Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 08.09.1985, Blaðsíða 51
honum fyrir mína hönd og fjöl- skyldu minnar. Guðrún sýndi í veikindum sínum mikið þolgseði og æðruleysi sem jafnan fyrr. Eg vil að leiðarlokum þakka henni fyrir hennar kærleika til mín og minnar fjölskyldu. Guðbrandur Ásmundsson Þann 29. ágúst síðastliðinn lést I Landakotsspítala Guðrún Ant- onsdóttir, Ásvallagötu 16, Reykja- vík, eftir nokkurra vikna erfiða legu. Útför hennar fer fram frá Fossvogskapellu á morgun, mánu- daginn 9. september. Guðrún fæddist á Djúpavogi 2. maí 1902, foreldrar hennar voru Magnea Guðbjörg Sæmundsdóttir og Anton Christiansen danskrar ættar. Nokkurra vikna gömul fór Guðrún í fóstur til frænda síns, Andresar Erlendssonar, og konu hans, Guðrúnar Loftsdóttur, er bjuggu að Vestri-Hellum í Gaul- verjabæjarhreppi. Ætlunin var að hún yrði þar skamman tíma, meðan móðirin væri að koma sér fyrir vestur í Kanada ásamt fjöl- skyldu sinni. Móðir Guðrúnar veiktist skömmu eftir komuna vestur og lést þar. Guðrún dvaldi því hjá fósturforeldrum sinum fram til tvítugs og átti þar góða daga með fóstursystkinum og öðru heimilisfólki. Þegar Guðrún yfir- gefur æskuheimili sitt fer hún til Reykjavíkur og er við heimilisstörf hjá fóstursystur sinni, Kristinu, og manni hennar, Markúsi Ivars- syni. Árið 1923 giftist Guðrún sveit- unga sinum, Gesti Ámundasyni frá Rútsstöðum í Gaulverjabæjar- hreppi, miklum ágætismanni, gáf- uðum og vel gerðum. í fyrstu bjuggu þau í leiguhúsnæði en fljót- lega hófu þau byggingu íbúðarhúss á Ásvallagötu 16, ásamt Sigurði bróður Gests. Ber það vitni dugn- aði þeirra og áræði þvi reisulegt var það og vandað að allri gerð. Milli fjölskyldna þeirra bræðra og systur Jódísar var mikill kærleik- ur alla tíð. Þeim Guðrúnu og Gesti varð fjögurra barna auðið, allt myndar- legt og velgert fólk sem ber svip- mót foreldra sinna. Börn þeirra eru: Sigríður, sem gift var Guð- brandi Bjarnasyni er lést langt um aldur fram í nóvember 1969, sam- býlismaður hennar er Hilmar Þór Björnsson, Guðmundur, kvæntur Karólínu Halldórsdóttur, Gestrún, gift Guðbrandi Ásmundssyni, Erla, gift þeim er þessar línur ritar. Barnabörnin eru níu, barna- barnabörnin níu. í marz 1937 verður Guðrún fyrir þeirri miklu sorg að missa Gest. Það hefur verið mikið áfall fyrir unga konu með fjögur bðrn á aldr- inum þriggja til þrettán ára að missa fyrirvinnuna. Á þeim árum var fátt um Iífeyrissjóði eða trygg- ingar til að létta undir hjá þeim er áttu í slíkum erfiðleikum, en Guðrún lét ekki bugast. Til að sjá fjölskyldunni farborða og greiða skuldir af húsinu tók hún menn í fæði, einnig fór hún að leigja meira út af húsinu. Með dugnaði sínum og þrotlausri vinnu kom Guðrún öllum börnum sínum upp ein og óstudd. Guðrún var glæsileg kona, dökk yfirlitum og fríð sýnum, hafði stórt hjarta sem margir áttu rúm í. Ég kynntist Guðrúnu fyrst 1952, er við dóttir hennar felldum hugi saman. Guðrún var ekki fljóttekin en eftir að kynni okkar tókust hefur aldrei skugga á þau borið. Hún hefði vart getað verið mér betri þó ég væri sonur hennar og svo var einnig um hin tengdabörn hennar. Árin líða, barnabörn koma hvert af öðru, síðan barnabarnabðrnin, en öll áttu þau athvarf hjá ömmu sinni, líf hennar snérist um velferð barna hennar og fjölskyldna þeirra. Ég minnist þess hve mikla ánægju hún hafði af að fá þau i heimsókn. Á öllum stórhátíðum safnaðist fjölskyldan