Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 7

Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 7 Edward F. Cadman, forseti Rotary International, t?.. afhendir Húnb- oga I>orsteinssyni, umdæmisstjóra íslenska umdæmisins, Rotary-lykil á fræóslumóti Rotary í Nashville i Bandaríkjunum sl. vetur. Húnbogi er félagi í Rotaryklúbbi Borgarness. Forseti Rotary heimsækir ísland UM NÆSTU helgi kemur hingað til lands forseti Rotary International, bandaríski skurðlæknirinn Edward F. Cadman. Hann kemur hingað ásamt konu sinni, Mary Jean, I boði íslenska Rotary-umdsmisins. Cadman er nú á ferðalagi til að veröld. í heiminum starfa nú 21.500 Rotary-klúbbar í 159 þjóðlönd- um, þar af 24 á íslandi með um 940 félaga. Cadman er frá bæn- um Wenatchee í Washington- ríki á vesturströnd Bandaríkj- anna. Þar starfaði hann allan sinn starfsaldur sem skurðlækn- ir, en er nú kominn á eftirlaun. Cadman hefur mikinn áhuga á þróunarhjálp Rotary-hreyf- ingarinnar, en hún er nú að safna 120 milljónum dollara til kaupa á bóluefni gegn lömunar- veiki. Rotary ætlar að sjá til þess að öll börn þróunarheims- ins verði bólusett gegn lömunar- veiki fyrir árið 2005, en þá er öld liðin frá stofnun hreyfingarinn- heimsækja Rotary-klúbba vítt um ar. Læknar, sem eru Rotary-fé- lagar, vinna i sjálfboðaliðavinnu við að bólusetja börnin gegn lömunarveikinni. Meðan Cadman dvelur hér, heimsækir hann m.a. forseta ís- lands, Landspítalann og Hita- veitu Suðurnesja í Svartsengi. Sunnudaginn 13. október nk. sit- ur hann sameiginlegan hátíðar- fund íslenska Rotary-umdæmis- ins, í hádeginu á Hótel Sögu, í boði Húnboga Þorsteinssonar, umdæmisstjóra Rotary hér á landi, en hann er félagi í Rot- ary-klúbbi Borgarness. Rotary-fundurinn á Hótel Sögu hefst kl. 11.30 (Fréttatilkjiiniiig frí Rotarj) Listahátfð kvenna: Tveir erlendir kvik- myndaleikstjórar gestir Kvikmyndahatíð kvenna verður haldin í Stjörnubíói dagana 12.-18. október og rekur hún endahnútinn á Listahátíð kvenna. Gestir hátíðar- inar verða þýski kvikmyndaleikstjór- inn Margarete von Trotta og franski kvikmyndaleikstjórinn Agnés Varda, sem báðar hafa hlotið margs konar viðurkenningar fyrir kvikmyndir sínar. Margarete von Trotta hlaut til að mynda verðlaunin Gullljónið í Feneyjum árið 1981 fyrir kvik- mynd sína „Die bleierne Zeit“, en sú mynd var sýnd á kvikmyndahá- tíð Listahátíðar á sínum tíma. Þá voru Trotta veitt æðstu kvik- myndaverðlaun Vestur-Þýska- lands, „Bundesfilmpreis", fyrir kvikmyndina „Der erste Erwac- hern der Christra Klages". Sú mynd verður sýnd á kvikmyndahá- tíðinni í Stjörnubíói og einnig önnur kvikmynd Trotta, sem ber heitið „Heller Wahn“. Agnés Varda hlaut Gulljónið í Feneyjum í ár fyrir nýjustu mynd sína „Sans toit ni lois“, sem vænt- anlega verður sýnd á kvikmynda- hátíðinni. Auk hennar verða sýnd- ar þrjá kvikmyndir eftir Varda, Þýski kvikmyndaleikstjórinn, Marg- arete von Trotta er annar gestur Kvikmyndahátíðar kvenna. „Réponse de femme", „Daguer- rotypes" og „Ulysse". JMfógmiMitfeife Áskriftarshninn cr 83033 Sinfóníutónleikar á morgun: Sálumessa Verdis flutt í þriðja sinn á íslandi SINFÓNÍUHUÓMSVEIT íslands og kór Islensku óperunnar flytja Requiem, Sálumessu, eftir Verdi á tónleikum í Háskólabíói á morgun, 10. október, afmælisdegi Verdis. Einsöngvarar eru Sieglinde Kah- mann sópran, Jutta Bokor mezzo- sopran, Dino Di Domenico tenor og Jón Sigurbjörnsson bassi. Stjórnandi er Robin Stapleton, en Peter Locke æfði kórinn. í kórnum eru 75 félagar. Sieglinde Kahmann hefur sung- ið mörg stór hlutverk bæði í óper- um og í konsertuppfærslum á undanförnum árum. Jón Sigur- björnsson hefur einnig oft komið fram í óperusýningum. Hann söng einsöng í Sálumessu Verdis þegar hún var frumflutt á íslandi árið 1968 af Söngsveitinni Fílharmóníu undir stjórn dr. Róberts A. Ottós- sonar og Sinfóníuhljómsveitinni. Árið 1976 var Sálumessan aftur flutt og þá undir stjórn Karsten Andersen. ítalinn Dino Di Domenico syng- ur einsöng í stað Garðars Cortes sem forfallaðist vegna veikinda. Dino hefur unnið til ýmissa verð- launa og