Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 09.10.1985, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 9 Hjartans þakklæti til barna minna og dóttur- dætra, sem báru alla umhyggju fyrir 85 ára afmœli mínu. Einnig þakka ég vinum mínum fyrir gjafir, blóm og skeyti og aðra vinsemd. GuÖs blessun veri meö ykkur öllum. Gudmunda M. Pálsdóttir, Hlíf, ísafírði. Elskulegu œttingjar og aörir vinir sem minnt- ust mín meö vinsemd á 95 ára afmælisdegi mínum, 4. október. Bestu þakkir. Blessunfylgi ykkur. Þorsteinn Krístleifsson frá Gullberastöðum. Konur athugið: NUDD - NUDD - NUDD Megrunar- og afslöppunarnudd. Megrunarnudd, vöðvabólgunudd, partanudd og afslöppunarnudd. Vil vekja sérstaka athygli á 10 tíma kúrum. Ljósaíampar Nudd — sauna — mælingar — vigtun — matseðill. Opið til kl. 10 öll kvöld. ^Bíiastæði. sími 40609. Nudd- og snyrtistofa Ástu Baldvinsdóttur, Hrauntungu 85, Kópavogi. ROY AL SKYNDIBUÐINGARNIR ÁVALLT FREMSTIR ENGIN SUOA Tilbúinn eftir fimm mínútur 5 bragðtegundir Sálfræóistöóin Námskeið BÖRN OG SJÁLFSTRAUST Læröu að þekkja persónuleg viðbrögð þín og kynntu þér árangursríkar aðferðir sem auka sjálfsöryggi barna. --------- Efni námskeiðs:-------- • Samskipti fullorðinna — áhrif á börn • Hver eru æskileg/óæskileg viðbrögð fullorðinna • Staða barns í fjölskyldu — samband systkina • Nýjar leiöir: — að minnka árekstra — að auka samvinnu — að styrkja sjálfstraust Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Innritun og nánari upplýsingar í síma Sálfræðistöðvarinnar: 687075 milli kl.10og12 fh. Breyting séö frá mismun- andi sjónarhólum Uppstokkun ríkisstjórnarinnar hefur aö vonum vakið athygli og umfjöllun, bæöi í fjölmiðlum og meðal fólks almennt. Sitt sýn- ist hverjum — eins og gengur. Morgunblaö- ið vék að þessu máli í forystugrein í gær. Það gerðu önnur dagblöö jafnframt. Stak- steinar gefa lesendum sínum í dag kost á aö kynnast því, hvern veg önnur blöð brugöust við þessari framvindu í gær. Hér verður hinsvegar ekki fjallaö um, hve víðfeðm uppstokkunin verður né hvað af henni leiðir. Þar um dæmir reynslan, sem er ólygnust, bezt. ,3<yrkir stjórnina“ Korystugrein NT í gær minnir í að framsóknar- menn og sjálfstsðismenn hafí verirt sammála um „að það myndi styrkja stjórn- ina ef Þorsteinn (innskot hér formaður Sjálfstæðis- flokksins) tæki sæti í henni. Síðar segir: „Framsóknarmenn vilja reyna aö ná víðtækum sátt- um um leiðir sem ná því markmiði að minnka er- lendar skuldir án atvinnu- leysis og minnkunar kaup- máttar. Gera þarf áætlun til ein- hverra ára sem hefur það að markmiði að ná fram jöfnuði í viðskiptum og minnkun erlendra skulda... Þjóðarsátt þarf að ná um leiðir til að skapa festu í efnahagslífi þjóðarinn- ar...