Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 3

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 Hákon Björnsson framkvæmdastjóri Áburðarverksmiðjunnar: „Förum að skjálfa þegar rætt er um gengisfellingu“ 125 milljónir af útlánum verksmiðjunnar í van- skilum, þar af helmingur hjá 6 kaupfélögum ÁBURÐARVERKSMIÐJA ríkisins í Gufunesi i útistandandi hjá um 1.500 viAskiptamönnum sínum rúm- ar 400 milljónir kr. Þar af eru 125 milljónir I vanskilum hjá Ueplega 500 aðilum og skulda 6 kaupfélög belm- ing þeirrar upphæóar. Verksmiðjan fjármagnar þessi útlán með erlend- um lánum og verður þvf fyrir miklu gengistapi vegna þeirra og annarra skulda sinna ef gengi íslensku krón- unnar verður fellt, eins og nú er verið að ræða um. Áburðarverksmiðjan auglýsir þessa dagana í blöðunum „Tilmæli til þeirra sem eru í vanskilum við Áburðarverksmiðju ríkisins". Þar er þeim eindregnu tilmælum beint til skuldunauta verksmiðjunnar að þeir greiði skuldir sinar sem allra fyrst, því með því stuðli þeir að lægra áburðarverði. „Við fðrum alltaf að skjálfa þegar farið er að tala um gengisfellingu eins og nú“, sagði Hákon Björnsson fram- kvæmdastjóri Áburðarverksmiðj- unar þegar rætt var við hann um þessi mál. Hákon sagði að ef gengið yrði fellt um 10% þýddi það 45 milljóna kr. gengistap hjá Áburðarverk- smiðjunni, eingöngu vegna útlána til viðskiptamanna hennar. Verk- smiðjan gæti ekki fjármagnað þessi útlán nema með erlendum lánum og undanfarna mánuði hefði verksmiðjan þurft að greiða 6-7% vexti og gengistap af þessum erlendu lánum umfram það sem viðskiptavinirnir greiddu í vexti til verksmiðjunnar. Ekkert stæði á bak við þessi erlendu lán nema skuldir viðskiptamannanna og ef gengisfelling yrði nú kæmi það sem beint tap hjá verksmiðjunni og verkaði til hækkunar á áburðar- verðinu næsta vor. Sagði Hákon að heildargengis- tap verksmiðjunnar við 10% geng- isfellingu yrði 75-80 milljónir kr., en eignir fyrirtækisins stæðu fyrir tæpum helmingi þeirrar upphæðar og hækkuðu þær i verði sem þvi næmi. Áburðarverksmiðjan hefur undanfarin ár verið með öll sin lán Heilbrigðis- ráðuneytið: Lyfjasend- ingarmálið í athugun Heilbrigðisráðuneytinu hefur borist bréf frá Lyfjaeftirliti ríkisins þar sem farið er fram á að ráðu- neytið taki til meðferðar aug- lýsingu Laugavegs Apóteks um ókeypis heimsendingarþjónustu, með tilliti til þess hvort hér sé um brot á læknalögunum að ræða. í frétt Morgunblaðsins í gær, þriðjudag, er haft eftir Ingólfi J. Petersen að Lyfjaeftirlitið telji svo vera og hefur eftirlitið í fram- haldi af því óskað eftir afskiptum heilbrigðisráðuneytisins. Jón Ingimarsson, skrifstofu- stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að erindi Lyfjaeftirlitsins hefði nú borist ráðuneytinu, en ekki hefði enn verið fjallað um rnálið þar, „að minnsta kosti ekki svo hægt sé að greina frá þvi á þessu stigi," sagði Jón. Matthías Bjarnason sagði i samtali við Morgunblaðið að hann vildi kanna málið betur áður en ákveðið verð- ur um framvindu þess. í Bandaríkjadollurum og varð stöðug hækkun dollarans mjög óhagstæð fyrir fyrirtækið. Á þessu ári var áhættunni dreift, þannig að nú er helmingur skulda hennar í Evrópumyntum. Síðan hefur dollarinn farið lækkandi þannig að þessi breyting kom á óhagstæð- um tima fyrir verksmiðjuna. Há- kon viðurkenndi það, en sagði að þessa þróun hefði ekki verið hægt að sjá fyrir. Hann sagði þó að þetta væru tímabundnir erfiðleikar og taldi þessa ákvörðun um dreifingu áhættu rétta, þegar til lengri tima væri litið. Úr áburðarverksmiðjunni (Gufunesi. Morgunblaðið/RAX HAUST HAUST KARNABÆR Austurstræti 22, Laugavegi 66, Glæsibæ. Sími frá skiptiborðinu 45800. # fAusturstræíi2< Laugavegi 30.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.