Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 66

Morgunblaðið - 08.09.1985, Síða 66
ð2£LH.3fíM3TT32 ft 5TTTH AnfTVíVrTTP GIQA. IfTVfTTDííOWf MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1985 - Skógræktar- menn eru bjartsýnis- fólk Eftir nyipnw á Þorraldi & ÞwnldHfii aA dema er nitkagreaió í BMbMÉÍI í |ááa lagi L___________________________________ Á. Jónssyni, sem hiaut óspart lof skógrektarmanna fyrir eljusemi við aó * ^koma upp skógi í landi Sauðaness. En alls stundar Páll nú skógrekt á 50 nekturum innan girðingar. fararstjóra í skoðunarferðinni daginn áður. „Hér eru þó einir þrír skógreit- ir, en félagið hefur einbeitt sér að gróðursetningu á Gunnfríðarstöð- um. Það er deilt um skilyrði fyrir skógrækt hér en það er augljóst mál að það eru reitir hér í sýsl- unni sem sýna að hér er hægt að rækta skóg. Þó finnst mér bændur aimennt ekki hafa mikinn áhuga á skógrækt/ sagði Haraldur. „En ég held nú samt að það verði rökrétt ^afleiðing af þeim vaxandi áhuga sem er með þjóðinni á þessum málum, að hann glæðist einnig meðal bænda. En það ríkir mikill I einhugur í skógræktarfélögunum og skógræktarmenn eru bjartsýnt fólk,“ sagði Haraldur Jónsson. Gosið í Heimaey kveikti skógrækt- arbakteríuna \ í lok aðalfundar fóru fram kosn- ingar. Sú breyting varð á stjórn félagsins að Tómas Ingi Olrich, formaður Skógræktarfélags Ey- firðinga, var kosinn í stjórnina í stað Kjartans ólafssonar, for-, manns Skógræktarfélags Arnes- inga, sem baðst undan endurkjöri. í stjórninni eiga því sæti nú Bjarni K. Bjarnason, Hulda Val- týsdóttir, Jónas Jónsson, Kristinn Skæringsson, Ólafur Vilhjálms- son, Tómas Ingi Olrich og Þor- valdur Þorvaldsson. Formaðurinn, Hulda Valtýsdóttir, sleit við svo búið þessum fimmtugasta og fimmta aðalfundi Skógræktarfé- lags fslands með þeim orðum að brýnt væri að skógræktarfólk sneri bökum saman og kallaði sem flesta til skógræktarstarfa. Upp úr stjórnarkjöri fóru menn | að tygja sig til heimfarar, en blaöamaöur tók þó tali tvo fundar- I gesti, sem voru á leið heim sitt í hvort landshornið, þau Þorberg Hjalta Jónsson og Hólmfríði Finnbogadóttur. Þorbergur er nýkominn heim frá fjögurra ára skógfræðinámi í Aberdeen í Skotlandi og verður í vetur kennari við Bændaskólann á Hólum þar sem fitjað verður á næstunni upp á ýmsum nýjungum Þeim Hönnu Vigdlsi Signrðardóttur og Helgu Guðmundsdóttur þótti gott að tylla sér í einum lundinum á Sauðanesi eftir skógaskoðun og berjatínslu. Þorbergur Hjalti Jónsson er nýkom-1 inn heim frá námi í skógfræðum íj Skotlandi og hyggst nú miöla bænda- efnum á Hólum af kunnáttu sinni. hef alltaf verið mikið náttúru- barn og skógrækt er yndislegt tóm- stundagaman,“ sagði Hólmfríður Finnbogadóttir. ( Morgunblaðið/Jón Sigurðuon Gengið um f landi Gunnfrfðarstaða. F.v. Þormóður Pétursson, stjórnarmaður í Skógræktarfélagi A-Húnvetninga, og feðgarnir Benedikt og Sigurður Blöndal, skógræktarstjóri. Þo að menn séu ekki á eitt sáttir um eilffðarmálin geta þeir verið sammála um að skógrækt sé greiði við sköpunarverkið. Annað varð a.m.k. ekki séð á Blönduósklerknum og allsherjargoðanum, þeim Árna Sigurðssyni og Sveinbirni Beinteinssyni. í kennslu er tengjast skógrækt. „Ég kenni jarðrækt á Hólum í vet- ur og jafnframt verður undirbúin þar kennsla í skógfræði, því vetur- inn 1986 til 1987 stendur til að bjóða skógfræði sem valgrein við skólann," sagði Þorbergur. „Námsefnið verður miðað við þarfir bænda og ef það gefur góða raun stendur til að koma upp heilli námsbraut í skógfræði. Eg býst við að verða með ráðgjöf fyrir bændur í næstu héruðum og einn- j ig er ætlunin að bjóða upp á stutt námskeið, sem öllum verður heim- ilt að sækja, í þessum fræðum á Hólum. Þetta er nýtt og mjög spennandi verkefni, sem ég hlakka til að takast á við.“ I Þorbergur er Vestmanneyingur og getur eiginlega þakkað gosinu mikla það hvar hann er staddur í lífinu nú. „Sumarið eftir gos var öllum Vestmannaeyjabörnum boð- ið til Noregs,“ sagði hann. „Og ég varð svo hrifinn af norsku skógun- um að ég hef ekki losnað við bakt- eríuna síðan.“ I „Ég hef alltaf verið mikið nátt- úrubarn, enda fædd og uppalin í sveit, á Lágafelli I Austur-Land- eyjum,“ sagöi Hólmfríður Finn- bogadóttir, fulltrí Skógræktarfé- , lags Hafnarfjarðar og Garðabæj- i ar. „Það var því kærkomið þegar Hafnarfjarðarbær afhenti skóg- ræktarfélaginu land til ræktunar á ári trésins, 1980. Þá var okkur hjónunum úthlutað rúmum hekt- ara við Kaldárselsveg, sem við er- um nú að rækta á eitthvað um 25 trjátegundir og þykir alveg yndis- legt tómstundagaman. Mér hefur fundist ákaflega gaman að sækja þessa fundi skógræktarfólks," sagði Hólmfríð- ur. „Þeir auka samheldnina og | gefa fólki kost á að miðla af reynslu sinni. Ef ég á að geta ein- hvers sérstaklega frá þessari helgi þá langar mig að minnast á helgi- stundina í kirkjunni hér á Blöndu- ósi í morgun, sem var sérstaklega friðsæl og falleg. Ég er þakklát fyrir þessa stund og mig langar að gera orð séra Árna í kirkjunni að okkar. En hann sagði að skóg- ræktarfólk væri að taka þátt í sköpunarverki guðs.“ I

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.