Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1986
35
Sihanouk var álitinn hinn mesti kvennamaður á sínum yngri árum og hreifst
bann m.a. mjög af Jacqueline Kennedy, ekkju John F., fyrrum forseta
Bandaríkjanna. Á myndinni er hann að spjalla við Jacqueline þegar hún kom
í opinbera heimsókn til Kambódíu f október 1967.
urkenningu SÞ sem hin eina
sanna stjórn í Kambódíu, en árás-
ir Víetnama fyrr á þessu ári, sem
eyddu nær öllum bækistöðvum
bandalagsins nálægt landamær-
um Thailands, drógu þó úr áhrifa-
mætti bandalagsins.
En hvers konar maður er Sihan-
ouk? Eitt helsta einkenni hans er
hve óútreiknanlegur hann er og á
fyrstu árum valdaferils síns tóku
leiðtogar stórveldanna hann ekki
alvarlega. Hann hefur á síðari ár-
um virst líta málefni Kambódíu
raunsærri augum og hefur sann-
færst um að 10.000 manna skæru-
liðarher getur ekki tekist á við
160.000 manna her Víetnama, án
þess að fá utanaðkomandi hjálp.
Víetnamar hafa undanfarið flutt
mikið af óbreyttum borgurum og
sveitafólki til Kambódíu, sem
hluta af fyrirætlun sinni um að
sameina Víetnam og Kambódíu.
Sihanouk horfist nú í augu við að
tíminn er að renna út fyrir frels-
issinnana og hefur hann viður-
kennt þann vanda.
Með Sihanouk í förinni til ís-
lands er eiginkona hans, Monique
furstaynja. Hún er sjötta kona Si-
hanouks og saman eiga þau tvo
syni. Sihanouk átti alls 13 börn, en
fimm þeirra voru myrt af Rauðu
khmerunum. „Börnin sem ég átti
með fyrri konum mínum hurfu.
Mér var sagt að þau hefðu verið
myrt á hroðalegan hátt, kvaldist
ég því enn meir í bandalaginu með
Rauðu khmerunum, sem ég neydd-
ist til að ganga í,“ sagði Sihanouk
í viðtali sem tekið var í júlí sl.
Ástæðan fyrir því að synir hans
og Monique voru ekki myrtir, var
að Mao Tse Tung, fyrrum leiðtogi
Kínverja, fékk Rauðu khmerana
til að láta þá lausa.
En Sihanouk er maður sem
skiptir oft um skoðun og í sama
viðtali viðurkenndi hann að Pol
Pot, „skrímslið sem myrti börnin
mín“, væri í raun viðkunnanlegur
maður. „Við vitum að hann er
villidýr, en þegar maður hittir
hann, er hann hinn viðkunnanleg-
asti,“ sagði Sihanouk. „Hann er
ekki ljótur en örlítið feitur. Hann
brosir, talar lágum rómi og er allt
öðru vísi en ímynd hans sem Hitl-
er í öðru veldi,“ sagði hinn 63 ára
gamli fursti.
Fyrir utan umdeilda kænsku í
stjórnmálum, er Sihanouk gæddur
hinum ýmsu hæfileikum, s.s. er
hann talinn ágætur saxófónleik-
ari, tónskáld, ljóðskáld og rithöf-
undur. Hann er hrifinn af jazz-
tónlist, góðum mat og fögrum
meyjum og á sínum yngri árum
var hann álitinn hinn mesti
kvennabósi. Hann hefur einnig
verið viðriðinn kvikmyndagerð og
gerði m.a. mynd eftir leikritinu
um litla prinsinn. Hann er talinn
góður gestgjafi og á það til að
halda miklar veislur í stórhýsi
sínu í Peking, þar sem allt flýtur i
kampavíni og kavíar. Þar eru ým-
ist flutt hefðbundin þjóðlög frá
Kambódíu, eða vinsælustu „rokk
og ról“-lögin frá Vesturheimi.
Hann getur því talist að öllu
leyti stórbrotinn maður og eins og
einn fréttaskýrandi hefur orðað
það: „Það eina sem maður getur
alltaf reiknað með hvað varðar Si-
hanoúk, er hve óútreiknanlegur
hann er.“
(llcimildir: MorgunblaðiA, AP, llerald Tribune,
New Yorli Times, Newsweek, Time ofl.)
Texti: Helga Guðrún
Hárgreióslustofan
Salon
AUSTURSTRÖND 1
SELTJARNARNESI
®626065
Höfum fengiö til sölu hinar frábæru
Kerastase-hársnyrtivörur frá L’Oreal.
Ath.: OpiA veröur é laugardögum fré 9—13 eftir 1. okt.
Pöntunarafmi 626065.
Tannlæknastofa
á Seltjarnarnesi
Hef opnaö tannlæknastofu aö
Eiöistorgi 15.
Tímapantanir í síma 611275.
Pétur Svavarsson,
tannlæknir.
& l
H
(/)
o
(0
markadur
verður haldinn á
Vöruloftinu vikuna
frá 9.—14. september.
SKÓLAPEYSUR, SKÓLA-
BUXUR, SKÓLATÖSKUR,
GÖTUSKÓR, ÚLPUR,
SKYRTUR, SOKKAR, NÆR-
FATNAÐUR OG FLEIRA OG
FLEIRA.
Greiöslukortaþjónusta.
OPNUNARTÍMI
10—18 mánudaga—miövikud.,
10—19föstudaga,
10—16laugardaga.
Ódýra horniö hefur opnaö aftur
meö verðifrá
10—150 KR.
VÖRULOFTIÐ ih.
SIGTÚNI3, SÍMAR 83075.