Morgunblaðið - 22.09.1985, Síða 15

Morgunblaðið - 22.09.1985, Síða 15
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985 B 15 legri. Sumir ættbálkar tíðkuðu einkvæni en aðrir tvíkvæni," segir hún. Maritza Montero og aðrir þjóð- félagsfræðingar líta alvarlegum augum þá þróun sem nú fer í vöxt, nefnilega að karlmenn færi sig á milli kvenna og skilji eftir sig slóð af óskilgetnum börnum. Fimmtíu og þrjú af hundraði barna í Venezúela fæðast nú utan hjóna- bands. Franci Lugo er 33ja ára gömul kona sem hefur þurft að súpa seyðið af þessu ástandi. Hún er horuð og slitin og reynir að láta enda ná saman fyrir sig og börnin sín fimm í hrörlegu húsnæði sem ríkið á í útjaðri Caracas. Frá glugganum getur að líta sambýl- ishúsið þar sem faðir barnanna og fyrrum sambýlismaður hennar býr nú með annarri konu. Hann kíkir inn um jólaleytið með gjafir handa börnunum en ekkert handa henni. Hún lætur hverjum degi nægja sína þjáningu og einbeitir sér að því að hafa eitthvað að bíta og brenna. „Maður verður að komast af, ekki satt,“ segir hún. Starfsfólk á vegum hjálparstofn- unar kaþólsku kirkjunnar sem vinnur í þessu borgarhverfi segir að Lugo eigi sér þar margar þján- ingarsystur. Blanca Rodriguez de Acosta afbrotafræðingur skýrði yfir- mönnum lögreglunnar frá því í fyrirlestri síðastliðið sumar að 65% unga fólksins í Venezúela hefði alizt upp án afskipta feðra sinna. Ætti það stóran þátt í því hversu afbrotum í borginni hefði fjölgað. Kunnur geðlæknir frá Venezú- ela, Jose Luis Vethencourt, hefur komizt að þeirri niðurstöðu að hinn dæmigerði karlmaður í landinu hafi brugðizt föðurskyld- um sínum. Hann segir að þeir grafi undan samfélaginu með líf- erni sínu. Hin dæmigerða kona hefur að mati geðlæknisins hins- vegar öðlast mikinn styrk við að gegna hlutverki föður jafnt sem móður. „Hvergi í heiminum hefur frelsi kvenna fleygt eins ört fram og í Venezúela," fullyrðir hann. 1 janúar síðastliðnum var Jó- hannes Páll páfi á ferð í Venezú- ela og lét í ljósi hin dæmigerðu sjónarmið kaþólskra varðandi fjölskyldulíf. Hann hvatti um 600.000 áheyrendur í Caracas að hlúa að þeim nánu tengslum sem hnýta saman fjölskyldur, hugi og hjörtu. En þungamiðjan í boðskap páfa var gagnrýni á fóstureyðing- ar, getnaðarvarnir og skilnaðar- pláguna, eins og hann komst að orði. En Ed Gerlock, starfsmaður Hjálparstofnunar kirkjunnar, hristi bara höfuðið þegar hann heyrði þetta. „Hvernig getur fólk skilið þegar það er ekki gift?“ spurði hann. — MERRILL COLLETT Eg beini orðum mínum til lækna um allan heim. Starfsbróðir ykk- ar, dr. Koryagin, er að dauða kominn ..." SJÁ: Anatoly Koryagin B FRAMHJÁHALD^— Hjákonurnar gerast sífellt herskárri m IZambíu er það gömul hefð að eiginkona verji rétt sinn með kjafti og klóm ef maður hennar heldur fram hjá henni. Þessi réttur hefur ekki verið vefengdur þar til nú fyrir skömmu, giftum konum um alla Zambíu til mestu skelfing- ar. Kona nokkur komst nýlega að raun um að maður hennar átti sér hjákonu og hugðist þjarma að henni samkvæmt hinni fornu hefð. Hún fékk eldri systur sína í lið með sér og þeim tókst að króa hjákonuna af inni í horni á her- berginu hennar. Þá greip hjákonan