Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 64

Morgunblaðið - 08.09.1985, Page 64
64 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 Skógræktar- menn eru bjartsýnis- fólk Fylgst meö landsfundi Skógræktarfélags Islands á Blönduósi, spjallaö viö skógræktarfólk og skyggnst um í húnvetnskum skógarreitum Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, veitti Haraldi Jóns- syni, formanni Skógræktarfélags A-Húnvetninga, viðurkenningu fyrir vel unnin sttfrf. Aðalfundur Skógræktarfélags íslands var haldinn á Blönduósi um síðustu helgi, dagana 30. ágúst til 1. septem- ber. Á annaö hundraö manns, fulltrúar og gestir, mættu á ,fundinn og lögöu á ráöin um hvernig best mætti stuðla aö því að klæða landið skógi milli fjalls og fjöru. Kom fram á fundinum að félagar telja skógrækt eiga vaxandi fylgi aö fagna meðal almennings í landinu. Á föstudeginum lögðu formaður Skógræktarfélags íslands, Hulda Valtýsdóttir, og framkvæmda- stjórinn, Snorri Sigurðsson, fram skýrslur og skógræktarstjóri, Sig- urður Blöndal, ávarpaði fundinn. Einnig voru reikningar lagðir fram og kosið í ráð og nefndir. Fundarstjóri aðalfundarins var v kjörinn Þorvaldur S. Þorvaldsson. Formaðurinn, Hulda Valtýsdóttir, minntist í setningarræðu sinni tveggja félaga Skógræktarfélags- ins, sem létust á árinu, þeirra Þór- arins Þórarinssonar á Eiðum, sem var heiðursfélagi Skóræktarfélags fslands, og Jóns Pálssonar, er lengi var formaður Garðyrkjufé- lags íslands. Þá bauð formaðurinn velkomna tvo norska gesti, sendiherra Norð- manna á Islandi, Niels Lauritz Dahl og Toralf Austin, fyrrver- andi formann norska skógræktar- félagsins. Toralf Austin hefur lengi verið í forystusveit norskra skógræktarmanna og hefur einnig reynst íslenskum skógræktar- mönnum haukur í horni á liðnum árum. Hann er heiðursfélagi Skógræktarfélags íslands og hef- ur verið sæmdur íslensku fálka- orðunni fyrir framlag sitt í þágu skógræktar hér á landi. Norska vinatréð Norski sendiherrann, Niels Lauritz Dahl, afhenti á þessum fyrsta degi aðalfundarins Jónasi Jónssyni, búnaðarmálastjóra, svonefnt „vinatré" í viðurkenn- ingarskyni fyrir stuðning hans við skógræktarmál. Jónas er fimmti maðurinn sem hlýtur viðurkenn- inguna, sem veitt er til skiptis örðmanni og íslendingi. „Þessi viðurkenning er veitt þeim sem þykja hafa lagt mikið af mörkum til samvinnu Norðmanna og íslendinga um skógrækt," sagði Hákon Bjarnason, fyrrverandi skógræktarstjóri ríkisins, er hann sagði blaðamanni Morgunblaðsins frá tilurð „vinatrésins" norska. Hákon hefur sjálfur fengið þessa viðurkenningu, ásamt Guðmundi Marteinssyni og Norðmönnunum Nils Ringstedt og Toralf Austin, sem áður sagði frá. „Sendiherra Noregs á íslandi á árunum 1947 til 1958, Torgeir Anderssen-Ryst og kona hans Ruth, höfðu mikinn áhuga á skóg- rækt og viðgangi hennar á ís- landi," sagði Hákon. „Anderssen- Ryst hafði sem ungur drengur í Álasundi tekið þátt í því að plægja skóg undir stjórn íslendings, sem hét Helgi Valtýsson og fékk, er hann fluttist hingað, mikinn áhuga á að græða skóg hér. Hon- um fannst Norðmenn eiga íslend- ingum skuld að gjalda, m.a. vegna Heimskringlu Snorra og að besta