saman á Ásvallagötu 16 og voru það öllum gleðistundir. Þegar börnin voru uppkomin og farin að heiman minnkaði Guðrún við sig vinnuna á sumrin. Á þeim tíma voru aðallega skólapiltar úr MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 51 Háskólanum í fæði hjá henni og margir öll sín skólaár. Sumir þeirra hafa haldið tryggð við hana siðan og sama má segja um það fólk er hjá henni leigði. öfáar voru ferðir Guðrúnar á sjúkrastofnanir og Eiliheimiiið Grund að heimsækja og gleðja sveitunga og vini, en sumt af þessu fólki átti fáa að. Árið 1961 hefja þau sambúð Guðrún og Guðni Guðnason lög- fræðingur, en hann reyndist henni sannur vinur og félagi. Kom það best fram í veikindum hennar síðustu árin hve mikla umhyggju hann bar fyrir henni. Nú síðustu vikurnar vék hann ekki frá sjúkra- beði hennar fyrr en yfir lauk. Guðrún hafði mikla ánægju af ferðalögum, bæði á sjó og landi, en það var ekki fyrr en hún kynnt- ist Guðna að hún gat veitt sér það I einhverjum mæli. Guðrún var víðlesin og fróð. Síðustu árin er sjónin fór að bila las Guðni fjölda bóka fyrir hana. Var lestur hans henni til mikillar gleði og dægrastyttingar. Guðrún hafði mikla ánægju af ræktun blóma, átti það jafnt við úti- sem inniblóm. Hún kom sér upp fallegum skrúðgarði þar sem hún ræktaði ýmsar tegundir blóma og trjáa. í garði hennar vex eitt fegursta gullregn sem ég hef aug- um litið. Guðrún mun seint gleymast þeim sem kynntust henni. Hún var óvenjulega heilsteypt kona, hrein- lynd og staðföst, trygg vinum sín- um og bar umhyggju fyrir þeim er minna máttu sín. Nú er komið að leiðarlokum og kveðjustund og vil ég þakka minni kæru tengdamóður fyrir sam- fylgdina og allt er hún var mér og minni fjölskyldu og bið henni Guðs blessunar. Viðar Þórðarson Þau eru orðin fá börnin, þvi miður, sem fá að alast upp í dag- legri umgengni við bæði foreldra, ömmur og afa. Okkur systkinunum finnst það mikil forréttindi að hafa vaxið úr grasi í húsi þriggja kynslóða; auk foreldra okkar voru þeir þar móðurafi okkar og hann Nonni gamli, sem báðir dóu fyrir 17 árum, og föðuramma okkar, sem jarðsett verður nú á mánudaginn. Við kölluðum hana auðvitað bara ömmu, en viö vissum það ofur vel að hún hét Guðrún Antons- dóttir og að nafnið var sagt með höfðinglegri reisn — þess háttar höfðingjaætta sem drógu fram lífið á kotbýlum, í vinnumennsku og á hrakhólum mann fram af manni, en komu út úr moldarkof- unum inn í 20. öldina og þóttust ekki standa öðrum að baki. í kringum ömmu var alltaf mikið líf. Frá eldhúsinu hennar barst á víxl matar- og bökunarilm- ur, og miklar mannaferðir voru um húsið. Hún hafði kostgangara frá því löngu áður en við fædd- umst, og við munum eftir þeim rúmlega tíu, gömlum og slitnum verkamönnum og ungum metnað- arfullum námsmönnum. Tveir þeirra eru víst komnir á þing, en merkari þótti okkur kallarnir, sem tóku okkur á kné og ræddu við okkur þannig sem við höfðum þroska til. Bæði þeir og aðrir, sem kíktu inn í kaffi, og svo auðvitað amma, báru með sér sögu gamalla tíma, þess sveitalífs sem lítið hafði breyst um aldir, upphafs bæjar- menningar og kreppunnar. Oft hækkaði rómurinn þegar deilt var um herstöðina eða hvaða ríkis- stjórn væri verst, en þá hastaði amma stundum á kallana sina. Eins hastaði hún á okkur krakk- ana, þegar við hömuðumst of mikið niðri, að mömmu fjarverandi, en oftar minnir okkur að hún hafi kallað á okkur 1 mjólkursopa, og