Morgunblaðið - 08.09.1985, Side 23

Morgunblaðið - 08.09.1985, Side 23
MORGUNBLADID. SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 23 Helga með 300 ára gamalli scakjaldböku. Myndin var tekin á Galapagos sem eni eyjar fyrir utan Ecuador þar sem óvenju fjölbreytt dýralíf þrífst Þangaö fór Helga meó öllum skiptinemum sem dvöldu í Ecuador um þetta leytL Helga og „Qölskyldan" bennar á tröppunum vió heimilió. F.v. sitjandi Crístína, Luchto, Helga, María og Pedro; fyrir ofan standa börn sem bjuggu á neðrí haeð hússins. nokkrv af konunum 300 sem Heiga kenndi handa vinnu. SfóasU kennsludag fóru þer allar í hóp nióur á ströndbu tuettulegu. Strctisvagn í bcnum. Þetta er fámennt þegar myndin var tekin. ár tré. 1 honum var óvenju Cristína og Helga meó gnóson sinn. elsið gaf gamla konan mér aðra festi enn fallegri í kveðjuskyni. Cristína starfar mikið í sam- bandi við kirkjuna og meðal fá- tæks fólks. Hún fór í framhalds- skóla og hefur kennararéttindi. Cristína er gáfuð og fjölfróð kona og mjög ólík öðrum konum þarna. Til hennar leituðu allir í þorpinu með sín vandamál, meira að segja hjónabandsmál þó hún væri orðin 35 ára gömul, ógift og hefði enga reynslu af slíkum málum. Vildi gefa barnið sitt Flest fólk þarna giftist ungt og á mikið af börnum enda engar getnaðarvarnir og állir kaþólskir nema indíánarnir. Meðan ég var að kenna kom eitt sinn til mín ung blökkukona og vildi fyrir hvern mun gefa mér son sinn á fyrsta ári svo ég gæti farið með hann með mér til Islands. Hún taldi víst að þar myndi hans bíða betri æfi en í Ecuador. Ég útskýrði fyrir henni að ég gæti ekki farið með drenginn en okkur kom saman um að ég yrði guðmóðir hans. Því hlutverki fylgja töluverðar skyldur í ka- þólskri trú. í Ecuador búa 8 milljónir manna.indíánar og afkomendur spænskra landnema. Landið er rúmir 2000 ferkílómetrar að stærð og skiptist í þrjá hluta, frumskóg, hálendi og láglendi. Hver hluti um sig er sérstakur heimur. Fólkið á hálendinu talar öðruvísi en fólkið á láglendinu og þar þrífst önnur menning. Mikill rígur er milli fólks frá hálendi og láglendi. Þeg- ar ég kom til Quito var ég kölluð Mono (api) en hálendismenn eru kallaðir Serrana sem þýðir há- lendisfroskur. Bahia er svipað að stærð og Hveragerði, hér búa 1200 Hús eins og algengt er aó lágstéttarfólk búi f. manns en í Bahia búa tuttugu þús- und manns, svo þétt er bekkurinn skipaður. Meðal fátæklinganna Við Cristína kenndum ekki bara heldur fórum við einnig í ferðir inn á milli fjallanna á hestum, með mat og föt til að gefa fátækl- ingum. Fólkið bauð okkur stund- um að borða með sér i þessum ferðum og þar fékk ég oft undar- legan mat að borða. Það var ekki skrítið þó ég fengi oft matareitr- un. Ég fékk þarna í mig þrjár teg- undir af amöbum og einnig fleiri veirur sem ollu mér ýmiskonar óþægindum. Ég fór tvisvar til læknis og fékk nóg af því. í fyrri ferðinni fékk ég laxerolíu og lifði á henni lengi, þar til ég fann að ég var að verða háð henni. Þá fór ég og fékk pillur sem ég skánaði af í bili. Eftir að ég kom heim fór ég til læknis og fékk meðul og er nú orðin góð. Þessar sýkingar stöfuðu mest af sóðaskapnum sem er við- loðandi þarna úti. Ólystugt fuglakjöt Versti matur sem ég smakkaði í þessum ferðum var hæna, sem slátrað var hálftíma áður en hún