Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 1
56SIÐUR B
STOFNAÐ1913
227. tbl. 72. ári
L
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rán ítalska skemmtiferðaskipsins Achille Lauro:
Mannræningjar með líf
400 manna í hendi sér
Segjast hafa drepið tvo Bandaríkjamenn - ítölsk, franskt
og bandarísk herskip sigla í átt að skemmtiferðaskipinu
AP/Símamynd
Ættingjar farþega og skipverja um borð í Achille Lauro söfnuðust saman
við skrifstofur fyrirtækisins, sem gerir út skipið, og biðu þar milli vonar
og ótta um örlög ástvina sinna.
Breski íhaldsflokkurinn:
Landsþing hafið
á erfiðum tímum
Blackpool, Englandi, 8. október. AP.
LANDSÞING breska íhaldsflokksins hófst í dag í Blackpool á Englandi.
Miklir erfiðleikar steðja nú að bresku þjóðinni og ríkisstjórninni og sagði
Norman Tebitt, formaður flokksins, í setningarræðunni, að ef íhaldsflokkur-
inn ætlaði að gera sér vonir um að sigra í næstu kosningum yrði hann að
vinna að þjóðareiningu.
Beinit. Damaskiu, Túnis, Bonn, Waahington o* víðar. 8. október AP.
Mannræningjarnir sem halda um 400 manns í gíslingu um borð
í ítalska skemmtiferftaskipinu Achille Lauro hafa samkvæmt síðustu
fréttum drepið tvo Bandaríkjamenn og hóta að drepa alla banda-
rísku og bresku farþegana ef ekki verður orðið við þeim kröfum
þeirra, að fsraelar láti lausa úr fangelsi 50 Palestínumenn. Ræn-
ingjarnir, sem eru í klofningshópi úr PLO, scgjast vilja semja beint
við ísraelsstjórn. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum, í Arabaríkjunum
og víðar hafa fordæmt þennan verknað mjög harðlega og ítölskum,
frönsku og bandarískum herskipum hefur verið stefnt í átt að
ítalska skipinu, sem er nú undan Kýpur. Á leið til þess er einnig
skip með háttsetta menn í PLO, frelsisfylkingu Palestínumanna,
sem ætla að reyna að hafa áhrif á mannræningjana.
Mannræningjar stefndu ítalska
skemmtiferðaskipinu fyrst til Sýr-
lands en þar var þeim bannað að
koma í höfn að beiðni ítölsku ríkis-
stjórnarinnar. Var skipinu þá snú-
ið í vesturátt til Kýpur. Skömmu
síðar var sendifulltrúi Itala í
Damaskus kvaddur í sýrlenska
utanrfkisráðuneytið og honum
skýrt frá þvi, að mannræningjarn-
ir segðust hafa drepið tvo Banda-
ríkjamenn um borð. Hóta þeir að
drepa alla breska og bandaríska
farþega ef ekki verður orðið við
kröfum þeirra og sprengja upp
skipið ef reynt verður að taka það
með hervaldi.
Achille Lauro var rænt eftir að
það lagði úr höfn í Alexandríu í
Egyptalandi og var á leið til Port
Said. Þar átti að taka aftur flesta
farþegana, sem höfðu farið frá
borði í fyrrnefndu borginni. Voru
þeir upphaflega á áttunda hundrað
en nokkuð er á reiki hve margir
eru nú um borð, eru nefndaf tölur
frá 80 til 119. Með áhöfninni eru
líklega á skipinu alls um 400
manns. óvíst er einnig hve mann-
ræningjarnir eru margir, segja
sumir sex en aðrir tólf og er ýmist
talið, að þeir hafi komið um borð
í Alexandríu eða Genúa á Ítalíu.
Sagt er, að einn þeirra hafi farið
áður þrjár ferðir með skipinu og
jafnan sýnt öllu um borð mikinn
áhuga. Virðist því sem ránið hafi
verið skipulagt fyrir allnokkru.
Farþegarnir um borð eru af
mörgu þjóðerni, Bandaríkjamenn,
Bretar, Frakkar, Svisslendingar,
Þjóðverjar, ísraelar og ftalir og
víðar að og hafa viðkomandi ríkis-
stjórnir á Vesturlöndum boðað til
skyndifunda vegna málsins og
harmað þetta grimmilega verk.
Eins og fyrr segir vilja mann-
ræningjarnir semja beint við ísra-
ela, en Peres, forsætisráðherra
fsraels, segir, að ekki verði rætt
við hryðjuverkamenn um eitt eða
neitt. Giovanni Spadolini, varnar-
málaráðherra ftala, sagði einnig í
dag, að ekki yrði gefið eftir fyrir
„hótunum hermdarverkamanna"
og kvaðst vona, að unnt væri að
koma fyrir þá vitinu.
ítalski herinn hefur nú mikinn
viðbúnað á Miðjarðarhafi og hefur
herskipum verið stefnt í átt til
Achille Lauro, sem nú er undan
Kýpur en þar hefur því líka verið
bannað að koma i höfn. Sjötti flot-
inn bandaríski er til taks og áhöfn-
inni á frönsku herskipi hefur verið
skipað að vera við öllu búin. Þá
er á leið til italska skipsins skip
með háttsettum mönnum í PLÖ
og ætla þeir að reyna að fá ræn-
ingjana til að láta gíslana lausa.
