Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985
27
/
njósna fyrir Austur-Þjóðverja, ef rétt væri
farið að þeim.
Tiedge hafði aftur á móti ekki vitneskju um
útsendara vestur-þýsku leyniþjónustunnar
(Bundesnachrichtendienst) í Austur-Þýska-
landi. Gagnnjósnaþjónustan hefur ekki að-
gang að þeim upplýsingum.
„Sumir eru góðir vinir;
þeir fá að vita allt“
Brotthlaup Tiedges hefur leitt í ljós hvernig
leyniþjónustur vesturlanda vinna saman.
Gagnnjósnadeild bresku leyniþjónustunnar
(K-deildin) hefur náin samskipti við gagn-
njósnaþjónustuna í Köln. „Bandamenn eru
ekki endilega vinir. Sumir eru góðir vinir —
til dæmis Bandaríkjamenn — þeim segjum
við allt. Aðrir eru aðeins vinir og siðastir
koma þeir varasömu — þeir fá jafn lítla vitn-
eskju og auðið er. Samskiptin við Vestur-
Þjóðverja eru góð, þeir fá allt að því jafn
miklar upplýsingar og Bandaríkjamenn," seg-
ir einn starfsmaður bresku leyniþjónustunn-
ar.
Tiedge hefur unnið með K-deildinni við að
svipta hulunni af austur-þýskum njósnurum á
Bretlandi og þekkir því til starfsaðferða Bret-
anna.
Það hefur vakið athygli að flestir austur-
þýsku njósnararnir sem hafa flúið eða verið
handteknir undanfarnar þrjár vikur voru ekki
ríkiserindrekar undir fölsku flaggi, heldur
„ólöglegir" útlendingar sem höfðu komið inn í
landið sem almennir borgarar.
Heribert Hellenbroich vmr rekinn frá leyniþjónustunni með skömm, en
Friedrich Zimmermann, yfirboðari hans, situr áfram í ráðherrastólum.
„Góður „ólöglegur" útlendingur er sýnu
hættulegri en njósnari í gervi ríkiserindreka,"
er haft eftir heimildarmanni innan bresku
leyniþjónustunnar. „Það er fylgst með ríkis-
erindrekum, en „ólöglegur" útlendingur á auð-
veldara með að athafna sig óséður.“
Það er ljóst að ríkisstjóm Helmuts Kohl
ætlar að halda sessi, þrátt fyrir njósnamálið.
Það verður ekki sagt um það hér hvort Hell-
enbroich er blóraböggull Zimmermanns, en
honum verður ekki vikið frá, frekar en
Manfred Wörner, varnarmálaráðherra, sem á
síðasta ári rak fjögurra stjörnu herforingja,
sem var fulltrúi Vestur-Þjóðverja í Atlants-
hafsbandalaginu , Gúnter Kiessling, frá störf-
um vegna þess að leyniþjónusta hersins
(MAD) brigslaði honum um að sækja homma-
staði í Köln. í ljós kom að hér var um mann að
ræða sem líktist Kiessling og herforinginn
fékk uppreisn æru. En þeir starfsmanna MAD
sem hlut áttu að máli voru reknir.
Reynt hefur verið að halda njósnamálinu
utan samskipta Austur- og Vestur-Þjóðverja.
Franz Josef Strauss, forsætisráðherra Bay-
ern, hitti Erich Honecker, formann austur-
þýska kommúnistaflokksins, að máli á kaup-
skaparstefnunni í Leipzig, sem nú stendur yf-
ir. Njósnamálið kom ekki til tals á 90 mínútna
fundi þeirra og sagði Strauss eftir fundinn að
sér þætti fráleitt að gera samskipti grann-
þjóðanna háð þessu máli.
(K.B. þýddi og cndursagði úr Der Spiegcl, The
Observer, The Times og The New York Times.)
SKÓLINN TEKUR TIL STARFA 16. SEPT.
Innritun í alla flokka stendur yfir í dag.
Sími 83730 frá kl. 12—17.
Haustönn gjald 4.200.-
BYRJENDUR
7—11 ára mán. og fös. kl. 5.30.
12—13 ára þri. og fim. kl. 4.30.
12—13 ára þri. og fim. kl. 6.30.
14—16 ára þri. og fim. kl. 7.30.
14—16 ára miö. og fös. kl. 4.30.
16 ára og eldri þri., fim. og fös.
kl. 4.30.
(Fólk af sumarnámskeiðum eöa
meö einhverja undirstööu.)
T
Gestakennari
frá Pineapple
kemur í nóv.
London
I
Flokkaröðun og af-
hending skírteina laug-
ardaginn 14. sept.
Framh. kl. 13—15.
Byrjendur kl. 16—18.
Hafa meö stundatöflu.
Framhaldsnemendur hafi
samband vid skólann sem
fyrst.
KENNARAR SK0LANS:
Bára, Anna, Sigríöur,
Margrét, Agnes, Sigrún
og Irma.
JASSBALLETTSKQLI
BARU
Suðurveri, Bolholti.
FÍD Félag íslenskra danskennara.