Morgunblaðið - 08.09.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1986
SVIPMYND Á SUNNUDEGI / Norodom Sihanouk fursti
„Stórbrotinn,
en óútreiknan-
legur maður“
NORODOM Sihanouk fursti er væntanlegur til íslands 15. september nk. og
mun dvelja hér í þrjá daga ásamt eiginkonu sinni, Monique furstaynju.
Sihanouk kemur hingað til lands til að kynna sjónarmið sín og annarra, sem
berjast gegn stjórn Víetnama í Kambódíu.
Saga Sihanouks fursta er að
miklu leyti saga Kambódíu, enda
var hann þar þjóðarleiðtogi í 30
ár, eða þar til honum var steypt af
stóli árið 1970. Þrátt fyrir útlegð-
ina, hefur hann alla tíð haft mikil
afskipti af málefnum Kambódíu
og sem landflótta þjóðhöfðingi,
búsettur í Kína, hefur hann haldið
uppi baráttunni gegn erlendum
valdhöfum í heimalandi sínu.
Sihanouk hefur alla tíð verið
umdeildur maður, en naut, og nýt-
ur enn, töluverðra vinsælda á
meðal hluta kambódísku þjóðar-
innar. Helst eru það bændur og
sveitafólk sem sýnir honum trygg-
lyndi og ber lotningu fyrir honum,
enda er hann síðasti ættliður kon-
ungsfjölskyldunnar sem rikti i
Kambódíu og hélt þjóðinni saman
óslitið i meira en þúsund ár.
Norodom Sihanouk fæddist i
Phnom Penh 31. október 1922, son-
ur Norodoms Suramarits konungs
og Kossamak Nearireath drottn-
ingar. Hann hlaut menntun sína i
Saigon, sem nú heitir Ho Chi
Minh-borg, og í París. Einnig fékk
hann herþjálfun i herskólanum í
Saumur í Frakklandi. Kambódía
var áður frönsk nýlenda og um
langt skeið var frönsk menning
mjög ríkjandi á meðal mennta-
fólks, þar til árið 1941 þegar Jap-
anir náðu landinu á sitt vald. Si-
hanouk var krýndur konungur
Kambódíu i apríl sama ár, þegar
afi hans lést og neyddu Japanir
hann þá til að lýsa yfir sjálfstæði
landsins árið 1945. Þegar Japanir
yfirgáfu svo landið, varð Sihanouk
ljóst að Kambódía þurfti á aðstoð
Frakka að halda, en um leið vildi
hann ekki tapa sjálfstæði lands-
ins, sem unnist hafði fyrir til-
stuðlan Japana.
í gegnum tíðina hefur Sihanouk
óhræddur reynt að afla sér vina á
báða bóga og oft teflt á tæpasta
vað þegar hann bliðmæltist við
stórveldin á víxl. Sjálf-
stæðisbarátta hans tókst þó með
slíkum ágætum að árið 1954 viður-
kenndu Frakkar Kambódíu sem
sjálfstætt ríki. Um svipað leyti tók
Sihanouk sér einræðisvald og rauf
þing og styrktist þá staða Kamb-
ódíu gegn erlendum hersveitum og
sveitum Khmera í landinu. En
samkvæmt lögum sem gengu i
gildi árið 1955, var einræðisherra
ekki heimilt að sitja í iýðræðisríki
og afsalaði Sihanouk sér þá kon-
ungstign sinni og gerðist óbreytt-
ur borgari. Faðir hans var valda-
laus konungur, en Sihanouk ein-
beitti sér að því að halda velli í
stjórnmálaheiminum. Hann setti
á fót eigin stjórnmálaflokk og í
næstu kosningum á eftir hlaut
hann 83% atkvæða. Flokkurinn
hlaut svipað fylgi i kosningunum
1958, 1962 og 1966.
Sihanouk var nær einráður í
þinginu og lét það veita sér umboð
og völd sem þjóðhöfðingi og prins,
eftir að faðir hans lést. Stétt
menntamanna var að rísa upp í
landinu um þetta leyti, og var hún
lítt gefin fyrir einræðishyggju
konungsfjölskyldunnar. Sihanouk
hélt hlutleysisstefnu sinni og
reyndi ávallt að aka seglum eftir
vmdi og velja sér vini meira eftir
þörfum hverrar stundar en trygg-
lyndi. Hann ávann sér hylli
margra þegna sinna þegar hann
hafnaði aðstoð Bandaríkjamanna
árið 1963 og gerði sér þá dælt við
kommúnistaríkin, til að reyna að
halda Kambódíu utan við vaxandi
ólgu í Indókína. Sihanouk hélt að
Bandaríkjamenn yrðu þreyttir á
stríðinu í Indókína og eftir að þeir
færu, myndi S-Víetnam falla und-
ir stjórn kommúnista i Hanoi og
þá yrði stutt I að Kambódía og
Laos féllu einnig inn í hring þeirra
á skaganum.
Ekki var hann þó alfarið á móti
Bandaríkjamönnum, a.m.k. ekki
Sihanouk fursti. Hann sagði á fréttafundi í júlí sl. að hann væri búinn að
sætta sig við að sjá ekki framar höfuðborg heimalands síns, en hann myndi
samt halda áfram baráttunni gegn stjórn Víetnama í Kambódíu.
fríðum kvenkyns Ameríkönum,
því i október 1967 bauð hann
Jacqueline Kennedy, ekkju Johns
F., í opinbera heimsókn til Kamb-
ódíu. Hann fór með hana eins og
prinsessu og lét m.a. nefna götu í
borginni Sihanoukville eftir eig-
inmanni hennar heitnum.