Eru ræningjarnir úr klofningshópi
úr PLO og Yasser Arafat, leiðtogi
PLO, segir samtökin engan þátt
eiga í þessum verknaði.
Sjá frekari fréttir á bls 22.
AP/Símamynd
ítalska skemmtiferðaskipið Achille
Lauro.
Afganistan:
Loftárásir á
þorp og bæi
nærri Kabúl
Islamabad, PakixUn, 8. oklóber. AP.
MIKLIR og mannskæðir bardagar
geisa nú í Austur-Afganistan og beitir
sovéska hernámsliðið orrustuþotum,
fallbyssuþyrlum, skriðdrekum og
stórskotaliði gegn skæruliðum. Talið
er, að þúsundir sovéskra hermanna
og afganskra stjórnarhermanna taki
þátt í sókninni.
Haft er eftir heimild»m, að
Rauði herinn ætli nú enn einu
sinni að reyna að uppræta skæru-
liða í Paghman-, Logar- og Ward-
ak-héraði suður og austur af
Kabúl en þaðan hafa þeir gert
margar árásir á höfuðborgina.
Beita Sovétmenn einkum aðferð-
um, sem kallaðar eru „sviðin jörð“
og felast i þvi að gera loftárásir á
þorp og bæi. Fólk, sem flúið hefur
þessi svæði að undanförnu, hefur
hryllilegar sögur að segja af fram-
ferði sovésku hermannanna.
Gifurlegir liðsflutningar eru frá
meginherstöð Sovétmanna við
Kabúl, langar herflutningalestir
og stórir flugflotar, sem fara til
árása á skæruliða og óbreytta
borgara. Eru fréttir um mikla
bardaga en talið er, að skæruliðar
séu orðnir nokkuð aðþrengdir
vegna vista- og skotfæraskorts.
„Til að sigra í næstu kosningum
verðum við að vita hvers konar
samfélag við viljum hér i þessu
landi,“ sagði Tebitt þegar hann
setti þingið, sem 5.000 manns sitja.
Frá því að Thatcher vann mikinn
sigur í kosningunum 1983 hefur
gengi íhaldsflokksins ekki verið
jafn lítið og nú. I skoðanakönnun-
um fær hann ekki nema rúm 30%
atkvæða, töluvert minna en Verka-
mannaflokkurinn, og atvinnuleys-
ið er nú meira en það hefur verið
í áratugi eða 13,8%. í setningar-
ræðunni réðst Tebitt harkalega á
Verkamannaflokkinn og sagði, að
hann væri klofinn niður í rót og
að Kinnock, leiðtogi hans, væri
ekki búinn að bíta úr nálinni með
vinstri öfgamennina. Um bandalag
jafnaðarmanna og frjálslyndra
sagði hann, að þar væri stefnan
sú að lofa öllum öllu. Til þess var
tekið, að ræða Tebitts minnti mest
á málflutning miðjumannanna og
hinna föðurlegu íhaldsmanna, sem
leiddu flokkinn áður en Margaret
Thatcher kom til skjalanna fyrir
tíu árum.
Gífurlegar öryggisráðstafanir
hafa verið gerðar vegna þingsins
enda menn minnugir sprengjutil-
ræðisins í fyrra þegar Thatcher
slapp naumlega. Fyrir því stóðu
hermdarverkamenn IRA og slös-
uðust þá 30 manns, þ. á m. eigin-
kona Tebitts, sem lamaðist.
Sjá „Sagði hjákonunni..."
23.
á bls.
Scharansky látinn laus?
Engar viöræöur um Sakharov
Lúiemborg, 8. október, AP.
ÚTVARPIÐ í Lúxemborg sagði í dag, að Bandaríkjastjórn væri nú að
semja um það við Sovétstjórnina, að sovéska andófsmanninum Anatoly
Scharansky yrði sleppt úr fangelsi og leyft að fara úr landi. Engar viðræð-
ur ættu sér hins vegar stað um Andrei Sakharov eins og fréttir hafa þó
verið um og sagði, að ólíklegt væri, að Sakharov fengi nokkru sinni að
lifa sem frjáls maður.
Útvarpið í Lúxemborg hefur
fyrir fréttinni „áreiðanlega
heimildarmenn" í Austur-Berlín
en að þeirra sögn hefur austur-
þýski lögfræðingurinn Wolfgang
Vogel milligöngu í viðræðunum
um lausn Scharanskys. Vogel er
kunnur fyrir afskipti sín af
njósnaskiptum milli austurs og
vesturs og „sölu“ Austur-Þjóð-
verja til Vestur-Þýskalands.
Scharansky, sem er tölvufræð-
ingur, var dæmdur fyrir að
njósna fyrir Bandaríkin og er
sagt, að hann sé mjög langt leidd-
ur í fangelsi.
Vestur-þýska tímaritið „Der
Spiegel" sagði fyrir nokkru, að
verið væri að semja um frelsi
þeirra beggja, Scharanskys og
Sakharovs, og að fyrirhugað væri
að leyfa þeim að fara úr landi
að loknum fundi þeirra Reagans
og Gorbachevs 19.-20. nóvember
nk.