var borðuð. Hænurnar voru ekki látnar hanga svo blóðið var enn í kjötinu þegar þær voru soðnar. Þær voru hlutaðar sundur og hver fékk sinn bita af rauðbláu kjötinu með skinni sem var eins og tyggi- gúmmi. Þetta át fólkið og klærnar með eins og þær lögðu sig. — Besti maturinn sem ég fékk fannst mér vera ávextirnir. Af þeim voru mörg hundruð tegundir og þeir voru ódýrir. Fjölskyldan gaf mér að borða en öðrum nauðsyiríum þurfti að ég að sjá fyrir sjálf. Eg fór með 250 doll- ara með mér út og seinna voru mér sendir 175 dollarar sem reyndar fóru allir í gjafir, bæði fyrir fólkið hér heima og fátækt fólk úti. AFS sendi mér 500 krón- ur íslenskar mánaðarlega. Dýrt að leggjast á sjúkrahús í nóvember datt Luchto litli og meiddi sig á handlegg. Fyrst bjó skottulæknir um sárið. Upp úr því fékk hann illkynjað kýli og þurfti að fara á sjúkrahús. Það er mjög dýrt. Fjölskyldan hafði varla efni á að láta leggja hann inn svo ég lánaði þeim 100 dollara. Það rétt dugði fyrir aðgerðinni. Daginn eftir aðgerðina voru peningarnir búnir og hann var sendur heim til föðursystur sinnar með saltvatn í æð og pillur. Hann lifði þetta af þó möguleikarnir væru fyrir aðgerð- ina taldir rétt um 50 prósent. Luchto er sonur bróður Cristínu sem átti hann 16 ára gamall með 13 ára stúlku. Fyrst vildu fjöl- skyldur þeirra neyða þau til að giftast en til að afstýra því bauðst Cristína til að taka strákinn að sér og ala hann upp sem sinn son. Hættulegt umhverfi ungum stúlkum Foreldrar passa dætur sínar mjög vel svo þær eignist ekki börn ógiftar. Komi það fyrir eru þær yfirleitt neyddar til að giftast, hversu ungar sem þær eru. Mín var jafnvel enn betur gætt en inn- fæddu stúlknanna og fékk ég ekki að fara út nema í fylgd með kunn- ugum. Ég fór nokkrum sinnum á böll og mátti þá ekki þiggja neitt af neinum. Það var mikið um mannrán, morð og nauðganir þarna. Vinsæl aðferð er að byrla stúlkum svefnlyf í kók eða öðrum drykkjum. Ströndin er hættu- legust. Þangað fékk ég ekki að fara nema þá í hóp með öðrum á sunnudögum. Ungir menn eru mikið í eiturlyfjum og oft finnast illa útleikin lík af stúlkum og ung- um strákum sem heilir hópar af strákum hafa nauðgað og myrt síðan. Strákar fá ekki að koma nálægt stúlkum áður en þeir gifta sig og mér var sagt að ekki væri óalgengt að þeir hefðu mök við dýr. Feröamenn bjargast nauöuglega Meðan ég var þarna komu tveir franskir ferðamenn til þorpsins sem ekki kunnu orð í spænsku og ekki vissu hve ströndin er hættu- legur staður. Þeir fóru þangað tveir saman. Kona sem bjó þar rétt hjá heyrði óp og öskur frá ströndinni. Hún kallaði á mann sinn og son og sagði þeim frá lát- unum. Þeir hlupu út með byssur og þá flýðu árásarmennirnir burtu en höfðu þá náð peningum og öll- um útbúnaði af ferðamönnunum sem stóðu eftir með buxurnar á hælunum og sluppu nauðuglega við nauðgun. Maðurinn sem hjálp- aði þeim var góður vinur Cristínu. Strákar um og í kringum tvítugt halda sig í hópum og meirihlutinn af þeim eru vandræðamenn. Þó sumir strákar virðist almennilegir er samt ráðlegast að gæta sín vel á þeim. Mannslífiö einskis metiö í umferöinni Umferðarmenning er mjög furðuleg í Ecuador. Maður sá kannski 14 ára stráka aka vörubíl- um með strákahópum aftan á. Það er vinsælt að kaupa hálfkassabil (pick-up) fyrir fjölskylduna. Þá