Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 28
28:
MOHGUWBLAÐIÐ; SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1986
J.J. Gittes
snýr aftur
Robert Towne og Jack Nkbolson sem J J. Gittes. Tekst þeim að endurbæta ('hinatown eða bars endurtaka?
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Ekkert lát virðist enn vera á
þeirri áráttu bandarískra kvik-
myndaframleiðenda að þynna út
góðar hugmyndir og góðar kvik-
myndir með svokölluðum fram-
höldum. Oftar en ekki er engum
greiði gerður með svona fram-
haldssögum, þótt á því séu undan-
tekningar. Og stundum tekst svo
vel til með frumhugmyndina eða
aðalpersónu frumverksins að
áhorfanda langar hreinlega að fá
meira að heyra. Ég segi fyrir mig
að ekki hefði ég neitt á móti því að
sjá annað hasargrín um þann
ófyrirleitna lögreglumann Axel
Foley sem Eddie Murphy gerði
ódauðlegan í Beverly Hills Cop. Og
nú ætla aðstandendur að gefa
okkur kost á því; í bígerð er nokk-
ur myndasyrpa um ævintýri Fol-
eys og ætti hún, ef vandað er til
handritanna, að geta orðið verðug-
ur keppinautur myndanna um
Bleika pardusinn sem skemmti-
legasta myndasyrpa seinustu ára.
Annað framhald sem ekki leggst
illa í þann sem hér skrifar, er
mynd sem tekin var í sumar í Los
Angeles og nefnist Two Jakes. Þar
snýr Jack Nicholson aftur f hlut-
verki J.J. Gittes, einkaspæjara
sem sló eftirminnilega í gegn i
kvikmyndinni Chinatown árið
1974. Þad verk ættu allir sem unna
vönduöum og skemmtilegum bíó-
myndum aö sjá og þeir aödáendur
Chinatown sem nú bíöa eftir fram-
haldinu geta rifjaö upp kynnin á
myndbandi á meöan.
Framhöld veröa aðeins fram-
hjáhöld gagnvart upprunalegu
hugmyndinni ef ekki tekst aö út-
færa hana upp á nýtt, ef í handriti
er ekki um endurnýjun aö ræða
heldur endurtekningu, útvötnun.
Skipti handrit þannig meginmáli
yfirleitt í gerö framhalda skiptir
þaö ennþá meira máli í gerö fram-
haldsins, aö Chinatown, sú mynd,
er kannski fyrst og síöast verk hins
góöa handritshöfundar. Chinatown
er eiginlega skólabókardæmi um
hugvitsamlega byggingu, snjöll
samtöl og skýrt dregnar persónur í
kvikmyndahandriti, en þetta
þrennt ræöur vitaskuld úrslitum
um árangurinn. Höfundur hand-
ritsins, Robert Towne varöi tveim-
ur árum í aö skrifa þaö og rak
smiöshöggiö síöan í samvinnu viö
þann mann sem flutti verkið af
blaöstöum yfir á filmu, þann stór-
snjalla leikstjóra Roman Polanski.
Chinatown byggir Towne reyndar
á sigildri bandarískri bókmennta-
hefö og kvikmyndahefö, — einka-
spæjarasögum og myndum, nánar
tiltekiö þeirri tegund sem Ray-
mond Chandler geröi ódauöiega
meö sögunum um Philip Marlowe
(sem James Garner túlkaöi eins og
best veröur á kosiö í myndinni
Marlowe, sem sjónvarpiö sýndi ný-
lega). En Towne blæs nýju lífi í
þessa hefö og skapar meö J.J.
Gittes einkaspæjara meö persónu-
legan stíl, sem vitaskuld er mjög
mótaöur af leikaranum, Jack Nich-
oison — ósvífinn og kaldlyndur, en
meö þá rómantísku réttlætiskennd
sem innbyggö er í heföina.
I upphafi Chinatown tekur Gittes
aö sér aö rannsaka hversdagslegt
framhjáhaldsmál fyrir eiginkonu
máismetandi embættismanns f
Los Angeies á fjóröa áratugnum.
En auövitaö reynist máliö vera allt
annað en hversdagslegt. Gittes
sogast inn í flókinn vef efnahags-
legrar, pólitískrar og kynferöislegr-
ar spillingar sem aö hluta tengist
átökum um Itfæö borgarinnar,
vatnsveitukerfiö. Towne spinnur
þennan vef af mikilli kunnáttu og
þeir Polanski fylla jafnt texta sem
myndmál Chinatown af líkingum
um vatn sem hvort tveggja í senn,
lifgjafa og smitbera spillingar og
dauöa. Towne hefur sjálfur greint
frá því aö um tíma hafi þessi vefur
veriö oröinn svo flókinn aö hann
sjálfur var farinn aö örvænta um
aö hann kæmist ekki til botns í
honum. En þaö tókst meö hjálp
Polanskis sem reyndar lagöi hand-
rttinu til hinn hrikalega, harmræna
endi. Towne fékk svo Óskarsverö-
launin fyrir besta kvikmynda-
handritiö þetta áriö og hefur þeim
verölaunum sjaldan, hvorki fýrr né
síöar, veriö jafn vel varið.
Chinatown er einhver mest full-
nægjandi spennumynd sem gerö
hefur veriö. Og þaö er full ástæöa
til aö hlakka aö þessu sinni til
framhaldsins, því handritið er í
góöum höndum, Robert Townes
sjálfs, sem einnig hefur tekiö aö
sér leikstjórnina.
Stjörnugjöf: Chinatown ★★★★
HEMPELS
- þakmálning, sérhæfð á þakjárn
HEMPELS þakmálning er sérhæfö á bárujárn
og hefur frábæra viöloöun og veðurþol.
Forskriftin að HEMPELS þakmálningu hefur
þróast í tímans rás á söltum sæ, þ.e. á
íslenskum hafskipum þar sem álagið nær
hámarki.
DYNASYLAN BSM 40 vatnsfaela og
VITRETEX plastmálning
- koma í veg fyrir steypuskemmdir eða
lagfæra þær með réttri meðhöndlun
Tvær yfirferöir meö DYNASYLAN BSM 40 og
síðan tvær yfirferðir með VITRETEX
plastmálningu tryggir margra ára endingu.
CUPRINOL
- alvörufúavarnarefnið sem fegrar og
fyrlrbyggir
CUPRINOL fúavarnarefnið greinist í 4
aðalflokka:
1. Grunnfúavarnarefni án yfirborðsfilmu.
2. Hálfgagnsætt litað fúavarnarefni í fjölda
viðariita.
3. Þekjandi lituð fúavörn í 7 litum.
4. Grænt fúavarnarefni í vermireiti og á
gróðurhús.
HEIMA
VARIMAR
LIÐIÐ
& Slippfélagið íReykjavík hf
MálningarverksmiÖjan Dugguvogi
Sími 84255