Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 25

Morgunblaðið - 09.10.1985, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER1985 25 Ónæmistæring í Stokkhólmi: Helmingur heróín- neytenda smitaður Stokkbólmi. 7. oktober. Fri fréttoritar. MorfnbbMm. TALIÐ er, að n»rri holmingur heró- ínneytenda í Stokkhólmi sé smitaður af alnæmi og virðist því sem sjúk- dómurinn hafi breiðst miklu örar út en ráðamenn í heilbrigðiskerfinu héldu fyrir aðeins einu ári. Þessar upplýsingar koma fram hjá opinberri nefnd, sem fjallar um útbreiðslu og varnir við al- næmi, en við athuganir á 1000 eiturlyfjaneytendum kom í Ijós, að 10% þeirra höfðu smitast af sjúkdómnum. Þegar heróínneyt- endurnir voru teknir út úr sýndi það sig, að 40% þeirra voru smit- aðir. Enn hefur veiran ekki fundist í blóði heróínsjúklinga utan Stokk- hólms en þar eru þeir 1000 talsins a.m.k. Óttinn við alnæmið virðist vera að ná miklum tökum á eiturlyfja- neytendum og fjölgar þeim dag frá degi, sem biðja um hjálp. Aðstæður til að hjálpa þeim eru þó ekki nógu góðar og hefur orðið að vísa frá um 100 þeirra. Fram til þessa hafa 18 manns látist úr alnæmi í Svíþjóð en meðal þeirra hafa ekki verið neinir eitur- lyfjaneytendur. Á meginlandinu verða hins vegar æ fleiri heróín- neytendur sjúkdómnum að bráð. Vetrarríki í N-Vesturríkjum Bandaríkjanna Denvrr, ('olorulo. Bondarfkjunum, 8. okt AP. SNJÓBYLUR gekk yfir norðvestur- ríki Bandaríkjanna á laugardag. í Montana lokuðust vegir og voru skaflar víða á annan metra á dýpt. Einnig barst snjókoma til fjallahér- aða Norðaustur-Oregon. Embætt- ismenn í Norður-Dakota sögðust óttast, að veðurhamurinn hefði vald- ið skemmdum á hvcitiuppskerunni. Djúp lægð olli því, að vetrarrík- ið barst frá Idaho og Norðaustur- Oregon suður til norðausturhluta Nevada-ríkis og til vesturhluta Norður-Dakota í austri, að sögn veðurfræðings. Haft var eftir yfirvöldum í Montana-riki, að vegna veðursins hefði orðið að hætta leit að lítilli flugvél, sem saknað var á föstudag með fjóra menn innanborðs. „Það er ekki ótitt, að það snjói svo snemma hausts í Montana," sagði Robert Doherty á veðurstof- unni í Norður-Dakota, „en það er óvenjulegt, að snjókomunni fylgi slíkur veðurhamur svo snemma." Dó á tindi Everest Katmandu, 8. október. AP. INDVERSKI majórinn K. I. Kumar beið bana á tindi hæsta fjalls heims, Everest, á mánu- dag, að því er embættismenn í Nepal skýrðu frá í dag. Kumar var í átta manna sveit indverskra hermanna, sem lögðu til atlögu við Ever- est. Hrasaði hann á suður- tindi fjallsins og hrapaði til bana. Fleiri gyðingar fá að yfirgefa Sovétríkin (K-nf, 8. október. AP. ÞKEFALT fleiri gyðingar fengu að yfirgefa Sovétríkin í septembermán- uði en í ágústmánuði eða 93 og 34 þeirra fluttust þegar áfram til ísrael samkvæmt upplýsingum alþjóðlegr- ar nefndar, sem fer með málefni gyðinga. Aðeins 29 sovéskir gyðingar fengu að flytjast í burt í ágúst- mánuði, en 174 í júlí hins vegar, sem er það mesta sem leyft hefur verið í tvö og hálft ár. Þessar tölur eru hins vegar lágar, ef saman- burður er gerður við síðustu ár áttunda áratugarins. Árið 1979 fengu 51.300 gyðingar að flytjast burt frá Sovétríkjunum alls, en samsvarandi tala var 922 á síðasta ári. Flugvél fallhlífar- stökkvaranna Brak Cessna 208-flugvélarinnar, sem fórst með 17 mönnum skömmu eftir flugtak í Georgíuríki í Bandaríkjunum á dögunum. Starfsmaður banda- rísku flugmálastjórnarinnar kannar flakið. í Ijós hefur komið að hreyfill flugvélarinnar drap á sér þar sem sykur hafði verið settur f eldsneytis- geyma bennar. Talið er að kókaínsmyglarar hafi mengað eldsneytið til að ná sér niðri á eiganda flugvélarinnar. Flaug hann flugvélinni hinsta flugið, en ásamt honum voru 16 fallhlífarstökkvarar um borð. Góöan mat þarf að geyma vel. Ef fjölskyldan á frystikistu getur hún gert hagkvæm matarinnkaup. En það er líka hagkvæmni að velja Frigor, ekki aðeins vegna hins lága verðs, heldur einnig þar sem Frigor hefur með áralangri reynslu hér á landi sýnt og sannað ágæti sitt. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR B 200 B 275 B 380 B 460 Hæð 89 cm 89 cm 89 cm 89 cm Breidd 73 cm 98 cm 128 cm 150 cm Dýpt 65 cm 65 cm 65 cm 65 cm Rafbúð Sambandsins tryggir örugga þjónustu $ SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910~8(266 OCTAVO 09.25

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.