glas með brennisteinssýru og skvetti framan í systurnar. Þær skaðbrenndust, en tókst þó að forða sér og hafa þegar þetta er ritað verið til meðferðar á sjúkra- húsi í Lusaka um þriggja vikna skeið. Eiginkonur um gervalla Zambíu taka mál þetta mjög nærri sér og er það ekki af ófyrirsynju. Hér er nefnilega um að ræða algert brot á þeim venjum, sem þar hafa þró- ast. Fram að þessu hafa þeir, sem komist hafa upp á milli hjóna, þurft að taka út sína refsingu í algerri auðmýkt, hafi þeir orðið uppvísir. Skiptir þá engu hvort karl eða kona á í hlut. hjá ýmsum ættflokkum í landinu tíðkast jafn- vel að sá sem kemst upp á milli hjóna viðurkenni sekt sína með stolti og reisn, sér í lagi ef hann hefur átt unaðsstundir með efnuð- um eða glæsilegum mótaðila. Ef karl eða kona verður uppvís að framhjáhaldi gripur makinn stundum til þess ráðs að fara fram á skaðabætur frá hjónadjöflinum. Fyrir skömmu dæmdi dómstóll í Lusaka í slíku skaðabótamáli. Dr. Selfelino, fyrrum ráðherra í Zamb- íu, hafði orðið uppvís að því að eiga mök við eiginkonu Geoffreys nokkurs Haamaundu, lögfræðings og fyrir vikið var honum gert að greiða hinum síðarnefnda þrjú kýrverð. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að jafn brokkgeng eig- inkona væri einfaldlega ekki meira virði. En málalyktir eru ekki alltaf jafn friðsamlegar. Sums staðar ganga menn berserksgang ef þeir komast að raun um að konan hafi verið þeim ótrú. Þeir skjóta eljara sína en þræta fyrir að hafa framið morð og segjast ekki hafa haft neitt illt í hyggju. Þeir hafi aðeins ætlað að skjóta fjandmanninum skelk f bringu. Slíkar uppákomur eru algengar í þorpum landsins. í bæjum og borgum er heldur ekki tekið neinum vettlingatökum á hjónadjöflum. Þeir eru barðir, stungnir hnífum, særðir með öxum og stundum er heitri feiti hellt yfir þá. Fram að þessu hafa menn litið þannig á, að slík meðferð sé eðlileg og þeir sem komizt upp á milli hjóna verði bara að taka áhættuna líkt og aðrir veiðimenn. En núna virðast hjákonur farn- ar að taka upp nýja siði eins og sést í sögunni sem rakin er hér að framan. Og þær eru farnar að grípa til allra tiltækra vopna til þess að fá menn til að skilja við konurnar sínar. Og þegar litið er á ýmsar staðreyndir blasa skýr- ingarnar við. í Zambíu eru sex milljónir íbúa en þar af aðeins tvær milljónir karla. Aðeins 200.000 karlmenn hafa fasta vinnu, og þar af eru aðeins um 20 þúsund sem talist gætu æskilegt manns- efni, þ.e.a.s. eru menntaðir, aðlað- andi og hafa komið vel undir sig fótunum. í landinu er því urmull glæsilegra og menntaðra stúlkna, sem telja sig hafa litla sem enga von um að komast nokkurn tíma í hjónabandið. — GOODWIN MWANGILWA | STRÍÐSGLÆPIR ■ MENGELE: Japanir rorv engir eftir- bátar hans. Safnhús yfír níðingsverkin IKína hefur verið komið upp safni til minningar um þær rúmlega þrjár þúsundir manna, sem japanskir vísindamenn pynt- uðu til bana á stríðsárunum. Er það í húsunum, sem Japanirnir notuðu, en þar unnu þeir að tilraunum með sýklavopn. Segir frá þessu í nýlegu hefti af kínverska tímaritinu Pe- king Review. Á árunum 1935—45 voru fanga- búðirnar og tilraunastofurnar í Ping-fang-hverfi í