Óstöðugleiki Sihanouks í banda-
mannavali og innanríkisstjórn-
málum varð honum þó að falli árið
1970, þegar honum var vikið frá í
valdatöku hægri manna. Markaði
það upphafið að stríðinu á milli
annars vegar stjórnarinnar í
Phnom Penh, sem studd var af
Bandaríkjamönnum, og hins vegar
kambódískra uppreisnarmanna,
Rauðu khmeranna, sem studdir
voru bæði af Norður-Víetnömum
og Viet-Cong. í október sama ár
var Kambódía lýst lýðveldi og
tveimur árum síðar var Lon Nol
kjörinn forseti. Sihanouk var er-
lendis þegar valdaránið fór fram
og síðar sakaði hann bandarísku
leyniþjónustuna um að hafa staðið
að valdatökunni.
Pol Pot, „skrímslið", sem lét myrða
fimm af börnum Sihanouks. Furst-
inn sagði síðar eftir að þeir höfðu
hist, að Pot virtist hinn viökunnan-
legastí.
Sihanouk komst inn undir hjá
forystumönnum í Kína og frá
heimili sínu í Peking stjórnaði
hann hreyfingu stjórnarandstæð-
inga í mörg ár. Lon Nol ríkti að
vísu ekki lengi á valdastóli, því ár-
ið 1975 tóku Rauðu khmerarnir
völdin, undir stjórn hins alræmda
Pols Pot, og náðu Phnom Penh á
vald sitt. Sihanouk snerí aftur til
heimalands síns, en var fljótlega
handtekinn af hermönnum
khmeranna og settur í stofufang-
elsi. Rauðu khmerarnir voru harð-
skeyttir og svifust einskis á
stjórnarferli sínum. Sem dæmi
um ruddamennsku þeirra má
nefna að þeir söfnuðu öllum fyrr-
verandi liðsforingjum, sem gegnt
höfðu hermennsku í tíð Sihan-
ouks, saman rétt fyrir heimkomu
hans til landsins, létu þá klæðast
gömlu herklæðunum sínum og
skreytta orðum, en smöluðu þeim
svo upp á vörubílspalla, óku út af
vegi utan við Phnom Penh og
skutu þá alla til bana með vélbyss-
um.
Sihanouk var í stofufangelsi í
fjögur ár og á meðan gengu Rauðu
khmerarnir berserksgang um
borgir Kambódíu og myrtu hundr-
uð þúsunda borgara í þræla- og
útrýmingarbúðum og lögðu marga
helstu menningargripi og staði
þjóðarinnar í eyði.
Sihanouk var leystur úr haldi
árið 1979 og er talið að Kínverjar
hafi átt mestan þátt í að fá hann
lausan. Sama ár gerðu Víetnamar
innrás í Kambódíu og flæmdu
Rauðu khmerana frá völdum og
tóku höfuðborgina á sitt vald. Si-
hanouk fluttist aftur til Peking og
hefur ýmist dvalið þar í vellyst-
ingum, undir verndarvæng kín-
versku stjórnarinnar, eða í Pyong-
yang, höfuðborg N-Kóreu. Hann
hefur allt frá 1979 ferðast vítt og
breitt um heiminn til að afla
stuðnings við baráttu sína gegn
Víetnömum í heimalandi sínu.
Hann hefur keypt vopn handa
hersveitum, sem hann kom á fót
árið 1981 og telja nú á milli 7.000
og 10.000 skæruliða. Hann hefur
einnig hvað eftir annað beðið
Sameinuöu þjóðirnar, hinar vest-
rænu þjóðir og Asiulöndin um að
beita þrýstingi til að koma Víet-
nömum út úr Kambódíu.
Árið 1982 neyddist Sihanouk til
að ganga í bandalag við Pol Pot og
Rauðu khmerana, sem einnig berj-
ast gegn stjórn Víetnama. Sihan-
ouk hefur ávallt sagt að hann
fyrirlíti Rauðu khmerana, en þeir
hafi báðir sama markmiðið — að
koma erlendum aðilum frá völdum
í Kambódíu. Bandalagið fékk við-
ifi
Hefurðu nokkuð hugsað út í þetta?
Heiöraöi viöskiptavinur!
Tilgangurinn meö þessari auglýsingu er aö vekja athygli þína á þeim möguleika aö auglýsa vörur yöar
og þjónustu á undan myndum þeim sem viö höfum til framleiöslu og dreifingar.
Hér er um sívaxandi markaö aö ræöa sem opnar þér greiöa leiö inn á heimili neytenda.
Myndbönd hf. er eitt stærsta fyrirtæki útgáfu og dreifingar hér á landi meö um 30—40 titla í hverjum
mánuöi. Upplagiö stækkar sífellt en er breytilegt.
Hér er því um tilvaliö tækifæri aö ræöa sem er auövelt í allri vinnslu og umfram allt ódýrara en aörir
fjölmiölar. Viö höfum áhuga á aö kynnast þér og þínum vörum og koma þeim á framfæri viö okkar
neytendur.
Haföu því samband viö okkur og viö finnum okkur tíma til aö ræöa þínar óskir.
MYNDBÖND HF
Skeifunni8, si'mar 687310 og 686546,
108 Reykjavík, pósthólf 84Ö7.