Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 22

Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 „Nú veit ég að það er sælla að gefa en þiggja“ Raett ?ift Helgu Hassing sem er nýlega komin frá Ecuador eftir ársdvöl þar ÖÐRU HVERJU birtast í blöðum frásagnir og fréttir af atburðum og lífsmáta fólks í fjarlægum löndum. Maður les í bókum um framandi staði, lætur kannski bókina síga og hugann reika á vald draumóranna: „Gaman væri að ferðast til svo fjarlægra landa til að sjá og kynnast af eigin raun lífinu þar.M En flestir láta þar við sitja. Þeir eru fáir sem gera draumórana að veruleika. Þó kemur manni á óvart hve víða landinn hefur drepið niður fæti. Við Dynskóga í Hveragerði býr víðförul ung stúlka, Helga Hassing að nafni. I ágústbyrjun kom hún heim eftir ársdvöl í Ecuador sem er land nyrst í Suður-Ameríku. Helga er geðþekk stúlka, grannvaxin og ljós yfirlitum en útitekin og frekknótt eftir sólina i Ecuador. Foreldrar hennar eiga fallegt einbýlishús með björtum, stórum og nýtískulegum vistarverum. Við fengum okkur sæti í stofunni og hún hóf að segja mér frá reynslu sinni af heimi sem er mikið ólíkur þeim sem hún hafði áður lifað í. Hún er frjálsleg i fasi og segir rösklega og óhikað frá: „Ég er ævintýramanneskja," byrjar hún frásögnina. „Ég kynntist hol- lenskri stelpu sem var á Selfossi um tíma og fylgdist með hvernig hún fikraði sig áfram með íslensk- una og hve henni fannst spenn- andi að kynnast hér landi og þjóð. Þessi kynni urðu til þess að ég ákvað að reyna að komast eitthvað langt í burtu sjálf. Fyrst ætlaði ég til Spánar en svo langaði mig til að fara lengra og kynnast ein- hverju sem væri gjörólíkt þvf sem ég hafði áður þekkt. Ég aflaði mér upplýsinga og sótti um hjá AFS (Almenn fræðsla og samskipti) sem hafa milligöngu um að ungt fólk á aldrinu 16 til 18 ára geti komist til fjarlægra landa í eitt ár. Ég sótti um að komast til Mex- íkó. Það gekk ekki. Mér var boðið að fara til Bandaríkjanna en það vildi ég ekki og ákvað að bíða átekta. Tveimur mánuðum seinna átti ég þess kost að fara til Ecu- ador. Ég átti að dvelja hjá fjöl- skyldu i litlu þorpi sem heitir Ba- hia de Caráquaz í sex mánuði og aðra sex í höfuðborginni Quito. Fólkiö mitt í Ecuador Fjórtánda ágúst í fyrra lagði ég af stað áleiðis til Ecuador. Flaug fyrst til Glasgow, svo til London, þaðan til Parisar og Madrid og svo til Puerto Rico, þá til Columbíu og þaðan svo til Quito, höfuðborgar Ecuador. Fjölskyldan mín í Bahia til- heyrði lágstéttinni, en þetta var samt menntað og vel gefið fólk. Fjölskyldufaðirinn hét Pedro Mera Villao og kona hans Maria de Villao. Þau voru orðin fullorðin og áttu tíu uppkomin bðrn. Eitt þeirra, einhleyp dóttir, Cristína, bjó hjá þeim svo og fóstursonur hennar og sonarsonur þeirra, Luchto. Ég kallaöi Cristínu systur en gömlu hjónin foreldra meðan ég dvaldi með þeim. Það myndaðist trúnaðarsamband með mér og Cristínu. Við vorum enda í sama herbergi. Gömlu hjónin varð ég alltaf að þéra. Flestir krakkar sem fara út á vegum AFS lenda hjá fremur vel efnuðum fjölskyldum en fólkið mitt í Ecuador var fá- tækt. Pedro vann mikið en hann eyddi næstum öllu sinu fé í hjá- konur. Hann átti þær margar, kannski tuttugu. Þetta er mjög al- gengt þarna þó kannski séu hjá- konurnar sjaldnast svona margar. Hann átti mikið af börnum fyrir utan þau tíu sem hann átti í hjónabandi. Cristína sá fyrir heimilinu að miklu leyti, hún var kennari. Ég hafði lítið samband við Pedro, hann virtist lifa í sínum heimi, vann mikið en kom heim til að borða og sofa. Við máltíðirnar var honum ævinlega boðið fyrst og hann fékk ríflegasta og besta skammtinn. Þegar hann kom heim fór allt í fullan gang til að gera honum til geðs. Hurðin var opnuð fyrir hann og blaðið haft tilbúið svo hann gæti lesið það strax. Hann fór til vinnu klukkan sex að morgni, kom heim að borða klukk- an 13.30 og fékk sér síðan blund. Kom i kvöldkaffi klukkan 19 og svo fór hann aftur út. Þegar hann var heima að kvöldi til sat hann og lagði kapal en sagði aldrei orð við okkur Cristínu, einstaka sinnum talaði hann við Maríu konu sína. Meðan hann lagði kapal sáum við Cristína um að flysja appelsinur fyrir hann og fengum svo að þrífa steinana eftir hann af gólfinu morguninn eftir. Hann spýtti þeim út um allt. Heimilisstörf Á þessu heimili var engin heim- ilishjálp nema einstaka sinnum eldabuska. Það var mikið verk aö þrífa húsið. Fyrst var sópað með einskonar „nornakústum", kerta- vax