Harbin-borg í Norðaustur-Kína aðalaðsetur 731. deildar í japanska hernum en opinberlega var það látið heita að þessi deild ynni að sjúkdómavörn- um. Starfsemin var þó allt önnur og minnti um flest á grimmdarverk dr. Josefs Mengele í Áuschwitz. Japönsku vísindamennirnir tóku til dæmis föngunum blóð og dældu í staðinn á þá hrossablóði, létu fólk frjósa í hel til að kanna áhrif kuld- ans á mannslíkamann og sýktu suma af kóleru, sárasótt eða svarta- dauða við rannsóknir sínar á sýkla- vopnum. Safnið var opnað 15. ágúst sl., 40 árum og einum degi betur eftir að Japanir gáfust upp. 1 Kína hefur það verið vitað í allan þennan tíma hvað fram fór f fangabúðunum í Harbin en þó var ekki skýrt frá því fyrr en árið 1981. Það var gert þeg- ar Japönum datt í hug að breyta sögubókunum, sem kenndar eru í skólum, og draga aðeins úr þeim grimmdarverkum, sem Japanir unnu á meginlandi Asíu á stríðsár- unum. Safnið í Harbin er mjög við- kvæmt mál í samskiptum þjóðanna enda skipta Kínverjar ekki meira við aðra þjóð en Japani og þess vegna var ekkert frá safninu sagt fyrr en daginn, sem það var opnað. I BRELLUR Listin að leika á kerfíð Afjárlögum Evrópubanda- lagsins, eða Efnahags- bandalagsins eins og það áður hét, er gert ráð fyrir að 16,8 milljörðum dollara sé varið í styrki og niðurgreiðslur á land- búnaðarafurðum og virðist sú tala síst vera ofætluð. í nýlegri skýrslu endurskoðunarnefndar bandalagsins um niðurgreiðsl- urnar og útflutningsbæturnar segir, að framleiðendur og út- flytjendur leiki sér að uppbóta- kerfinu eins og köttur að mús og hafi meira fé út úr því en skrif- finnana í Brússel hafi órað fyrir. Útflutningsbætur á landbún- aðarvörur og unnin matvæli eru fjórðungur af öllum fjárlögum Evrópubandalagsins. í skýrsl- unni segir, að vinsælast sé að „plata skriffinnana" á tvennan hátt. Önnur aðferðin og sú þekktari kallast „hringferðin" og felst í því að flytja út vörur með löglegum hætti til þriðja ríkis og fá fyrir þær útflutningsbætur. Síðan er þeim smyglað aftur heim, þær fluttar út og útflutn- ingsbætur þegnar í annað sinn. Hin aðferðin, sem einnig er í tísku, er að leita að götum í lög- unum og fara fram á uppbætur fyrir það, sem aldrei stóð til að greiða niður. Tollskýrslur eru VER&BÆTUR líka falsaðar til að fá hærri út- flutningsbætur og segir í skýrslu endurskoðendanna, að það sé næstum ógjörningur að fylgjast með slíku framferði nema með skyndikönnunum, sem sjaldan eru gerðar. Engin grein er ábatasamari fyrir svikahrappana en mjólk- urvöruútflutningurinn. Áætlað er að þar nemi svikin 42 milljón- um dollara á ári. Smjör og und- anrennuduft eru oft greidd niður til neyslu á innanlandsmarkaði, en algengt er að þessar vörur séu fluttar út og útflutningsbætur þá þegnar fyrir að auki. Niður- greiðslunum fyrir innanlands- markaðinn er hins vegar ekki skilað aftur. _ LIZ BARDER HINAR VIN- SÆLU LOÐ- FÓÐRUÐU GÚMMÍBOMSUR NÚ AFTUR FÁANLEGAR Litir: Grátt/blátt. Verö 855.-. Rifflaðir stamir sólar. Póstsendum samdægurs. Barónskór, Barónsstíg 18, s. 23566. Egilsgötu 3, s. 18519. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa sem lága!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.