Morgunblaðið - 22.09.1985, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 22.09.1985, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985 FUNDUR SKIPSINS MAGNAR NÝJAR DEILUR Fá sjóslys sögunnar hafa valdið jafn mikilli og langvarandi umfjöllun og það sem varð rétt undir miðnætti 14. apríl 1912, þegar lystiskipið Titanic, skipið sem átti ekki að geta sokkið, sigldi á borgarísjaka og hvarf tveimur og hálfri klukkustund síðar niður í ískald hyldýpið, og tók með sér rúmlega 1500 manns. Bækur hafa verið skrifaðar um slysið og kvikmyndir gerðar, jafnvel skáldsaga og kvikmynd um ímyndaða björgun flaksins af hafsbotni. Engum hafði þó tekizt að finna flakið, hvað þá að líta það augum, fyrr en nú fyrir réttum þremur vikum, rúmlega 73 árum eftir að þetta þáverandi stærsta skip heims sökk. Margir leiðangrar hafa verið gerðir út á liðnum árum til að leita flaksins af Titanic, en engum tekizt með neinni vissu að sýna fram á hvar það væri fyrr en klukkan 1.40 að morgni sunnudagsins 1. september sl. Haffræðingurinn dr. Robert Ballard frá Woods Hole-haffræðistofnuninni í Banda- ríkjunum sat þá fyrir framan sjónvarps- skerma um borð í Knorr, einu af rannsóknar- skipum bandaríska flotans, um 350 sjómílum suður af St. John’s á Nýfundnalandi. Niðri á um fjögurra kílómetra dýpi dró skipið á eftir sér köfunarfleka, sem hlotið hafði nafn- ið Argo eftir skipi grísku goðsagnahetjunnar Jasonar, en skipið notaði Jason við leitina að hinu gullna reyfi. Flekinn er einskonar búr, nærri fimm metra langt, og inni í búrinu eru myndavélar, sjónvarpstökuvélar, ljós- kastarar og hljóðsjárleitartæki, eða sónar. í kaplinum sem dró flekann eru svo leiðslur sem fluttu myndir frá sjónvarpssvélum flek- ans jafnóðum upp á skjáina um borð í Knorr. Þekkt samtímamálverk af slysinu mikla. Skyndilega birtist á ein- um sjónvarpsskermanna fyrir framan dr. Ballard mynd af gríðarstórum gufukatli á sjávarbotn- inum og umhverfis ketilinn lá margskonar brak og munir, ferða- töskur, fimm kassar af víni, leir- tau, kol, o.fl. Og skömmu síðar sást svo Titanic í allri sinni tign. Samstarf Frakka og Bandaríkjamanna Fundur flaksins af Titanic var árangur samstarfs bandarískra og franskra vísindamanna. Leitin hafði að þessu sinni staðið frá 28. júní sl. þegar franska rannsóknar- skipið Suroit, eign hafrannsóknar- stofnunar í París (IFREMER), kom á þessar slóðir og hóf leit á botninum með mjög fullkomnum sónartækjum. Ekki var vitað um nákvæma staðsetningu flaksins, en talið að Titanic hefði sokkið á 41 “46“ norður og 50° 14“ vestur, en sú staðsetning er reiknuð út frá síðustu staðarákvörðun frá skip- inu fjórum klukkustundum fyrir ásiglinguna og áætlaðri siglingu skipsins eftir það. Þótt staðsetn- ingin hafi þannig getað verið nokkuð nákvæm, má ekki miklu muna, því örfáar mínútur í stað- setningu til eða frá geta stækkað leitarsvæðið um marga ferkiló- metra. Franska rannsóknarskipið var í nánu sambandi við bandaríska vísindamenn í Woods Hole, og þegar hljóðsjártæki skipsins sendu merki um ókennilega þúst á botn- inum eftir nokkurra vikna leit var

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.