með mörgum súkkulaðimolanum spillti hún okkur eins og siður er hverrar ömmu. Og veislumar hennar ömmu með ósviknu súkkulaði og rjóma og stríðstertur svo margar að mikið afreksverk var að geta smakkað á þeim öllum. Innan um fjölskyld- una sigldi ættmóðirin tígulega, lengst af í upphlut, en skipti þó yfir í stórrósótta kjóla, eins og dæturnar báru, einhvern tímann á öndverðum viðreisnarárum. Við þurftum hvorki höll né þjónustu- fólk til að upplifa töfra stórfjöl- skyldunnar á svipaðan hátt og Fanny og Alexander Bergmans. A hverju hausti fór fjölskyldan öll og nokkrir traustustu kost- gangararnir suður í Vatnsmýri og tóku þar upp kartðflur um eina eða tvær helgar.. Þar hafði amma komist yfir tvöfaldan garð og dugði þó ekki alveg fyrir allan ættbogann og mötuneytið. Nær alltaf var skítkalt og bogrið erfitt, en við hlökkuðum til þessara daga allt sumarið; svo sterkt seiðmagn fylgdi því að taka þátt í samstilltu átaki fjölskyldunnar og fagna því á eftir með maltöli og kexi undir skúrvegg. Hjá ömmu laut hver dagur ströngum lögmálum. Á morgnana sinnti hún verkum sínum á morg- unsloppnum, en klæddi sig upp á meðan hádegisverðurinn sauð í pottunum. Á hverju vori tók hún þykkar og hlýjar vetrargardínurn- ar niður og setti aðrar léttari upp. Svona var allt hennar líf hátt- bundið. En alltaf var pláss og timi fyrir barnabörnin; Sifa fékk af- gangana úr kjólum hennar til að sauma dúkkuföt úr; Gunna og Gestur drógu gömul leikföng, bækur og dönsk blöð úr töfrakist-’ unum uppi á háalofti. Seinna tók yngri kynslóð barnabarnanna við, ogenn seinna barnabarnabörnin. Margs fleira mætti minnast og það munum við gera með sjálfum okkur. Við munum líka alltaf minnast þess trygglyndis og ástúð- ar sem sambýlismaður ömmu, Guðni Guðnason, sýndi henni alla tíð og þó kannski sérstaklega f , veikindum hennar siðustu árin. i Sifa, Gunna og Gestnr. Minning: Guðrún Bjarnadótt- ir hjúkrunarkona Fædd 11. október 1906 Dáin 23. ágúst 1985 Kveðja frá bróðurbörnum. Mínir vinir fara fjöld feigðin þessa heimtar köld, ég kem eftir, kannske í kvöld, með klofinn hjálm og rifinn skjöld, brynju slitna, sundrað sverð og syndagjöld. Þessar ljóðlínur Bólu-Hjálmars komu ósjálfrátt upp i hugann er við fréttum lát föðursystur okkar, Guðrúnar Bjarnadóttur. óvenju- margir frændur og vinir hafa horfið yfir móðuna miklu á þessu ári, nú síðast Guðrún. Lögmál lífs- ins er nú vist einu sinni það, að þvi hærri aldri sem fólk nær, þeim mun fleirum verður það að sjá á bak. Þegar Guðrún er nú kvödd langar okkur að henni fylgi fáein kveðjuorð, svo margar minningar eigum við um hana og þær allar góðar. Hún fæddist á Grund í Skorra- dal 11. október 1906, yngst þriggja bama foreldra sinna, þeirra Bjarna Péturssonar bónda og konu hans, Kortrúnar Steinadóttur. Þar ólst hún upp með systkinum sín- um, en auk þeirra ólust tvö systur- börn Bjarna að mestu upp á Grund, þau Petrinan Kr. Fjeldsted og ólafur Hansson, síðar prófess- or. Mjög kært var með þessu fólki alla tið. Guðrún byrjaði ung að vinna eins og algengast var með unglinga áður fyrr og vann hún að búi for- eldra sinna meðan beggja naut við, en föður sinn missti hún árið 1928, þá tæplega 22 ára gömul. Okkur hefur verið sagt, að slíkur var dugnaður hennar að hverju sem hún gekk, að vart gaf hún eftir duglegustu karlmönnum. Móðir Guðrúnar var heilsuveil mikinn hluta langrar ævi og dvald- ist hún á Grund fram til