Morgunblaðið - 08.09.1985, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.09.1985, Qupperneq 26
26 MOHGUNBLADIÐ, SUNNUÐAGUR 8. SEPTEMBER 1985 Afleiðingar njósnahneykslisins í Vestur-Þýskalandi: Ekki eru öll kurl komin til grafar Margarete Höke hefur játað á sig njósnir. Enn vindur njósnahneykslið í Vestur-Þýskalandi upp á sig. Hans Joachim Tiedge lét í fyrsta skipti heyra frá sér frá því hann flúði til Austur- Þýskalands. Margarete Höke, ritari forseta Sambandslýð- veldisins, hefur játað á sig njósnir. Og Helmut Kohl, kanslari, hefur lýst því yfir að innanríkisráðherra, en gagn- njósnaþjónustan heyrir undir það embætti, hafi hreinan skjöld og verði ekki vikið frá. Um þessar mundir er uppi fótur og fit inn- an vestrænna leyniþjónusta vegna njósnar- anna fimm sem annað hvort hafa flúið til Austur-Þýskalands eða verið handteknir. Verið er að vega og meta tjónið sem uppljóstr- anir fimmmenninganna hafa valdið og finna leiðir til úrbóta. Hans Joachim Tiedge, yfirmaður þess hluta deildar IV (sjá skýringarmynd) sem fer með gagnnjósnir í Austur-Þýskalandi, skaut upp kolíinum í Austur-Berlín og hefur nú skrifað vestur-þýskum stjórnvöldum stuttlegt bréf. Þar segist hann hafa flúið af fúsum og frjáls- um vilja 19. ágúst, daginn eftir að hans var saknað. Hann ber því við að hann hafi verið kominn í sjálfheldu og ekki átt annars kost. Sérfræðingar telja að bréfið sé ófalsað. Tiedge hefur neitað að ræða við vestur-þýsk yfirvöld og kemur það engum á óvart. Ekkert hefur spurst til Sonju Lúneburg, Ursulu Richter og Lorenz Betzing, en talið er að þau hafi komist undan til Austur-Þýska- lands. Forsetaritarinn játar njósnir Margarete Höke hefur játað á sig njósnir fyrir Austur-Þjóðverja. Hún var handtekin í Bonn 24. ágúst vegna þess að grunur féll á hana um að selja Austur-Þjóðverjum upplýs- ingar. Ekki hefur komið fram hvort hún segir allan sannleikann, en samkvæmt yfirlýsingu ríkissaksóknara viðurkennir hún að hafa far- ið til Kaupmannahafnar og tekið þar við borgun frá manni, sem vestur-þýska leyni- þjónustan telur vera útsendara Austur- Þjóðverja. Höke er talin hafa útvegað Austur-Þjóð- verjum trúnaðarskjöl um helstu heræfingar Atlantshafsbandalagsins. En það er sú vitneskja sem Tiedge hafði með sér austur yfir sem valdið hefur mestu fjaðrafoki. Enn er ekki víst hvort hann njósn- aði fyrir Austur-Þjóðverja áður en hann flúði eða hvort um skyndiákvörðun var að ræða eins og fram kemur í bréfi Tiedges. Alténd riðu drykkja, skuldir og þunglyndi honum á slig. Kona hans lést af höfuðhöggi fyrir þremur árum og dætur hans þrjár hafa komist í kast við lögin fyrir eiturlyfjamisferli. Allt þetta vissu yfirmenn Tiedges þegar 1983, en Heribert Hellenbroich, þáverandi yfirmaður gagnnjósnaþjónustunnar, var treg- ur til að víkja óreglusömum undirmanni sín- um frá. Þrátt fyrir að Tiedge kæmi oft og tíðum órakaður og angandi af víni til starfa, var hann hamhleypa til allrar vinnu — og hann vissi of mikið. Hlutur Zimmermanns; eða hlutleysi? Hellenbroich láðist að greina Friedrich Zimmermann, innanríkisráðherra, frá því hvernig komið væri fyrir Tiedge. Það var fyrir þá sök að Hellenbroich var vikið frá störfum fyrir rúmri viku, réttum mánuði eftir að hann var færður úr gagnnjósnaþjónustunni og gerður að yfirmanni vestur-þýsku leyniþjón- ustunnar. Helmut Kohl hefur lýst því yfir að Zimm- ermann verði ekki vikið úr ráðherrastóli sín- um. Það sé augljóst að hann hafi ekki vitað hvað var á seyði og því ekki hægt að kalla ráðherrann til ábyrgðar á flótta Tiedges. En Zimmermann hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki fylgst með starfsemi leyniþjón- ustanna sem skyldi. Því hefur verið haldið fram að ráðherrann hafi forðast afskipti af gagnnjósnaþjónust- unni, en það sé skylda ráðherra sem ber ábyrgð á stofnun sem vinnur á mörkum laga og ólaga að fylgjast náið með störfum hennar. Forveri Zimmermanns í embætti innanrík- isráðherra, Gerhardt Baum, fylgdist jafnan vel með störfum leyni- og gagnnjósnaþjónust- unnar. „Ég vildi vita hvernig málum væri komið [innan leyniþjónustanna]. Ég tók þá áhættu að geta ekki skýlt mér bak við fáfræði, ef eítthvað bæri