“ Höfundur leiðarans, sem cndar öll skrif með hnútu- kasti í samstarfsflokkinn, lætur þetta tækifæri ekki ónotað, fremur en önnur, ogsegir: „Þó má telja næsta vist að þeir (frjálshyggjumenn Sjálfstæðisfíokksins) vilji reiða hátt til höggs og keyra niður kaupmáttinn enn frekar en nú er gert... Þá vilja þeir draga enn frekar úr opinberum framkvæmdum sem óhjá- kvæmilega myndi leiða af sér atvinnuleysi, sérstak- lega á landsbyggðinni." „Þetta er nú aldeilis byltingin“ Þjóðvilinn heldur sig við sama heygarðshornið. Honum líst síður en svo á þá „byltingu" sem orðin er (eða verður) í ríkisstjórn- inni. Þá var nú hin eina og sanna bylting, sem gerð var austur í fyrirmyndar- ríkinu ■ „dentíð" eitthvað skárri! Orðrétt segir í leið- ara: „Þeir höfðu gefíð í skyn að það yrði eitthvaö aðeins meira en umtalsverð upp- stokkun, eiginlega var ekki að skilja á þeim að þetta yrði nokkurs konar bylting á skipan ríkisstjórnarinnar. Og í raun og veru var forysta Sjálfstæðisflokks- ins búin að sýna almenn- ingi í landinu þann mæli- stokk sem ætti aö nota á styrk hennan þ.e. hversu miklar breytingar yrðu á ráðberraskipan Sálfstæðis- fíokksins. Og sjá: þeir gerðu þær róttæku breyt- ingar að nú fer einn ráð- herranna í þriggja mánaða fríið og ekki er útilokað að utanríkisráðherran sjái sér fært að hætta 1. janúar á næsta ári. Þetta er nú al- deilis bylting!" „Byltingin" í ráðherra- liði Framsóknar (sem ekki varð) er ekki nefnd á nafn. Forystugrein Þjóðviljans hefur yfírskriftina: „Heiö- ursforseta Nató sparkað." Og niöurstaða hennar er: „A hinn bóginn er Geir sjálfur að vinna sig upp í álit hjá flokkshollum með- bræðrum sínum.“ Alþýðuflokk- urinn álykt- ar (seint og um síðir) Flokksstjórn Alþýðu- flokksins fundaöi í Borg- arnesi síðastliðinn sunnu- dag. Þá var sýnt að upp- stokkun ríkisstjórnarinnar var í burðarliðnum. Flokksstjórnin brá skjótt og hart við, eins og hennar var von og vísa, og álykt- aði, samanber rammafrétt í Alþýðublaðinu í gær „Því skorar fíokksstjórn Alþýðuflokksins á þing- menn flokksins að flytja tillögu um vantraust á rík- isstjómina strax í þingbýrj- un!“ Ekki var seinna vænna fyrir þingflokk Alþýðu- fíokksins að bregða brandi. Hann gat líka látið kjurrt liggja. Hvorutveggja gárar yfirborð þjóðmál- anna álíka mikið. Fylgst með hvað breyt- ingin boðar Dagblaðið Vísir (DV) segir ma. í forystugrein: „Fylgzt verður grannt með ferli Imrsteins Páls- sonar í ríkisstjórninni... Hún (ríkisstjórnin) byrjaði vel og lofaði góöu. En allur dampur er úr stjórnarsigl- ingunni. Því geta lands- menn ekki með réttu lagzt gegn því, að nýtt blóö komi inn í ríkisstjórnina. Menn geta ekki andmælt því með giktum rökum, að sú til- raun verði gerð að hleypa nýju lífí í stjórnina með nýjum mönnum. Þorsteinn fær ekki öfundsvert hlut- verk... Kannski þýðir hert for- ysta Þorsteins í Sjálfstæð- isflokknum og tilkoma hans í ríkisstjórn, að eitt- hvað, sem sköpum skiptir, verði gert í þá átt sem nauðsynlegast en frekari niðurskurður og minni rík- isafskipti, fjármagn fari í arðbær verkefni en ekki gæhiverkefni fyrirgreiðslu- pólitíkusa. En þetta getum við bara vonað. Við vitum það ekki. Þó verður spenn- andi að fylgjast með, hvað breytingin þýðir.“ /Mieley uppþvottavélar — hefur þú heyrt hvað þær eru hljóölátar? Lnr JÓHANN ÓLAFSSON & C0 . 43 Smtdaborg • 104 Reykiavik • Sfmi 82644 W Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Þessir margeftirspurðu kuldaskór aftur fáanlegir Stæröir: 34—46 GEíSiPI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.