Morgunblaðið - 09.10.1985, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 09.10.1985, Blaðsíða 50
• 50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 4- Alain Prost heimsmeistari FJÓRDA sæti í Breska Formula 1-kappakstrinum tryggöi Frakk- anum Alain Prost heimsmeistara- titil ökumanna í kappakstri, en keppnin fór fram á sunnudaginn. Meö skynsamlegum akstri nældi Prost í fjórða sætið, sem tryggöi honum titilinn, þó tveimur keppnum sé ólokið. Helsti keppi- nautur hans um titilinn, ítalinn Michele Alboreto, fóll úr leik vegna vólarbilunar og getur hann ekki lengur náð Prost að stigum. Sigurvegari í breska kappakstr- inum varö heimamaður, Nigel Mansell á Williams Honda. Bras- ilíumaðurinn Ayrton Senna varð annar á Lotus, en þriðji Finninn Keke Rosberg á Williams Honda. Tæplega 120.000 áhorfendur komu til aö fylgjast meö kapp- akstrinum, sem fram fór á Brands Hatch-brautinni í nágrenni Lond- on. Var búlst viö mikHN keppni miM Alboreto og Prost, en þeim síöar- nefnda nægöi aö fá tveimur stigum meira í stigagjöf fyrir keppnina. Fyrir sigur fást 9 stig, annaö sæti 6, þriöja 4, fimmta 2 og sjötta 1 stig. Varö Prost því aö vera nokk- uö ofarlega og meö Alboreto fyrir aftan. En Alboreto ætlaöi ekki aö sleppa Prost of auðveldlega í gegnum keppnina. i byrjun var Ferrari Alboreto talsvert langt á undan McLaten Prost, sem haföi Nú taka allir slátur ekiö útaf í fyrsta hring tii aö foröast árekstur viö Williams Rosberg. En Prost náöi Alboreto fljótlega og fór framúr, stuttu seinna stigu eld- tungurnar afturundan vél Ferrari ítalans. Fór Alboreto með bílinn á viögeröarsvæðiö, umvafinn reyk og vafalaust vonsvikinn, því vélin var ónýt. Var þetta þriöja keppnin í röö, sem hann átti viö tæknileg vandamál aö stríöa, einmitt þegar hann var í hvaö mestri keppni um heimsmeistaratitilinn. „Er ég sá aö Alboreto var úr leik, sló ég af, ók aöeins af öryggi,“ sagöi Prost. „Þaö er ekki minn akstursstíll, en ég verö víst aö vera skynsamur stundum.“ En Prost varö aö ná a.m.k. fimmta sæti til aö tryggja titilinn og fá tvö stig. „Ég varö aö láta skipta um dekk í miöri keppni og taföist viö þaö. Varö ég því aö aka grimmt til aö ná góöu sæti og þegar Marc Surer datt út komst ég upp í þriöja sæti. Hleypti ég síöan Keke Rosberg framúr án þess aö berjast viö hann af viti, fjóröa sætiö gaf nógu mörg stig,“ sagöi Prost. Rosberg haföi unniö sig upp frá 24. sæti, en í fyrstu hringjunum varö hann aö láta skipta um aftur- dekk eftir aö hafa snúiö bílnum og lent á Brabham Nelson Piquet. Bíll Piquet skemmdist og hann hætti, en Rosberg hélt áfram eftir aö hafa fengið gert við sinn bíl. Vann hann sig hægt og sigandi upp og endaöi í þriöja sæti. Félagi hans hjá Willi- ams Nigel Mansell leiddi keppnina frá níunda hring og var sigur hans raunverulega aldrei í hættu. Ayrton Senna á Lotus reyndi hvaö hann gat til aö halda í viö Mansell, en varö aö lokum rúmlega 20 sekúnd- um á eftir. Taldi hann reyndar að Rosberg heföi tafiö hann i miöri keppninni, meö því aö hleypa hon- um ekki framúr nógu fljótt. LOKASTAÐAN f BRESKA FORMULA 1-KAPPAKSTRINUM: kl*L 1. Nigel Mansell, Williams Honda 1.32.58.1 2. Ayrton Senna, Lotus Renault 1.33.19.6 3. Keke Rosberg, Willlams Honda 1.33.56.6 4. Alain Prost, McLaren Porsche 1.34.04.2 5. Elio