Morgunblaðið - 09.10.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985
21
Kókosbolluát,
rassakast og
grettukeppni
í gegnum reykjarmökk glittir í eins og 100 táninga sem standa
saman í smærri hópum fyrir framan dyr hátíðarsalar Verzlunar-
skóla íslands. Eftir u.þ.b. 10 mínútur hefst metakvöldið; Með
trukki og dýfu. Menn gantast og það er greinilegt að fólk bíður
atburðar þessa með mikilli eftirvæntingu. Hlátrasköll heyrast
við og við og fólk er enn að tínast inn.
Þegar klukkan var alveg að
verða níu bauð Gunnar Valur
Sveinsson gesti velkomna sem nú
voru orðnir um 200 talsins. Fyrsta
keppnisgrein var kókósbolluát.
Keppendur í kókósbolluátinu
voru um 30 talsins og var þeim
skipt niður í 4 eða 5 riðla. Hver
maður átti að borða 4 kókósbollur
og drekka eina litla kók með og
fyrsti maður í hverjum riðli fór í
úrslitakeppnina. Blm. var svo lán-
samur að sitja við hliðina á einum
keppendanna úr kókósbolluátinu
árið áður. „Eg er nýbyrjuð að geta
borðað kókósbollur aftur,“ sagði
keppandinn.
Kókósbollufólkið var hvert öðru
hæfileikaríkara á þessu sviði og
menn skiptust í tvo hópa hvað
tæknina varðaði. Sumir voru á því
að betra væri að drekka kókið fyrst
og skella sér síðan í bollurnar.
Aðrir voru á þeirri skoðun að mun
betra væri að skola bollunum niður
með kóksopa.
Aðfarirnar voru stórkostlegar.
Piltarnir tóku vel til matar síns
og skeyttu engu um þó kremið
væri um gjörvallt fés þeirra. At-
hygli blaðamanns vakti einn kven-
keppendanna sem lét bara eins og
hún væri í sunnudagskaffi hjá afa
og ömmu og nartaði bara sem
sannri dömu sæmdi.
Eftir harða keppni í þessari
fyrstu grein kvöldsins stóð uppi
sem sigurvegari, Birgir Bieldvedt
og hlaut hann í verðlaun, 36 kókós-
bollur.
Blm. rétt náði að skjóta einni
spurningu að Birgi sem var um-
kringdur aðdáendum eftir keppn-
ina.
Þú raukst beint á klósettiö eftir
sigurinn. Kastaðirðu upp?
„Nei, nei. Ég var bara að þvo
kremið af kinnum mér,“ og þar
með var Kókósbollinn horfinn.
Tyggjókúlublástur
„Þjóðaríþrótt stelpnanna í
Verzló," sagði einn áhorfendanna.
Keppendur í þessari grein voru
einnig um 30 og var skipt í tvo
riðla. Keppnin var fólgin í því að
hver átti að mynda eins stóra
tyggjókúlu og hann gat. Meðal
keppenda var Birgir Magnússon
og beindust augu margra að þeim
íturvaxna tyggjókúlublásara því
frézt hafði af honum við þrotlaus-
ar æfingar undir handleiðslu verk-
stjórans hjá Hubba Bubba verk-
smiðjunum daginn áður. Birgir
olli aðdáendum sínum ekki von-
brigðum og sigraði ungan 3. bekk-
ing, með naumindum þó. Stærð
tyggjókúlunnar var á við körfu-
bolta nr. 5. Geri aðrir betur.
Kassakast
Keppt var bæði í karla- og
kvennaflokki. Þetta var útsláttar-
keppni. Guðmundur nokkur, ungur
og spengilegur piltur, sigraði í
karlaflokki. Þóra Hermannsdóttir,
1. sópran í kórnum, átti stórleik í
þessari íþróttagrein og rassakast-
aði hverjum keppandanum á fætur
öðrum yfir linuna sem miðað var
við.
Eggjaát
Fyrsti maðurinn sem setti skóla-
met í eggjaáti í Verzlunarskólan-
um var auðvitað atorkumaðurinn
og kamelljónið Sverrir Tynes árið
1979. Síðan hefur þessi íþrótta-
grein aldrei fallið út.
Fyrirkomulagið var á þá leið að
hver maður átti að sporðrenna 6
eggjum. Sá sem fyrstur varð sigr-
aði, en þar sem skeiðklukkan bilaði
þá stendur skólametið óhaggað.
Mikla athygli vakti þátttaka
kvennakvartetts sem aldrei hafði
víst smakkað á svona nokkru.
