefni afmælis hans ATÓMSKÁLDIÐ Jónas E. Svafár er sextugur f dag, sunnudag. í tilefni afmælisins gefur Helgafell út úrval úr Ijóðum og dráttlist Jónasar er nefnist „Sjöstjarnan f Meyjar- merkinu** og kemur það á markaðinn um miðjan mánuðinn. Höfundur valdi ljóð og skreyt- ingar úr eldri bókum sfnum, en auk þeirra eru ljóð og teikningar sem ekki hafa áður birst i bók. Alls eru í bókinni 28 ljóð. Allt frá því Jónas lagði fyrir sig ljóðagerð og teiknilist 1948 hafa verk hans hrifið ungt fólk og brennandi háð ádeiluljóða hans orðið hluti þjóðfélagsvitundar þeirra. í fréttatilkynningu frá Helgafelli segir að Jónas sé ramm- islenskur súrrealisti og kannski hið eina sanna atómskáld. Morgunbladid/Þorkell Frá vinstri Bera Nordal, John Franklin Koening, dr. Selma Jónsdóttir forstöðumaður Listasafnsins, Jóhannes Jóhannesson og Guðmundur Bene- diktsson. Þau unnu að uppsetningu sýninganna þegar Morgunblaðsmenn litu inn á fostudaginn. Kristniboðsfélag karla selur kaffi Kristniboðsfélag karla í Reykja- vík efnir til kaffisölu sunnudaginn 8. september frá kl. 14.30 i Betaníu, Laufásvegi 13. Kaffisala hefur verið árlegur viðburður hjá kristinboðsfélaginu og rennur allur ágóði af henni til islenska kristniboðsins i Afriku. ítalska, spænska, enska Fyrir byrjendur Upplýsingar og innritun í síma 84236. Rigmor í tilefni þess að nú eru É árgerðirnar að koma til landsins getum við boðið nokkra bíla á sérstöku afsláttarverði af árgerð gj^ mW Þú borgar aðeins É út og færð afganginn lánaðan í m mánuði. TOYOTA Nybýlavegi 8 200 Kópavogi S 91-44144 x

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.