Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 20

Morgunblaðið - 09.10.1985, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 Morgunblaðið/RAX „Fólk hér er mjög jákvæti Gunnar Valur Sveinsson, formaður skemmtinefndar, lætur gamminn gi Morgunblaðiö/RAX „Það er mikill undirbúningur á bak við svona nokkuð," svaraði hinn ástsæli formaður skemmtinefndar í Verzló, Gunnar Valur Sveinsson, en hann ásamt nefnd sinni skipulagði metakvöldið Með trukki og dýfu. Gunnar er hár maður vexti, grannur, frekar toginleitur, með fallegt, liðað hár en augabrúnir rétt eins og gengur og gerist. Hann ku vera vinmargur enda maðurinn bókstaflega viðriðinn allt sem hægt er innan skólans. Hann er í kórnum, í leiklistinni og öllu hinu. En snúum okkur aftur að spjallinu. „Það þarf auðvitað að ákveða í hverju á að keppa og fá keppendur (greinarnar, kaupa vinninga, gera auglýsingar á veggi svo og myndabandaauglýsingu og fleira og fleira," sagði Gunnar Valur. Var erfitt að fá keppendur? „Nei. Sem betur fer er fólk hér mjög jákvætt þegar svona nokkuð er annars vegar. Að vísu keppa sumir)' fleiri en einni grein, en þú veist hvernig þetta er, sumir eru fjölhæfari en aðrir." Láta kennararnir aldrei sjá sig þegar þið skemmtið ykkur? „Yfirleitt ekki. Þeir koma þrír eða fjórir þegar skóla- og félagslífsmálfundurinn er og flestir á nemendamótið, dimission og á peysufatadaginn." Hvað er framii ídan í félagslífí Verzlinga? „Það er íþróttaferð til Vestmannaeyja sem gæti orðið virkilega fróðle;; og áhugaverð í alla staði. Þar getum við nefnilegs skoðað uppáhaldsfuglana okkar, lundana. Nú, nig hefur í mörg ár dreymt um að sjá bæinn sem C ylfi Ægisson og fleiri hafa sungið svo fallega um og kannski sprangar maður." Og fleira? „Fljótlega er skemmtikvöld. Þá koma nemendur með frumsamin skemmtiatriði í alls kyns formi og eru það yfirleitt best sóttu kvöldin yfir veturinn. Það eru alla jafna um 500 manns sem þá láta sjá sig. í nóvember er listahátíð á vegum Listafélagsins og Fríkballið óumdeilanlega fræga er alveg á næstu grösum. Þetta er svona það helsta," svaraði Gunnar Valur og bauð kandís. Hvernig er samstarfi við hina framhaldsskólana háttað? „Það er langbest á íþrótta- og mælskusviðinu. Skólarnir keppa mikið sín á milli í alls kyns íþróttum og ræðukeppnirnar á milli skólanna eru mjög ofarlega á blaði yfir vinsælustu atburðina. í fyrra var reynt að hafa skemmtikvöld skólanna, þ.e. hver skóli kom með sitt skemmtiatriði. Þetta var í Háskólabíói og tókst að mig minnir ekkert ýkja vel. Þess ber nefnilega að gæta að hver skóli hefur sinn einkahúmor. Það er stórmerkilegt. Það sem okkur í Verzló finnst drepfyndið fær ekki einn einasta mann í MR til að brosa. Skrýtið!" Hvernig gengur þér að samræma nám og félagsstörf? „Það gengur. Láttu það endilega koma fram að ég læri heirna." Hvernig heidurðu að það komi þér til góða í framtíðinni að hafa verið svo kappsamur í félagslífínu? „Það er visst álag sem fylgir því að bera ábyrgðina. Að bera ábyrgð er þroskandi, maður kynnist fjöldanum öllum af alls kyns fólki og svo framvegis og svo framvegis og svo framvegis...“ Nú þurfti Gunnar Valur að fara í sérhannaðan æfingagalla sem hann ætlaði að vera i uppi á sviði þegar hann stjórnaði kvöldinu Með trukki og dýfu og lauk þar með spjalli þessu. Félagslífið í Verzlunarskóla íslands hefur alltaf þótt mjög gott. Fjölbreytnin verið í fyrirrúmi og ávallt eitthvað um að vera í hátíðarsalnum, sem enn er aðalmiðstöð hinna ýmsu fagnaða og atburða. Verzlunarskólinn er við Grundarstíginn en mun flytja í nýja miðbæinn um áramótin. Víst er að margir munu sakna gamla skólans en jafnvíst er að enn aðrir vilja komast í nýtt umhverfi. Eitt kvöldið sem oftar í síðustu viku gerðu Verzlingar sér glaðan dag í hátíðarsalnum. Yfirskrift kvöldsins var: „Með trukki og dýfu“. Að þessu sinni var svokallað metakvöld á dagskrá. Jafnframt því sem stefnt var að því að slá hin ýmsu skólamet í hinum ýmsu greinum var þetta undirbúningur fyrir íþróttaferð Verzlunarskólans til Vestmannaeyja. Keppnisgreinarnar voru margar hverjar í anda Heimsmeta- bókarinnar frekar en ólympíuleikanna. Skemmtinefnd skólans stóð að skipulagningunni og tveir ungir menn, þeir Gunnar Valur Sveinsson form. skemmti- nefndar og Atli Atlason trúnaðarmaður sömu nefndar, sáu um að kynna keppendur og reglur auk þess að skjóta reglu- lega inn stuttum, en vel æfðum skrýtlum. Blaðamaður og ljósmyndari voru staðráðnir í að láta þetta ekki fram hjá sér fara og afraksturinn er hér, svartur á hvítu. Sigurvegarinn í sígarettureykingum kláraði tvær sígarettur á 2.30 mínútum sem er víst héraðsmet. Hann fagnar hér sigri. Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/RAX Gunnari Val Sveinssyni fórst stjórnin vel úr hendi. Hér sést hann með skeiðklukku og hljóðnema að vopni. gg^jOHOLAFSSON Með trukki og Metakvöld í Verzló

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.