Morgunblaðið - 22.09.1985, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.09.1985, Blaðsíða 12
m ■ 12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1985 ARGERÐ 1986 MITSUBISHI GALANT Framhjóladrifiö listaverk MARGFALDUR VERÐLAUNAHAFI FYRIR: Háþróaöa vélfræöitækni Nýtt og áöur óþekkt sviö mýktar og jafnvægis^ Útlit og eiginleika sem ekki eiga sinn líka MITSUBISHI GALANT er ríkulega búinn aukahlutum Verd frá kr. 508.000 0 % HEKLA HF Laugavegi 170-172 Sími 21240 Bílarnir sem seljast mest eru frá MITSUBISHI Grindavík með tilkomu nýju kirkjunnar. Nú eru öll prestsverk framkvæmd þar, en áður fór um það bil helmingur af skírnum og giftingum fram á heimili prests- ins. AF SIÐFERÐI í GRINDAVÍK Efnaleg kjör presta telur séra Jón hafa batnað heldur með árun- um. „Þetta voru óttalega lítil laun þegar ég byrjaði en verðgildi pen- inganna var líka annað þá, ég tel launakjör presta vera viðunandi nú.“ Meðan samtalið fer fram hef- ur frú Jóna haft til kaffi og með- læti og notar tækifærið þegar hlé verður í frásögninni og biður okkur að gera svo vel og gera okkur gott af því sem framborið er. Meðan hún hellir í bollana verður blaðamanni hugsað til allra nýgiftu hjónanna sem hafa byrjað hjónabandið með því að þiggja kaffi og kökur við borð- stofuborðið hjá prestshjónunum, svo og til litlu barnanna sem skírð hafa verið til kristinnar trúar á heimili þeirra hjóna. Það er ekki undarlegt þó prestshjónunum hitni í hamsi þegar talið berst að blaðaskrifum undanfarinna daga þar sem siðgæði íbúa Grindavíkur er dregið í efa svo ekki sé meira sagt. Það er eðlilegt að prestinum þeirra svíði slíkur áburður.„Af kynnum mínum við Grindvíkinga bæði fyrr og síðar get ég ekki ann- að en gefið þeim minn besta vitn- isburð,“ segir séra Jón. „Ekki svo að skilja að hér séu eintómir engl- ar, ég veit hinsvegar ekki til að hér sé óregla meiri en gerist og gengur. Ég átti í mörg ár sæti i barnaverndarnefnd og á þeim tíma tel ég að nefndin hafi ekki fengið óeðlilega mörg mál til með- ferðar og oftast hafi tekist að leysa málin á farsælan og frið- samlegan hátt í góðri samvinnu við foreldra og lögreglu. Þess vegna kannast ég ekki við „þann rotna hugsunarhátt" sem Víkur- fréttir 12. sept. sl. segja að ríki hér í Grindavík meðal foreldra og lögreglu. í þessari grein er sagt að siðferðiskennd fólks í Grindavík sé langt fyrir neðan núll. Þessari grófu fullyrðingu hafa bæjarbúar þegar mótmælt kröftuglega og get ég ekki annað sagt, eftir kynni mín af Grindvíkingum , en að hér búi heiðarlegt, harðduglegt, traust og raungott fólk og ég kann því ílla og tekur það sárt að mín ágætu sóknarbörn séu þannig rægð og rökkuð niður." ÝMISLEGT HEFUR ÁUNNIST Séra Jón Árni getur þess enn- fremur að það hafi eingöngu verið samstöðu og fórnfýsi sóknarbarn- anna að þakka hve ótrúlega vel gekk að koma nýju kirkjunni upp. Hún var vígð 26. september 1982 nákvæmlega 73 árum eftir að gamla kirkjan var vígð. Nýja kirkjan kostaði fullfrágengin að utan og innan 2,8 milljónir og um 33 prósent af því fé var gjafafé frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum og rúmlega 29 pró- sent styrkur frá bæjarsjóði. Sjálf- ur kvaðst prestur ekki geta státað af miklum afrekum í prestakalli sínu en vera þakklátur fyrir það sem áunnist hefði, gamla kirkjan í Höfnum, Kirkjuvogskirkja, hefði verið endurreist frá grunni, ný og glæsileg kirkja verið reist í Grindavík eins og fyrr hefur verið greint frá og eins mætti minna á byggingu prestsbústaðarins, en í því máli hefði hann að vísu haft nokkra forgöngu. Að lokinni kaffidrykkju göngum við út í kirkjuna sem er steinsnar frá prestsbústaðnum. Það er ekki ofsögum sagt að kirkjan er traust og glæsilegt hús, þar er öllu afar vel fyrir komið á látlausan og ein- faldan hátt. Mesta athygli vekur altaristaflan sem er geysistórt mósaikverk unnið í Vestur-Þýska- landi eftir altaristöflunni úr gömlu kirkjunni sem Ásgrímur Jónsson málaði. Sú tafla hangir nú uppi í skrifstofu prestsins í nýju kirkjunni. Kirkjan í Grinda- vík tekur 240 manns í sæti en hægt er ennfremur að hafa 160 stóla í safnaðarheimilissal til hlið- ar en þar hafa aldraðir aðstöðu, svo og AA-samtökin fyrir fundi sína. Eftir að prestur hefur slökkt öll Ijós í kirkjunni og læst þungri koparhurðinni göngum við í myrkrinu yfir að prestsbústaðn- um á ný. Þar kveðjum við séra Jón Árna Sigurðsson og konu hans Jónu Sigurjónsdóttur. Um leið og við tökumst í hendur segir Jón: „Ég hætti ekki starfi vegna ald- urs, heldur að eigin ósk, af heilsu- farsástæðum. Við hjónin förum héðan með góðar minningar frá þessari löngu veru okkar hér og teljum að við gerum það fullkom- lega sátt við allt og alla.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.