de Angelís, Lotus Renault hring á eftir 6. Thierry Boutsen, Arrows BMW tvelm hrlngjum á eftir Tólf keppendur komust í mark. STADAN i HEIMSMEISTARAKEPPNI ÖKUMANNA: »tig 1. Alain Prost, Frakklandi 72 2. Michel Alboreto, Italiu 53 3. Ayrton Senna, Brasilfu 38 4. Ello de Angelis. Italiu 33 5. Keke Rosberg, Finnlandl 25 6. Nigel Mansell, Bretlandi 22 7. Stefan Johansson, Sviþjóö 21 — Nelson Piquet. Brasiliu 21 Morgunblaött/Qunnlaugur Rögnvaldsson • Aðstoðarmenn Prost búa hann undir að leggja af staö (keppni. ISlátursölu SS fá allir ókeypis leid- beiningarbækling um sláturgerð og uppskriftir. Meðbæklinginn í höndum geta allir búið til slátur — þú líka. Auk þess er slátur svo ódýrt og hollt að bæði magann, skynsemina og peningavitið blóðlangar í slátur. Slátursala© Iðufelli 14, Breiðholti. Allt til sláturgerðar á einum stað. V/SA „Verö í skýjunum á næstu dögum“ — sagði nýi heimsmeistarinn Heimsmeistaratitillinn er Alain Prost vafalaust kærkominn, sér- staklega þó vegna þess aö tvö undanfarin ár hefur hann oröið að sætta sig við annað sætið í stiga- keppninni um titilinn. En nú hefur Prost gulltryggt titilinn, þó tveim- ur keppnum só enn ólokið. „Ég er enn dálítið uppspenntur, hef ekki áttaö mig á því að titillinn er minn. Ég verð I skýjunum ó næstu dögum,“ sagði Prost er hann var kominn I mark í Breska kappakstrinum. Fyrstu kynni Prost af kappakstri voru árið 1975, þegar hann hóf keppni í Go-Kart-kappakstri. Sýndi hann fljótt getu sína á kapp- akstursbrautum víös vegar um Frakkland. Fékk hann fljótlega styrk frá Renault-verksmiöjunum og fór aö aka í Formula Renault- kappakstri. Þar vann hann 12 keppnir af 13 á einu ári áriö 1976. Hann varö franskur meistari í Formula Renault bæöi 1977 og 1978. Hann varö Evrópumeistari í Formula 3-kappakstri 1979, á sínu fyrsta ári i slíkri keppni. Vakti þetta athygli keppnisstjóra ýmissa Formula 1-liða. Geröi McLaren- liöiö samning viö hann 1980 en Prost rifti samningnum viö þá eftir eitt ár og fór til Renault. Náöi hann ðöru sæti í heimsmeistarakeppn- inni á Renault áriö 1983 en var síöan rekinn frá liðinu. Þótti hann of hreinskillnn i viötölum viö blaöa- menn um stjórnunaraöferöir verk- smiöjuliösins franska. McLaren geröi aö nýju samning viö hann og ók hann ásamt Niki Lauda á nýhönnuöum Mclaren Porsche. Höfðu þeir mikla yfirburöi yfir keppinauta sína í fyrra og uröu efstir í heimsmeistarakeppninni. Var Lauda hálfu stigi á undan Prost. í ár átti Prost í mestri keppni viö Italann Michele Albor- eto á Ferrari. Tæknileg vandamál hjá liöi Alboreto voru honum fjötur um fót á meöan Mclaren-liöiö óx meö hverri keppni. Á lokasprett- inum skilaöi Prost sér mun oftar í toppsæti og tryggöi titilinn á sunnudaginn. Sigraði Prost í sex keppnum a árinu, vaö tvivegis í ööru sæti, þrívegis þriöji og einu einni í fjóröa sæti. Hefur hann 21 sinni sigraö í Formula 1-keppni en aöeins Jackie Stewart hefur sigraö oftar, en 27 sinnum. „Ég er staö- ráöinn i aö slá met Stewart og ég ætla líka aö verða heimsmeistari þrisvar sinnum áöur en ég hætti keppni. Ég hef nægan tíma til þess, því ég er aöeins þrítugur. Ég stefni líka á sigur í þeim keppnum sem eftir eru á þessu ári, því titill- inn er í höfn. Nú ek ég á fullu ... “ t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.