undir. En ég átti þess einnig kost að beita áhrifum rnínurn," segir Baum. Þótt Zimmermann hafi ekki vitað af Tiedge, þá vissi hann að ekki var allt með felldu í deild IV. Hellenbroich kom að máli við Zimm- ermann í vor og greindi honum frá því að ringulreið væri á gagnnjósnadeildinni. Kvað Hellenbroich yfirmann deildarinnar, Rom- bach nokkurn, ábyrgan fyrir ringulreiðinni. Rombach var skipaður í stöðu sína af Zimmermann 1983 í trássi við vilja Hell- enbroichs og var þar með næsti yfirmaður Tiedges. Stjórnarandstaðan segir að Zimmermann hefði átt að athuga starfsemi gagnnjósna- deildarinnar þegar Hellenbroich leitaði til hans og þá hefði jafnvel komist upp hvernig ástatt var fyrir Tiedge. Joachim Krase, fyrrverandi varaformaður leyniþjónustu vestur-þýska hersins (Militár- isches Abschirmdienst, MAD), segir að það sé undarlegur yfirboðari sem enga innsýn hefur í stofnun sem hann ber ábyrgð á. Þá hefur njósnamál sem upp komst 1978 verið rifjað upp. Leyniþjónusta hersins (MAD) hafði í frammi ólöglegar hleranir á síma eins ritara þáverandi innanríkisráð- herra, Georgs Lebers, án vissu ráðherrans. Kohl, sem þá var í stjórnarandstöðu ásamt Zimmermann, heimtaði þegar afsögn Lebers. Þegar Helmut Schmidt, sem þá var kansl- ari, hikaði við að reka Leber hæddist Kohl að honum: „Þetta mál snýst ekki lengur um Georg Leber, heldur hina flóknu stærðfræði samsteypustjórnarinnar: Málið snýst um að halda völdum." Þegar Leber loks sagði af sér gekk Zimm- ermann fram fyrir skjöldu og fór fram á af- sögn kanslarans: „Schmidt á að fara eftir leikreglum þingræðís og lýðræðislegrar stjórnskipunar og taka afleiðingum þessa al- varlega máls, sem hann ber sjálfur ábyrgð á.“ Mikilvægi Tiedges En víkjum aftur að Tiedge. Flótti hans hef- ur komið róti á vestræna njósnastarfsemi, enda ekki fýsilegt að sú vitneskja, sem Tiedge bjó yfir komist í hendur Austur-Þjóðverja. Hann vissi •um allar aðgerðir vestur-þýsku gagnnjósna- þjónustunnar í Austur-Þýskalandi; •nöfn vestur-þýskra njósnara Austur-Þjóð- verja sem komist hefur upp um og fengnir hafa verið til að senda villandi upplýsingar til Austur-Þýskalands; •nöfn Austur-Þjóðverja, sem fengnir hafa verið til að njósna í Austur-Þýskalandi; •nöfn þeirra, sem stjórna starfsemi ofan- greindra gagnnjósnara í Austur-Þýskalandi frá Vestur-Þýskalandi; •um álitsgerðir gagnnjósnadeildarinnar um styrk austur-þýskrar njósnastarfsemi í Vestur-Þýskalandi og veikleika (og ekki víst að Austur-Þjóðverjar hafi sjálfir gert sér grein fyrir); •um skýrslur, sem gagnnjósnaþjónustan gerði um veikleika og styrkleika eigin starfsemi; •hvaða árangur rannsóknir vestur-þýsku gagnnjósnaþjónustunnar á háttsettum emb- ættismönnum hefur borið og þekkti rann- sóknaraðferðir hennar. Hann gæti því hafa sagt Austur-Þjóðverjum hvort Vestur-Þjóð- verjar hefðu fengið veður af gagnnjósnurum þeirra og hverjir væru ekki í hættu; •hverjir kollega sinna væru líklegir til að Uppbygging vestur-þýsku leyniþjónustunnar Skrifstofa kanslara Samstilling leyniþjónustanna: Waldemar Schreckenberger Innanríkisráöherra:! Friedrich Zimmermann lEftirlitsdeild Yfirmaöur gagnnjósna þjónustunnar: Holger Pfahls Deildir: J \ZJ h j Yfirstjórn tza Forgangsmál uzJ Hægriöfgamenn mJ ——-y Vinstri öfgamenn i : ^iv)—uÁll I Gagnnjósnir pcJ Gæslaleynigagna pcJ /vi y. : ,jj , /y||\ Utlendingaeftirlit jxa mmmmmmrnmmmmmt Hryöjuverk ; Oryggismálaráðherra Erich Mielke Yfirmaður a-þýsku' leyniþjonustunnar: Tengiliður viöKGB Stjórnmálaráöiö Starfsliö stjornar leyniþjonustunnar Deildir Villandi upplýsingar 1 Afturvirk starfsemi Visinda-og tæknideild StjornkerfiVestur- Þýskalands Vinnsla ávísinda- og tæknigögnum L Flokkarogfjolda- samtök í V-Þvskalandi Þjalfun/menntun Skjalasafn Kapltalísk útlönd Skolileym- þjónustunnar .—^XIII^-----1 | Gögnum 1 tækni- og | vísindarannsóknir Dulmálsdeild ■ ■■■ Hernaöarnjósnir Staösetning njósnara Vinnslaupplýsinga Rafeindaiönaöur ernaðartækni Önnur tækni MÓTHERJARNIR Skipulagnmg aögeröa Uppbygging leyniþjonustu austur- ^ þýska örygg isráöuneytisins a^ixp Gagnnjósnir Hans Joachim Tiedge i kjötkveðjuhitíð í Köln.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.