ársins 1936, en er vanheilsa hennar ágerðist og hún þurfti að vera meira og meira undir læknishendi, fluttist hún til Reykjavíkur og dvaldi upp frá því á heimili Krist- inar dóttur sinnar. Guðrún flutti með móður sinni suður og annaðist hana, ásamt systur sinni, af ein- stakri kostgæfni þar til hún lést árið 1955. Ekki er ólíklegt, að heilsuleysi móður hennar hafi orðið til þess, að Guðrún hóf nám í hjúkrun eftir að hún flutti til Reykjavíkur og lauk hún því árið 1941. Ævistarf hennar upp frá því varð því hjúkr- unar- og liknarstarf. Okkur er t Þökkum innilega samúö og vinarhug viö andlót og útför ÞURÍOAR GUDJÓNSDÓTTUR, fyrrvarandi Ijóamóöur frá Kýrunnaratöóum. Sérstakar þakkir færum viö læknum og hjúkrunarfólki Sjúkrahúss Akraness fyrlr góöa umönnun f veiklndum hennar. Bára Siguröardóttir, Björgvin Hanaaon og börn. Guðrún var einhleyp alla ævi. Hún hugsaði minnst um sjálfa sig og sinn hag. Starf hennar og umhyggja fyrir öðrum var henni í rauninni allt. Hluta af sumarleyf- um sínum eyddi hún þó alltaf á Grund og naut þess að fara í gönguferðir um fornar slóðir með okkur börnunum og fræddi okkur þá um örnef ni og annað sem tengd- ist þeim. Guðrún var mjög bókelsk, las ætíð mikið og átti mikið safn af góðum bókum. Eftir að hún hætti störfum sem hjúkrunarkona árið 1977 annaðist hún um heimili mágs síns, Krist- jáns Þorsteinssonar, meðan kraft- ar hennar entust, en það hafði hún( raunar gert frá láti Kristínar systur sinnar árið 1969. Hún mátti reyna það að missa heilsuna og siðustu þrjú æviárin dvaldi hún á sjúkrastofnunum, nú síðast í Hafnarbúðum. Það varð henni erfitt hlutskipti og þráði hún að lokum hvíldina, sem hún hefur nú fengið. Þegar leiðir hafa nú skilið um sinn sendum við henni hjart- ans þakkir fyrir samfylgdina. Guð blessi minningu þessarar góðu konu. óhætt að fullyrða, að einhverjum hefur vafalaust farist það eins vel úr hendi og henni, en engum betur. Hlýja hennar og nærfærni við sjúka var slík, að rómuð var af öllum bæði þeim er nutu umönnun- ar hennar og aðstandendum þeirra. Það var ekki einungis þessi hópur fólks, sem mat hana að verðleikum, heldur allir sem kynntust henni. Þegar sorg og andstreymi ber að dyrum er gott að eiga góða að. Það fengum við systkinin að reyna, þegar við korn- ung misstum föður okkar. Þá var Gruðún frænka okkar meðal þeirra sem best reyndust okkur. Hún hélt órofa tryggð við okkur alla ævi eins og annað frændfólk sitt og samferðafólk i Borgarfirði. Það sama má segja um æskuheim- ili hennar, Grund, en þar þekkti hún hvern hól og hverja laut með nafni og lék það enginn eftir henni að því er við best vitum nema frændi hennar, ólafur Hansson. Blómastofa fíiöfinns Suðuriandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 0pi6 öll kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. + Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og útför EINARS G. KVARAN, framkvæmdastjóra, Kleifarvegi 1, Reykjavík. Kristín Helgadóttir Kvaran, Karítas Kvaran, Baldur Guólaugsson, Gunnar E. Kvaran, Snæfríður Þóra Egilson Helgi Kvaran, og barnabörn. í. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför bróöur okkar, INGA S. SIGMUNDSSONAR, Matariðjunni, Egilsstöðum. Guórún Sigmundsdóttir, Guðríður Sigmundsdóttir, Stefán Sigmundsson, Sigrún Sigmundsdóttir, Jóhann Sigmundsson, Sveinlaug Sigmundsdóttir, Árnína H. Sigmundsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.