er hún geymd „aftan á“ eins og hún leggur sig, kannski 10 til 15 manns. Ég sá þarna líka stundum heilar fjölskyldur á einu mótor- hjóli, pabbann og mömmuna með ungbarn og kannski eitt til tvö börn í viðbót hrúgast á eitt hjól og ekkert þeirra með hjálm. Við slíku sagði lögreglan ekki neitt. Yfir- leitt má segja að ef menn ætla að halda lífi í umferðinni þarna þá veröa þeir að passa sig að vera ekkert að flækjast úti á götu. Mannlífið er einskis virði í um- ferðinni og ökuskírteini fá menn sér gjarnan á svörtum markaði þarna. Fáfræöin er mikil Menntun fólks er með ýmsu móti í Ecuador. Þar eru einkaskól- ar fyrir ríka fólkið en ég þekki litið inn á líf þess. Ég var meðal lágstéttanna. Skólar fyrir það fólk voru reknir af rikinu. 1 þeim skól- um eru börn sex ár í grunnskóla og sex ár í gagnfræðaskóla þegar best lét. Mér fannst krakkar mjög fáfróðir þó þeir hefðu lokið slíku námi. Kennarastéttin þarna er upp til hópa illa menntuð en nýtur virðingar eigi að síður enda fólkið ennþá fáfróðara. Kennarar eru yf- irleitt titlaðir herra eða ungfrú. Mér fannst mjög einkennilegt þeg- ar krakkarnir sögðu „ungfrú Helga“ við mig. Lífsglatt fólk Fólkið þarna var mjög létt í lund og þeir fátæku mun kátari en þeir ríku; hjá þeim var víst mikið um allskyns deilur. Gestrisni- var mikil meðal fátæka fólksins en lít- il meðal þess ríka, þar var manni varla boðið vatnsglas meðan þeir fátæku drógu fram allt það besta sem þeir áttu. Öll störf sem ég innti af hendi þarna voru ólaunuð, allt sjálfboða- vinna sem ég sinnti ánægjunnar végna. Ég fann fljótlega að allt sem ég kunni kom að notum því fólkið þarna úti kunni hreint ekki neitt. Meira að segja ensku gat ég kennt þó ég hefði nú einu sinni fallið í henni hérna heima. ' Veit nú að þaö er sælla aö gefa en þiggja Ég þroskaðist mikið þarna, kynntist margvíslegum mann- gerðum og hugsunarháttur minn breyttist, ég er sannarlega reynsl- unni ríkari. Ég lít lífið öðrum aug- um en ég gerði og hef lært að það er sælla að gefa en þiggja. Mig óraði í upphafi ekki fyrir því sem ég átti fyrir höndum að kynnast en ég hefði alls ekki viljað skipta og vera á heimili hjá ríku fólki eins og upphaflega var gert ráð fyrir. Ég er mjög þakklát AFS fyrir að hafa stuðlað að þessari lífsreynslu minni. Ég tel það vera hollt fyrir hvern ungling að kynn- ast einhverju svipuðu og ég kynnt- ist í Ecuador. Maður kann þá bet- ur að meta það hversu gott fólk hefur það hér.“ Að þessum orðum töluðum stöndum við upp og teygjum úr okkur eftir langt samtal. Helga fer inn í herbergi sitt og sækir kóralfestarnar sem hún hafði fyrr sagt frá og sýnir mér. Hún sýnir mér einnig þurrkað mannshöfuð frá indíánunum í frumskóginum og boga og örvar sem einnig eru frá þeim ættuð. Síðast en ekki síst dregur hún fram og sýnir mér myndir frá veru sinni í Ecuador og birtast nokkrar þeirra með þess- ari frásögn. Ég spurði hvað hún ætlaði sér í vetur og fékk þau svör að hún myndi stunda nám í Fjöl- brautaskólanum á Selfossi. Svo kvaddi ég Helgu Hassing og gekk út í haustsólina með minnisblöð, myndir og minningu um djarf- mannlega unga stúlku sem á opinn og einlægan hátt sagði mér frá því sem ef til vill verður eitt hennar mesta lífsæfintýri þegar upp er staðið. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.