Aðeins séð Rocky drekka þetta í
annarri myndinni. Þær stóðu sig
nokkuð vel en sigurvegari varð
Björgvin Már.
Hlé.
Pilsner-drykkja
Egill Skallagrímsson var vart
farinn að ganga er hann tæmdi
heilu bjórlíkistunnurnar í morgun-
mat. Hann var ekki á meðal kepp-
enda hér en margir berserkir fóru
að dæmi Egils, tóku vel á, þömbuðu
og sötruðu af fítonskrafti svo spýj-
an tók á flug!
Margir keppendur voru í þessari
grein, allt karlmenn og var hverj-
um og einum uppálagt að svolgra
í sig eina 6 pilsnera. Hamagangur-
inn var mikill og ekki var laust
við að færi um suma er menn voru
farnir að kasta upp, hver um
annan, uppi á sviði á milli pilsnera.
Menn lögðu mikið á sig og sigur-
vegari varð að lokum: Hér brast
minnið, en hann gæti vel hafa
heitið Egill.
Sígarettureykingar
Tíðindamaður Morgunblaðsins
var ekki par hrifinn af þessari
grein enda algjör bindindismaður.
Fyrir nokkrum árum þótti sjálf-
sagt að banna reykingar í hátíðar-
sal skólans, en nú var keppt í
reykingum. Hvílík hneisa!! Enn
brast minni blaðamanns en sigur-
vegarinn var tvær og hálfa mínútu
að klára tvær sígarettur.
Grettukeppni
Steingrímur S. Ólafsson heitir
kunnur kappi á þessu sviði og vakti
athygli er hann keppti eitt sinn í
grettukeppni í Verzló. Undirbjó sig
svakalega en ákvað svo á síðustu
stundu að vera bara eðlilegur i
framan. Hann sigraði með yfir-
burðum. Þessi sami Steingrímur
var nú ekki á meðal keppenda
núna, en margir frægir grettu-
menn tóku samt þátt. Heimir Jón-
asson, margfaldur Seltjarnarnes-
meistari, Gísli Kjærnested, sem
æfði stíft í Bandaríkjum Norður-
Ameríku undir stjórn Dom DeLu-
ise, Andri Þór og fleiri ágætir
menn.
Hver maður fékk 3 tækifæri til
að gretta sig og mátti grettan
aldrei vera eins.
Eftir miklar vangaveltur stóð
uppi sem sigurvegari Gísli
Kjærnested. f þriðju og síðustu
grettunni hans hentu 12 manns sér
Bumbuslagur
Sigurvegari í þessari íþrótta-
grein varð Þorsteinn nokkur Þor-
steinsson, mikill baráttumaður og
sigraði hvern mótherjann á fætur
öðrum og gilti þá einu hvort þeir
voru stærri eður ei.
„Þetta var aldrei spurning",
sagði Þorsteinn eftir keppnina.
Birgir Bieldvedt, sigurvegari í kókós-
bolluáti '85 fagnar hér sigri, meó
útklínt andlit og skjannahvíta fingur.
Birgir átti firnagóóan endasprett, eða
á maóur aó segja endaát og sigraði.
Drengurinn vió hlió hans er hinsveg-
ar hálf hnugginn í bragði.
út um gluggann af hræðslu. Þeim
var komið undir læknishendur og
eru nú öll úr hættu.
Að halda knetti á lofti
Ungur og efnilegur knatt-
spyrnumaður, Róbert Haraldsson
úr ÍK í Kópavogi hafði geysilega
yfirburði og með höfðinu einu hélt
hann boltanum 175 sinnum á lofti,
aðþrengdur af áhorfendum. Sá
kunni nú að skalla.
x
1
i
■s
Skyrát
Ein þjóðlegasta íþrótt okkar
fslendinga ásamt glímunni.
Keppnin fór þannig fram að menn
fengu kúfaðan disk af ósykruðu
skyri og urðu að háma þetta í sig
án þess að nota hendurnar. Þetta
gerði það að verkum að menn voru
alhvítir i framan að keppni lok-
inni. Það má geta þess að skyrinu
mátti skola niður með Pilsner!
Keppt var í fleiri greinum svo
sem sjómanni, reiptogi og fleiru
en blaðamanni og ljósmyndara var
ekki til setunnar boðið og verður
því hér látið staðar numið. Takk
Verzlingar, fyrir skemmtilegt
kvöld.
Þaó gekk mikió á í pilsnerdrykkjunni.
M orgu n bl aöið/ R A X