leiðin til þess að endurgjalda þá skuld væri að hjálpa okkur að koma upp skógi í landinu á ný. Það var Ánderssen-Ryst sem átti, ásamt norska fylkisskógar- meistaranum Reidar Baten, upp- tökin að skiptiferðum ungs fólks frá íslandi og Noregi til skógrækt- arstarfa, sem hófust árið 1943 og hafa verið farnar þriðja hvert ár síðan. Fjöldi íslendinga hefur far- ið til Noregs í þessum ferðum og ákaflega margir Norðmenn komið hingað. Þessar ferðir hafa orðið skógræktarfélögum víða um land mikil lyftistöng því að fólk sem fer í þær fær í sig bakteríuna. Anderssen-Ryst vildi þó gera meira til eflingar íslenskri skóg- rækt, en hann lést árið 1958, að- eins mánuði eftir að hann lét af embætti. Skömmu seinna kom til landsins norski blaðamaðurinn Edmund Norén og gekkst hann, í kjölfar þeirrar heimsóknar, fyrir því að Norðmenn gæfu íslending- um þjóðargjöf. Sú þjóðargjöf er tilrauna- og rannsóknarstöð skógræktarinnar að Mógilsá. En samtímis höfðu vinir Anderssen- Ryst-hjónanna hafið samskot í svipuðu skyni. Þar var kominn talsverður sjóður en nú þurfti að finna honum annað hlutverk. Það varð úr að norski listamaðurinn Spáð í skóginn. Per Ung var fengin til þess að gera þetta listaverk, sem nú er veitt sem viðurkenning fyrir að stuðla að vexti og viðgangi norsk- íslenskrar skógræktarsamvinnu", sagði Hákon. „Þetta er gamalt sterkt eikartré, steypt í brons. Það stendur af sér öll veður og er að mínum dómi fallegt tákn fyrir þennan málstað." Haustfetar og sitkalýs tekin á beinið Að morgni laugardags var áfram fundað og ennfremur hlýtt á erindi þeirra Þórarins Bendix og Jóns Gunnars Ottóssonar, liffræð- ings, sem báðir starfa við Rann- sóknarstöð Skógræktar ríkisins á Það væri synd að segja að birkihríslurnar skemmdu landslagið f Blöndudalshólum. (Morgunbladið/Hildur Helga S.) Mógilsá. Sagði Þórarinn frá helstu atriðum varðandi starfsemina á Mógilsá og kvað hana í höfuð- dráttum vera .fjórþætta og felast í stjórnun skógræktarverkefna, þjónustu við almenning og ríkið og ráðgjöf, gagnasöfnun og rann- sóknum. Jón Gunnar Ottósson hefur unnið að rannsóknum á áhrifum skordýra á skóg á íslandi síðan 1982 og sagði í fyrirlestri sínum aðallega frá tveimur skaðvöldum, sem hreiðrað hafa um sig í ís- lenskum trjáplöntum á síðustu ár- um, sitkalús og haustfeta. En báð- ar þessar skordýrategundir geta skaðað skóga verulega, og hafa reyndar þegar náð að gera það á nokkrum stöðum, náist ekki að stemma stigu við uppgangi þeirra og fjölgun. „Reynslan sýnir að meirihluti þeirra dýra, sem valda okkur vandræðum, er nýkominn til landsins," sagði Jón Óttar í stuttu spjalli við blaðamann eftir fyrirlesturinn. „Þessi dýr, t.d. haustfetinn og sitkalúsin, hafa óeðlilega mikil áhrif á náttúruna hér þar sem þau eru henni ekki eiginleg. Það verður að herða eft- irlit með innfluttum plöntum og leita annarra ráða til þess að þau valdi ekki tjóni. Við verðum að læra að skilja þessi kvikindi og finna hvaða nátt- úrulega óvini þau eiga sér,“ sagði Jon Gunnar, aðspurður hvað væri helst til ráða til að sporna gegn þessum óvelkomnu gestum. Sem dæmi nefndi hann að haustfeti,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.