Morgunblaðið - 22.09.1985, Page 22
22 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1985
Hin andlega gríma
sem allir bera
Laugarásbíó sýnir
kvikmyndina „Mask“
sem segir frá „fíla-
manni“ í nútímanum
Cher í móöurhlutverki
Það er hin óútreiknanlega
Cher sem leikur móðurina tví-
klofnu. Cher á vægast sagt
óvenjulegan feril að baki, hún
sló í gegn snemma á sjöunda
áratugnum með þáverandi
manni sínum, söngvaranum
Sonny; árin liðu og Cher var fræg
fyrir að vera fræg, afrekaði svo
sem ekki neitt sérstakt, nema þá
helst að finna upp á kostulegum
kiæðnaði, þar til hún lék í Silk-
wood og þar með var hin nýja,
al varlega Cher endurborin.
Ég segi alvarlega, enda þótt
Cher taki lífinu mátuiega alvar-
lega, því hún er mjög vandlát á
hlutverk. Engu að síður var hún
fljót að taka boði um móður-
hlutverkinu í Mask. Leikstjórinn
Bogdanovich sendi henni hand-
ritið, Cher hafði fengið hundruð
handrita eftir að hún lék í Silk-
wood, hún var útnefnd til
Óskarsverðlauna, en Mask var
einmitt það sem hún hafði beðið
eftir: eitthvað óvenjulegt. Síðan
kom á daginn að handritshöfund-
urinn Anna Hamilton Phelan
hafði skrifað móðurhlutverkið
með Cher í huga.
Eric Stoltz heitir hann sem
leikur Rocky Dennis, hinn
óvenjulega dreng. hann er
splunkunýtt andlit í heimi kvik-
myndanna, að minnsta kosti fara
engar stórar sögur af fyrri afrek-
um. Eric Stoltz var logandi
hræddur um að gagnrýnendur
og bíógestir myndu bera Mask
saman við „Fílamanninn", enda
eiga fílamaðurinn og Rocky
ýmislegt sameiginlegt, en Stolz
ráðfærði sig við hina raunveru-
legu móður drengsins til að hafa
öll smáatriði á hreinu, enda lifa
fílamaðurinn og Rocky á ólíkum
Rocky Dennis er ósköp
venjulegur drengur nema
hvað hann lítur sérkennilega út.
Hann þjáist af sjúkdómnum
craniodiaphyseal dysplasia sem
gerir það að verkum að of mikið
kalkmagn þrýstir sér í gegnum
höfuðkúpuna og höfuðið af-
myndast. Líkamlega er Dennis
því afbrigðilegur, foreldrum
hans er sagt að hann sé engu
öðru barni líkur, hann afræður
því að verða betri en allir aðrir.
Rocky þessi er til í raunveru-
leikanum, en nú hefur verið gerð
kvikmynd um hann og foreldra
hans, mótorhjólagaurinn Gar og
eiturlyfjasjúklinginn Rusty.
Myndin heitir Mask, og hefur,
eins og leikstjóri myndarinnar,
Peter Bogdanovich, bendir á,
almenna skírskotun, því myndin
er um þá grímu sem hver og einn
hylur sig á bak við.
Cher og Sam Elliott í hlutverkum foreldranna.
tímum í ólíkum heimum. Það tók
margar klukkustundir að farða
leikarann, þótt nýtt og einfald-
ara efni væri notað en gert hefur
verið hingað til. Samt sem áður
var förðunin mikil áreynsla fyrir
Stoltz, hann gat til að mynda
ekki borðað neitt allan þann tíma
sem farðinn var á honum, sex sjö
stundir, og því léttist hann um
meir en tíu kíló.
Grfman okkar ailra
Peter Bogdanovich gerði
þriggja tíma mynd sem nefndist
Mask, en sú mynd sem send var
á kvikmyndahátíðina í Cannes í
vor leið og á markaðinn á sama
tíma var aðeins tveir tímar.
Bogdanovich var því ekki kátur
og hefur höfðað mál á hendur
Universal-fyrirtækinu sem fjár-
magnaði myndina og dreifir.
Annað atriði var að tónlistin
eftir Bruce Springsteen, sem
Bogdanovích valdi fyrir mynd-
ina, var klippt út og tónlist eftir
Bob Seeger sett í staðinn. Cher
segir að bestu atriðin sín hafi
lent í ruslakörfunni. Það kom þó
ekki í veg fyrir að hún var verð-
launuð í Cannes sem besti kven-
leikarinn.
Bogdanovich, sem var eftir-
tektarverðasti leikstjórinn í
Ameríku upp úr 1970 fyrir mynd-
irnar The Last Picture Show og
Pappírstungl, tók sér þriggja ára
hvíld árið 1976 eftir slæmu
myndirnar At Long Last Love
með Burt Reynolds og Nickelode-
on, byrjaði aftur 1979 en það var
ekki fyrr en á þessu ári að hann
náði upp gömlu góðu töktunum
sem gerðu hann frægan. Bogd-
anovich hafði aðeins eina leik-
konu í huga, því hún var rétta
manngerðin: Cher er fræg fyrir
frjálslyndi sitt og því varð fólk
að geta trúað að móðirin væri
það einnig.
Bogdanovich lítur á mynd sína
sem dæmisögu um óbugandi afl
mannsandans. Hann vildi gera
mynd um heitar tilfinningar,
ekki síður þær tilfinningar sem
sjaldan eru látnar í Ijós; fólk lítur
á persónur eins og Rocky Dennis
sem afbrigðilegt og því ekki heil-
brigt, en þeir sem til þekkja,
segir Bogdanovich, vita að „af-
brigðilegt" fólk á sitt sálarlíf, en
það ber ekki tilfinningar sínar á
torg, það ber grímu sem hylur
hið rétta andlit, hina réttu sál.
Því, segir Bogdanovich, skírskot-
ar heiti myndarinnar til hinnar
andlegu grímu sem allir bera, en
ekki eingöngu þeinyíar sem þessi
drengur ber.
Gefum Peter Bogdanovich
lokaorðið áður en við fréttum
hvernig honum reiðir af í mála-
ferlunum við Universal: Fólk
almennt veitir ekki fólki eins og
Rocky Dennis og móður hans
eftirtekt, það er litið á þau sem
vandræðakonu og afbrigðilegt
barn. En við sem stóðum að
þessari mynd vissum betur, og
vonandi fleiri nú eftir að þessi
mynd hefur verið gerð. HJÓ
Eric Stoltz leikur drenginn með
grímuna, en sést hér með sitt rétta
andlit.
Leikstjórinn Peter Bogdanovich.
Mercedes Benz 300 D '83, 5 cyl, blár metalic, bíll
í toppstandi og lítur mjög vel út.
Símí 78442, frá kl. 19—22.
Hjartanlefja þakka é</ öllum þeim, sem sýndu
mér hlýhuij o<j vivsemd med heimsókn, blóm-
um, skeytum oy (jjöfum á 90 ára afmæli minu
13. september sl.
É</ biö <juó aó blessa ykkur öll.
MnyndísÁ. Arndóttir.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!