borið á gólfið í staðinn fyrir bón og síðan farið yfir það nokkr- um tímum seinna með klút og hver flís bónuð. Það var byrjað að elda klukkan tíu á morgnana. Þjónað til borðs klukkan 13.30. Allan þennan tíma var verið að malla eitthvað. Vatniö kom á nóttunni Rennandi vatn var ekki að hafa nema einu sinni í viku þegar yfir- völdin hleyptu því á. Þá var um að gera að hafa næmt eyra og flýta sér að fylla allar tunnur af vatni og fara í sturtu. Ef maður heyrði ekki þegar vatnið fór að renna um pípurnar varð maður að vera vatnslaus alla næstu viku. Stund- um kom vatnið á næturnar. Crist- ina vaknaði þegar hún heyrði vatnsrennslið og smám saman fór ég að vakna við rennslið líka. Þeg- ar rigningatímabilið kom urðum við að fylla tunnurnar með rign- ingavatni úr rennunum á húsinu. Við stóðum kannski við á náttkjól- unum til klukkan þrjú á nóttunni. Geitungarnir skriðu um mig alla Mér fannst erfitt að venjast skordýrunum. Köngulæmar voru sumar á stærð við undirskálar. Ég lenti í geitungafaraldri, sem betur Helga og Criatína ( kennslubúning- fer hafði ég vit á að sitja kyrr eins og mér hafði verið sagt og þær stungu mig ekki. Hefði ein stungið mig hefðu allar stungið. Ég var náhvít og tárin runnu úr augunum meðan þær skriðu um mig alla en mér tókst að sitja kyrr. Svo flugu þær burtu eins og svart ský. Þær komu víst frá Afríku og höfðu drepið fullt af fólki. Það var skrif- að um þær í blöðin. Kakkalakk- arnir voru allt að tíu sm á stærð ,og leyndust inni í skápum í eld- húsinu og inni á klósetti. Þarna voru líka rottur í stórum hópum. Maður heyrði í þeim tistið á nótt- unni. Ég reyndi að stoppa bilið milli rúms og veggjar með fötum til þess að þær kæmust siður að mér en fólkið gerði svo mikið grín að mér að ég hætti þessu. Menn vissu fátt um ísland María, húsmóðirin, var alltaf heima. Hún var lasin, slöpp á taugum og notaði mikið af meðul- um. Hún og maður hennar höfðu lítinn áhuga á íslandi en Cristína hafði hann þeim mun meiri. Ég fræddi hana um alla hluti hérna heima. Yfirleitt vissi fólk næstum ekk- ert um ísland. Það spurði mig hvort hér væri sími eða bílar og hélt jafnvel að við byggjum hér í snjóhúsum. Merkilegast fannst fólki að heyra um jafnréttið milli karla og kvenna, því fannst það nánast stórfurðulegt. Hrifnast var ' það af því hve lífskjör manna á Helga, Cristína og svttrt vinkona þeirra ( eldhúsghigganum ( (búðinni að Barríó Mariaríta de Jesus 314 þar sem Helga dvaldi (eitt ár. tslandi virtust miklu jafnari en gerist þar úti. Þar eru menn annaðhvort fátækir eða ríkir. Bil- ið er þar óhemju breitt, þeir fá- tæku eiga varla til hnífs og skeið- ar en þeir ríku eiga flugvélar og því um likt. Kenndi handavinnu, ensku o.fl. Ég hafði ekkert lært í spænsku áður en ég fór út og talaði fyrst með aðstoð orðabókar. En eftir fimm mánuði var ég altalandi og las einnig mikið og skrifaði. Ég var í skóla fyrstu tvo mánuðina en svo sá ég að ég gæti gert miklu meira gagn með því að kenna sjálf. Ég fór því að kenna ensku og fleira. Ég fékk leyfi hjá AFS til að vera f Bahia allan dvalartímann minn f Ecuador. Ég var búin að koma mér þar vel fyrir og farin að kenna og fjölskyldan vildi hafa mig áfram. Ég fékk leyfið með því skilyrði að ég ynni þá þrjá mánuði sem skólinn var f fríi þarna. Við Cristína biuggum því til „pró- gramm“. A morgnana kenndum við krökkum, sem áttu að fara að fermast, biblíusögur og kristin- fræði en seinni hluta dags kennd- um við 300 konum, sem voru ný- lega giftar, nytsama handavinnu. Það kunni enginn þarna að hekla nema ég. Ég kenndi þeim þá list og við Cristína útbýttum heklu- nálum sem fengust í þorpinu þó enginn kynni að handleika slík verkfæri. Ég var nokkra daga að kenna konunum að halda á heklu- nál. Fólkið þarna er bæði van- þróað og vannært, lengi að hugsa af þeim sökum og lengi að læra alla hluti. Ég fór mikið f kirkju meðan á dvöl minni í Ecuador stóð, stund- um á hverjum degi. Þar kynntist ég gamalli konu sem batt mikla tryggð við mig. Henni fannst svo merkilegt að ég svona hvít skyldi vilja tala við dökkt fólk. Hún var eldabuska í fangelsi utan við þorp- ið Bahia. Hún bauð mér einu sinni að skoða fangelsið. Fangarnir voru geymdir innan hringlaga múrveggs; þar bjuggu þeir í kofum og stóðu fangaverðir yfir þeim með byssur á lofti. Fangarnir gáfu mér fallega festi úr svörtum kóral sem vex í sjónum þarna úti fyrir ströndinni. Þegar ég yfirgaf fang-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.