sungið hjá óperum i Parma og Róm. Hann söng nýlega í Carnegie Hall í New York með Berlínar Fílharmóníuhljómsveit- inni. Jutta Bokor frá Úngverja- landi vann 2. verðlaun í söngvara- keppninni Singer of the World í Cardiff í sumar. Nú starfar hún hjá óperunni í Búdapest, auk þess sem hún kemur víða fram í Evr- ópu. Stjórnandinn Robin Stapleton hefur áður komið hingað til lands, er hann stjórnaði hátíðartónleik- um íslensku óperunnar fyrir nokkrum árum. Peter Locke sem æft hefur kórinn undanfarnar þrjár vikur starfar nú sjálfstætt, en hann vann áður við óperuna í Feneyjum. Giuseppe Verdi fæddist í Ron- cole á Norður-Ítalíu árið 1813. Hann var aðeins 10 ára gamall þegar hann var orðinn aðstoðar- maður organistans í þorpskirkj- unni. Eftir Giuseppe Verdi eru margar frægar óperur svo sem Rigoletto, La Traviata, Aida, Grímudansleikurinn o.fl. Hann samdi Sálumessuna til minningar um Alessandro Manzoni, þjóðar- skáld ítala sem lést árið 1873. Hún var frumflutt ári síðar í Markúsar- kirkjunni í Mílanó af bestu ein- söngvurum La Scala óperunnar ásamt kór og hljómsveit undir stjórn Verdis sjálfs. Verkið féll ekki öllum jafn vel í fyrstu. Nú er það hins vegar talið tónlistarvið- burður hvar sem það er flutt. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 í kvöld. Þeir verða síðan endurtekn- ir i Háksólabiói kl. 14.00 á laugar- daginn kemur. Ákaflega fallegt verk segir Jutta Bokor mezzo-sópran um Sálumessu Verdis „ÉG ER ekki sérstaklega mikið fyrir að taka þátt í keppni, en ég var mjög inægð með keppnina í CardifT* sagði Jutta Bokor mezzo-sópran söngkona, sem syngur einsöng í Sálumessu eftir Verdi, er blm. Morgunblaðsins hitti hana eftir æfingu í gær. Eins og íslenskir sjónvarpsáhorfendur muna tók hún þátt í keppninni Singer of the World sem haldin var í Cardiff í sumar og hlaut önnur verðlaun. „Ég var líka mjög ánægð með verðlaunin. Þau voru góð auglýs- ing fyrir mig. Ef ég hefði ekki fengið þau hefði mér t.d. ekki verið boðið að koma til íslands og svo til Vínar og London" sagði Jutta og brosti. „Ég vissi ekkert um ísland svo ég leitaði til vina minna og annarra sem ég frétti að hefðu komið til landsins og fékk ýmsar upplýsingar hjá þeim, t.d. um hvað ég þyrfti að taka með mér o.s.frv. Ég vona að ég fái tækifæri til að fara í bæinn, skoða söfn o.fl. Ég fór í gönguferð í gær í yndislega fallegu veðri“. „Nú starfa ég við Ríkisóperuna í Búdapest og það er svo sannar- Jutta Bokor Morgunbladið/Bjarni lega nóg að gera hjá mér. Ég syng annan til þriðja hvern dag. Þó reyni ég að fara að öllu með gát. Ég á enn eftir að læra margskonar tækni og hef ákveðið að leyfa röddinni að þróast hægt og síg- andi“. Hvernig líst þér á að syngja Sálumessuna? „Þetta er ákaflega fallegt verk - og það er erfitt. Á vissum stöðum minnir það mig á atriði úr óperum, eins og t.d. Aidu. Það eru miklar tilfinningar í þessu verki og mér finnst mjög mikilvægt að koma þessum tilfinningum til skila til áheyrendanna" sagði Jutta Bokor að lokum. STEFNUMÖRKUN í ÚTFLUTNINGS- VERSLUN Átthagasalur Hótel Sögu föstudagur 18. október 1985 kl. 13.00—16.30 DAGSKRÁ: ' 13.00—13.15 Mæting. 13.15—13.30 Setning. Ragnar S. Halldórsson form. Vf. 13.30— 14.30 HVERNIG EIGA FYRIRTÆKI OG ÞJÓÐIR AO SKIPU- LEGGJA ÚTFLUTNING SINN? Hans Stahle, stjórnarformaöur ALFA-LAVAL, Sænska útflutningsráösins og varaformaöur Verslunarráösins IStokkhólmi. Fyrirspurnir. 14.30— 14.45 Hló. 14.45— 15.45 iSLAND OG ÚTFLUTNINGSMÁLIN. Fimmstutterlndl: 1) Aö hefja Andrés Sigurösson, frkvstj. 2) Ríkisvaldiö og útflutnlngsmálin — Friðrik Pálsson, frkvstj. 3) Samskipti útflytjenda og fjölmiöla Páll Heiöar Jónsson, dagskrárfulltrúi. 4) TengslinviðEBE-framtiðfríverslunar Sveinn Björnsson, skrifstofustjóri. 5) Útflutningslán og tryggingar Þóröur Friöjónsson, hagfræóingur. 6) Útflutningsmiöstöð eöa útflutningsráö. Þráinn Þorvaldsson, frkvstj. 15.45— 16.30 Fyrirspurnir og umræöur. 16.30 Fundarlok. Þátttaka ar öllum heimil. VERZLUNARRÁÐ ÍSLANDS Vinsamlegaat tilkynnið þátttöku í síma 83088.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.